„Styrkur stéttarinnar hefur komið í ljós“

Fjórir hjúkr­un­ar­fræð­ingar segja frá reynsl­unni af störfum á COVID-göngu­deild Land­spít­al­ans en allar starfa þær við allt ann­ars konar hjúkrun en þær hafa sinnt að und­an­förnu. Þær segja það standa upp úr að báknið Land­spít­al­inn geti verið sveigj­an­legt og tekið skjótum breyt­ingum, sé þörf á því. Lyk­ill­inn að því hafi verið sam­vinna heil­brigð­is­starfs­fólks úr ólíkum stéttum, sem hafi snúið saman bökum og unnið eins og einn maður und­an­farnar vikur.

„Styrkur stéttarinnar hefur komið í ljós“

Fyrir rétt rúmum tveimur mán­uðum var ekki til neitt sem heitir COVID-göngu­deild á Land­spít­al­anum. Fáeinum vikum seinna hafði deildin sprottið upp og bjó yfir starfs­fólki í tuga­tali sem hafði það að starfi að sinna sjúk­lingum sem greinst höfðu með COVID-19. Hjúkrun í gegnum síma var eitt af stóru verk­efnum starfs­manna deild­ar­innar. Hún var að sögn deild­ar­stjóra deild­ar­innar, Sól­veigar Sverr­is­dóttur, ein­stök í heim­inum og virð­ist hafa sannað gildi sitt, því með henni hafi verið komið í veg fyrir að veikt fólk kæmi á bráða­mót­tökur og smit­aði þar út frá sér. Í gegnum dag­leg sím­töl mátu hjúkr­un­ar­fræð­ingar og aðrir sem sinntu úthring­ing­unum hverjir væru veik­astir og þyrftu á skoðun læknis að halda. Þeir gátu, að höfðu sam­ráði við lækni, kallað sjúk­ling­ana inn til skoð­unar í Birki­borg, sem er skrif­stofu­hús­næði Land­spít­al­ans sem var á fáeinum dögum breytt í göngu­geild, eða sent þá bráð­veika á bráða­mót­töku. Þegar mest var voru um fjöru­tíu manns í úthring­ing­unum, þar af sextán hjúkr­un­ar­fræð­ingar. Und­an­farna daga hafa um það bil fjöru­tíu sjúk­lingar verið útskrif­aðir á degi hverjum og þeim fækkar því hratt sem eru á úthringilista deild­ar­innar. Smám saman er starfs­fólkið líka farið að tín­ast í sín hefð­bundnu störf, þó að ekki standi til að loka deild­inni enn um sinn. Vertíðin er að klár­ast en starfs­fólkið er til­búið fyrir þá næstu, þegar og ef hún kemur. 

Engin landamæri lengur

HelgaÞegar hún byrj­aði að hringja í smit­aða voru þeir um 60 á list­anum en þeim fjölg­aði hratt. Þegar mest lét voru þeir 1.100 tals­ins.

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir Helga Eiríks­dóttir, Bjartey Ingi­bergs­dóttir, Eyrún Ósk Guð­jóns­dóttir og Edda Jóna Jón­as­dóttir voru í hópi fyrstu starfs­manna COVID-göngu­deild­ar­innar. Þær komu úr ólíkum áttum á spít­al­anum þar sem þær sinntu fjöl­breyttum störfum; Helga og Eyrún af göngu­deild skurð­lækn­inga, Bjartey af smit­sjúk­dóma­deild og Edda Jóna af almennri göngu­deild á Land­spít­al­anum og á sjúkra­hót­el­inu á Hring­braut. „Það varð strax þannig að það eru engin landa­mæri lengur. Við erum bara öll saman í þessu,“ segir Helga, sem var ein þeirra fyrstu sem byrj­aði að vinna með lista smit­aðra. „Þegar við vorum fengnar þarna inn voru um 60 manns á list­anum, en þeir voru um 1.100 þegar mest var. Okkur gekk fyrst hægt að vinna okkur niður hann því það vant­aði skipu­lag. En það var fljótt að breyt­ast, enda áttum við frá­bæra sam­vinnu við tölvu­deild­ina. Fljót­lega komst skipu­lag á list­ann, við gátum flokkað sjúk­linga eftir alvar­leika og fylgst betur með þeim sem voru veikir, sigtað þá út og haft alltaf sam­band við þá fyrst á dag­inn. Þegar Birki­borg var svo opnuð var frá­bært að geta sent sjúk­linga með slæm ein­kenni þangað.“

