„Huggun í því hvað við erum mörg í sömu sporum“

Myrra Leifs­dóttir er með meistara­gráðu í mynd­list en hefur und­an­farin ár unnið sem flug­freyja hjá Icelandair. Hún var ein af þeim níu hund­ruð flug­freyjum félags­ins sem sagt var upp í lok apríl. Hún segir eft­ir­sjá af starf­inu sem hún kunni vel að meta en íhugar að fara aftur í háskól­ann í haust.

„Huggun í því hvað við erum mörg í sömu sporum“
Með Elmu, yngstu dóttur sinni Myrra Leifs­dóttir kann vel að meta flug­freyju­starfið. Hún von­ast eftir því að kom­ast aftur í flugið en skoðar ýmsa mögu­leika. Mynd: Heida Helgadottir

„Þetta gerð­ist allt svo hratt. Fyrir þremur mán­uðum vissi ég varla að þessi veira væri til, en nú er allt breytt. Ég var í fríi úti í Ameríku með fjöl­skyld­unni í febr­úar og vorum lítið að hugsa um veiruna og fátt sem minnti á hana. Ég man að systir mín sagði: „Það eru komin tvö til­felli af veirunni hérna í Flórída. Við skulum vera dug­leg að þvo okkur um hend­urnar.“ Örfáum vikum seinna er ég í flugi til New York og geng þar um tómar göt­urnar. 

Líkt og meiri­hluti starfs­manna Icelandair fékk Myrra upp­sagn­ar­bréf í lok apríl. Hún vinnur nú upp­sagn­ar­frest­inn og er á „stand-by“ stöku daga, en fer þó ekki í flug enda lítið sem ekk­ert flogið þessa dag­ana. Hvað svo tekur við hefur hún ekki hug­mynd um. Hún er með meistara­gráðu í mynd­list og var byrjuð í öðru meist­ara­námi, í rit­list, þegar flugið lokk­aði hana til sín. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár