Vorið er handan við hornið, segir veðurfræðingur

Eiríkur Örn Jóhann­es­son veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands segir enga ástæðu til að örvænta þó að snjóað hafi víða um land í morgun; vorið sé rétt handan við hornið. Hann segir að búast megi við að fremur kalt verði í veðri um land allt fram á laug­ar­dag, en það taki að hlýna eftir það.

Brimbrettafólk
Brim­bretta­fólk Feðgar fylgj­ast með brim­bretta­köppum við Gróttu á Sel­tjarn­ar­nesi í kvöld. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Býsna jóla­legt er um að lit­ast víða á land­inu nú þegar vika er liðin af apríl og páskar í nánd og tals­vert hefur snjóað það sem af er degi. Eiríkur Örn Jóhann­es­son veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands segir enga ástæðu til að örvænta um að betri tíðar sé ekki að vænta; vorið sé rétt handan við hornið.

„Að það sé kuldi og snjór í apríl er ekk­ert óal­gengt. Páska­hretin eru vel þekkt. En sólin er farin að hita og kulda­tíma­bilin farin að stytt­ast. Við förum að finna fyrir dæg­ur­sveiflu, einkum sunn­an­lands,“ segir Eiríkur.

„Páska­veðrið lítur þokka­lega út. Síðan mun hlýna enn meira í næstu viku“

Hann segir að búast megi við að fremur kalt verði í veðri um land allt fram á laug­ar­dag. „Við búumst við að það fari að hlýna aftur eftir það. Það er útlit fyrir að það muni ger­ast á öllu land­inu, fyrst sunn­an­lands, og við fáum von­andi að fá að sjá vorið handan við hornið. Líklega hlýnar með ein­hverri úrkomu, en páska­veðrið lítur engu að síður þokka­lega út. Síðan mun hlýna enn meira í næstu viku.“

Fjöl­skylda við Bakka­tjörnGóðviðri var á Sel­tjarn­ar­nesi í kvöld.
Brim­bretta­mennTveir reyndu að stunda brim­bretti við Gróttu.
Gróttu­vitiFólk naut þess að láta kvöldsól­ar­geisl­ana leika um sig nærri Gróttu­vita.

Mars var kaldur og vindasamur

Á vef Veð­ur­stofu Ísland er yfir­lit um tíð­ar­far í nýliðnum mars­mán­uði. Þar segir að mars hafi verið kaldur og hiti undir með­al­lagi síð­ustu tíu ára á land­inu öllu. Vind­hraði hafi aftur á móti verið vel yfir með­al­lagi, ill­viðri tíð og tölu­verðar trufl­anir á sam­göngum. Afar snjó­þungt hafi verið, einkum á Vest­fjörðum og um landið norðan- og aust­an­vert og á Akureyri hafi verið alhvítt alla daga nema síð­asta dag mán­að­ar­ins, þá hafi verið „flekk­ótt“. Alhvítir dagar í Reykja­vík hafi verið 16, sem var fjórum dögum fleiri en að með­al­tali.

Spurður hvernig veðrið, það sem af apríl, hafi verið sam­an­borið við apr­íl­mán­uði und­an­far­inna ára segir Eiríkur að það hafi verið heldur hefð­bundið. „Það hafa verið bæði hlýir og kaldir dagar það sem af er apríl, eins og gjarnan er og þessi vika segir lítið til um hvernig veðrið verði það sem eftir lifir mán­aðar. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