Undir þetta tekur Eyrún, sem var upp­haf­lega í því að hringja út en fór svo í að taka á móti sjúk­lingum sem komu í Birki­borg til nán­ari skoð­unar. „Ég var í því að hringja út strax frá byrjun og sá hvernig það urðu úrbætur á hverjum degi. Svo hætti ég að hringja, en fór að heim­sækja þær viku seinna og sá þá hvað kerfið var orðið ótrú­lega vel skipu­lagt. Svona þró­að­ist þetta hratt.“

„Allir stukku á lest­ina, eftir því sem þörfin skap­að­ist“ 

Hún segir alla hafa unnið þétt og náið saman og orðin „það er ekki hægt“ hafi allt í einu verið þurrkuð úr orða­forða starfs­fólks. „Það var ótrú­lega gaman að sjá hvað sam­vinnan getur gengið vel fyrir sig þegar þörf er á.“ 

Þær segja allar að það hafi skipt sköpum að allir voru til­búnir að leggja sitt af mörkum og hjálp­ast að. „Þetta var pínu­lítið verk­efni í byrjun en allt í einu var komið heilt teymi í úthring­ingar og heil göngu­deild sprottin upp. Þetta bara vatt upp á sig þegar allir unnu sem einn maður,“ segir Bjartey. „Að lokum vorum við komin með alls konar verk­færi frá fólki úr öllum áttum og stéttum. Allir komu þarna að með sína sér­þekk­ingu til að gera þetta allt sem auð­veld­ast fyrir þá sem höfðu smit­ast. Þarna voru að koma ljós­mæður að sinna COVID-smit­uðum ófrískum konum, til­búnar að klæða sig í galla og fara þarna inn, til að draga úr kvíða þeirra og áhyggjum. Og allt í einu spratt upp geð­þjón­ustuteymi fyrir COVID-dsjúk­linga. Allir stukku á lest­ina, eftir því sem þörfin skap­að­ist. Það var alltaf ein­hver til­bú­inn að taka bolt­ann.“ 

„Í mér slær smithjarta“

BjarteyVenju­lega vinnur hún á göngu­deild smit­sjúk­dóma og er því ein þeirra sem er vön því að klæð­ast hlífð­ar­bún­aði í vinn­unni.

Af hjúkr­un­ar­fræð­ing­unum fjórum er aðeins Bjartey vön því að klæð­ast hlífð­ar­bún­ingi frá toppi til táar, líkt og þau sem sinna COVID-sjúk­lingum þurfa að gera. Hún vinnur dags­dag­lega á göngu­deild smit­sjúk­dóma þar sem notkun slíkra hlífð­ar­bún­inga er almenn. „Í mér slær ein­hvers konar smit­hjarta,“ segir hún um leið og hún útskýrir að það sé hennar drauma­staða að vinna á smit­sjúk­dóma­deild. „Við vinnum náið með smit­sjúk­dóma­lækn­unum, sem voru snemma mjög invol­veraðir í COVID-málin, svo maður dróst fljótt inn í þetta og varð spenntur að geta hjálpað til.“

Fyrir aðra var þessi vinna langt frá því sem þær áttu að venj­ast, svo sem eins og Eyrún sem er sér­hæfð í að veita sára­með­ferð, sem hún hefur gert í mörg ár. „Það sem ég hef verið að gera núna síð­ustu vikur er allt annað en ég er vön að gera og í raun alveg ótrú­lega ólíkt,“ segir hún. 

Kvíði sjúklinga áberandi

Allar urðu þær varar við að margir sjúk­ling­anna væru hræddir og kvíðnir. Það var því mikil kúnst fyrir þær að sýna þá hlýju og stuðn­ing sem margir þurftu sann­ar­lega á að halda í ein­angr­un­inni, ýmist í gegnum sím­töl eða hlífð­ar­bún­inga. „Það er ótrú­lega skrýtið að mæta fólki í svona galla. Fólk sér ekk­ert nema augun í manni. Það er erfitt að sýna hlýju og sam­kennd í gegnum allan þennan bún­ing,“ segir Bjartey og það sé snúið, því fólkið er oft einmitt á við­kvæmum stað og þarf á mann­legri nánd að halda. „Maður velur í stað­inn vel hvernig maður orðar hlut­ina. Þetta hefur verið áskorun en maður lærði á þessu að óyrt sam­skipti eru mun mik­il­væg­ari en maður hafði áttað sig á. Tón­teg­undin þín, hvernig þú spyrð spurn­ing­anna, hvernig þú nálg­ast við­kom­andi sem ein­stak­ling en ekki sem sjúk­ling, allt þetta skiptir máli. Þú þarft að reyna að létta and­rúms­loftið og láta fólk finna að það sé vel­komið þó að aðstæð­urnar séu kannski kulda­legar, enda var þeim riggað upp á fjórum dögum.“

Vinnu­klæðn­að­ur­inn Það er kúnst að sýna fólki hlýju í gegnum bún­ing­inn en lærist með tím­anum að sögn hjúkr­un­ar­fræð­ing­anna.

Helga segir svip­aða sögu um hjúkrun í gegnum síma. Það sé skrýtið að sinna henni en venj­ist þó furðu­fljótt. Þær segj­ast einnig hafa fundið vel fyrir þakk­læti sjúk­ling­anna, þegar þeir fundu fyrir því að verið væri að fylgja þeim vel eftir, halda utan um þá í þessum óþægi­legu aðstæðum. 

 „Það er ótrú­lega skrýtið að mæta fólki í svona galla“

„Þetta eru skrýtin ein­kenni sem flestir eru óvanir, þetta eru engin venju­leg flensu­ein­kenni. Það gerir fólk kvíðið og oft fær fólk líka lík­am­leg ein­kenni eins og and­þyngsl af kvíð­anum, sem það skrifar jafn­vel á sjúk­dóm­inn. Þá er gott að geta sent það niður á Birki­borg til skoð­unar. Oft minnka and­þyngslin strax við það,“ segir Helga. 

Sum símtöl reyndu á 

Edda Jóna Hún nálg­ast sím­töl við smit­aða eins og sam­töl við vin og gefur sér nógan tíma.

Raunar segja þær reynslu síð­ustu vikna sýna að hug­ræni þátt­ur­inn vegi þyngra en þau höfðu gert ráð fyrir í upp­hafi. Því hefðu margir sjúk­lingar lýst. Meðal ann­ars þess vegna hafi verið lagt upp úr því að hafa engin tíma­mörk á sím­töl­unum heldur að gefa sér tíma til að aðstoða fólk við að takast á við kvíða, hræðslu, ein­man­a­kennd og óör­yggi. Edda Jóna seg­ist nálg­ast verk­efnið eins og hún væri að eiga sam­tal við góðan vin. „Ég spyr fólk hvort það nái að hreyfa sig, hvort það fari á fætur, hvað það sé að lesa eða horfa á. Í gegnum þessar spurn­ingar kemur kannski í ljós að við­kom­andi eirir ekki við neitt, sem gefur til kynna að hann sé kvíð­inn. Það þýðir hins vegar lítið að spyrja beint út í kvíð­ann. Fólk er oft mjög þakk­látt þessum sím­tölum, sumt þeirra talar og talar. Við reynum líka að vera hress, pepp­andi og styðj­andi.“

Stundum segir hún sím­tölin hafa verið löng og reynt á. Erfitt hafi til að mynda verið að tala við fólk sem eigi veika aðstand­endur. „Það fólk er dap­urt, því líður eins og það sé ekki að sinna fólk­inu sínu nægi­lega vel. Ein konan sem ég tal­aði við átti for­eldri sem lést um pásk­ana og auð­vitað reynd­ist það henni erfitt að geta ekki verið hjá því á loka­stund­inni og geta kvatt það, sýnt þakk­læti og vænt­um­þykju á kveðju­stund­inni. Þá áttum við sam­tal um hvernig útför­inni yrði háttað. Þannig fannst mér ég geta stutt hana og ég gat líka vísað henni áfram til geð­þjón­ustuteym­is­ins sem sinnir sálu­sorg. Það er mik­il­vægt að unnið sé úr þess­ari reynslu, svo hún lendi ekki í bak­pok­anum og fest­ist þar.“

Sumir tjá vanmátt og hræðslu með reiði

Það hefur líka komið fyrir að sjúk­lingar láti van­líðan sína bitna á hjúkr­un­ar­fræð­ing­unum í sím­anum. Edda Jóna man sér­stak­lega eftir einu skipti, þar sem ein­stak­lingur var hvass og reiður í sím­ann yfir þeim hömlum sem ein­angr­unin sem hann þurfti að sæta fólu í sér. „Hann lét í raun og veru vaða í sím­ann. En ég náði engu að síður að ræða við hann, útskýra það fyrir honum í róleg­heitum hvað þetta gæti verið alvar­legur sjúk­dómur og hversu mikil óvissa ríkti enn með hann. Á end­anum náðum við góðu sam­tali og hann baðst afsök­unar á því hvað hann var þver í byrjun sím­tals­ins. Þetta er bara dæmi um hvernig mörgu fólki leið og fól í sér áskorun fyrir mig. Ég gat sett niður línur með honum, um hreyf­ingu og matar­æði og kennt honum önd­unaræf­ingar,“ segir Edda og nefnir þetta sem dæmi um hversu marg­vís­leg sím­tölin geti verið. „Það skiptir máli að hlusta og geta pikkað út það sem þarf að taka á hjá við­kom­andi.“ 

Gott að finna meðbyrinn frá samfélaginu

Þær eru sam­mála um að gott hafi verið að finna með­byr­inn og traustið frá sam­fé­lag­inu. Gjafir hafi til að mynda stöðugt borist deild­inni sem hafi verið vel metnar og flug­vélin sem mynd­aði hjarta yfir höf­uð­borg­inni heil­brigð­is­starfs­fólki til heið­urs hafi glatt. „Við hjónin heyrðum vel í flug­vél­inni og vorum að velta því fyrir okkur hvað væri að ger­ast. Ég átt­aði mig svo á því að þetta hefði verið hjarta til okkar og mér fannst það æðis­legt,“ segir Helga. „Það er frá­bært að finna þennan með­byr núna, því fólk er nú ekki alltaf ánægt með heil­brigð­is­kerfið. Það lítur út fyrir að þetta sé að ganga vel hjá okkur í sam­an­burði við aðra. Auðvitað á eftir að vinna úr öllum þessum gögnum en það verður mjög spenn­andi að sjá hvað kemur út úr því. Við erum alla vega búin að gera okkar besta.“

Þegar hún lítur til baka finnst henni standa upp úr gleðin þegar hægt var að til­kynna fólki að það mætti útskrif­ast. „Að sjá fólk útskrif­ast af gjör­gæsl­unni og koma aftur á list­ann hjá okkur var ynd­is­legt. Og við höfum átt margar ánægju­legar stundir við að telja niður með fólki, eftir að það verður ein­kenna­laust, og geta svo loks til­kynnt því að nú fari að koma að því að það megi útskrif­ast.“

Sveigjanleikinn kom skemmtilega á óvart 

EyrúnÞað sem kom Eyrúnu skemmti­lega á óvart í þessu ferli var hversu hratt spít­al­inn reynd­ist geta brugð­ist við vánni.

Það sem kom Eyrúnu skemmti­lega á óvart í þessu ferli var hversu hratt spít­al­inn reynd­ist geta brugð­ist við vánni, en hraði og sveigj­an­leiki hefur ekki verið talið til hans helstu kosta, hingað til. „Land­spít­al­inn er mikið bákn og alltaf þurfa breyt­ingar að vera vel ígrund­aðar. Núna þurfti hins vegar að bregð­ast hratt við og þá var það bara gert og allt virð­ist hafa gengið upp. Það finnst mér það merki­leg­asta í þessu öllu saman. Allir voru til­búnir að gera það sem þeir þurftu að gera,“ segir hún og rifjar upp fyrstu vakt­ina á COVID-göngu­deild­inni, þar sem hún drakk morg­un­kaffið við hlið iðn­að­ar­mann­anna, sem voru að ljúka við að breyta skrif­stofu­hús­næð­inu í göngu­deild. „Það er gott að vita af þessum sveigj­an­leika. Þó að það sé ekki sjálf­gefið að allt verði svona sveigj­an­legt í fram­hald­inu er mjög gott að vita að það er hægt.“ 

Hún hafði líka á til­finn­ing­unni að öllum starfs­mönnum spít­al­ans, sama hvaða starfi þeir gegndu, hafi fund­ist sjálf­sagt mál að leggja sig alla í verk­efnið. „Stundum finnst mér fjöl­miðlar leggja áherslu á písl­ar­vottaí­mynd heil­brigð­is­starfs­fólks, en ég held að það sjálft sjái sig ekki þannig. Þetta var bara stórt verk­efni sem við stóðum frammi fyrir, fórum í og kláruðum. Við vor­kenndum okkur ekki fyrir það.“

Eins og að vera á vertíð

Bjartey er frá Vest­manna­eyjum og finnst eðli­leg­ast að líkja upp­lifun síð­ustu vikna við að vera á ver­tíð. „Það stendur upp úr hvað náð­ist góð stemn­ing hjá starfs­fólk­inu, þrátt fyrir að þetta séu skrýtnir tímar, starfið krefj­andi og allir pínu­lítið skelk­aðir og hræddir við að verða útsettir sjálfir. Allt í einu varstu stödd í ein­hverju húsi með fullt af fólki sem þú ert ekki vön að vinna með. Það hefur verið lær­dóms­ríkt, skemmti­legt og spenn­andi. Mér finnst ég hafa fengið nýja sýn á alls konar hluti.“

Hún er fjöl­skyldu­kona með barn á leik­skóla og segir suma í kringum hana ekki hafa verið alls kostar sátta við að hún væri að útsetja sig fyrir smiti með því að vinna á COVID-19-deild­inni, þó að flestir hafi stutt hana í þeirri ákvörðun. Sjálf hafi hún stundum verið smeyk við að smit­ast. „Ég vakn­aði oft á morgn­ana, fann að ég var eitt­hvað þurr í háls­inum og hugs­aði: Ónei, ég er komin með COVID, en svo var það ekki neitt. Ég var líka oft hrædd við að útsetja ein­hvern annan. Svo hefur þetta örugg­lega líka verið áskorun fyrir fjöl­skyldu­með­limi margra starfs­manna. Það fannst ekki öllum geggjuð hug­mynd að ást­vinir þeirra færu að vinna þarna. En auð­vitað fer maður, ef maður getur hjálpað.“

Stéttin hefur styrkst

Edda Jóna telur að styrkur stéttar hjúkr­un­ar­fræð­inga hafi komið í ljós í þessu stóra verk­efni, auk þess sem inn­viðir og sam­staða allra stétta innan spít­al­ans hafi auk­ist.   hafi styrkst við að takast á við þetta stóra verk­efni. „Við fórum og förum í gegnum þetta saman og hjálpum hvert öðru. Ég er viss um að það hefur styrkt inn­við­ina og sam­stöðu á spít­al­anum og sýnt okkur hvers megnug við erum þegar við leggj­umst öll á árarnar.“ 

Hún vonar að spít­al­inn og starfs­fólk hans hafi nú unnið sér inn meiri jákvæðni. „Ég er búin að vinna svo lengi í heil­brigð­is­kerf­inu og finnst satt að segja þessi nei­kvæða umræða vera svo­lítið þreytt. Það er margt gott sem á sér stað innan spít­al­ans. Nú er ríkj­andi umræða um hvað gengur vel og allir standi sig vel, sem er gott, því það er fullt af fólki sem vinnur gríð­ar­lega gott starf inni á spít­öl­unum og er ánægt í vinn­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár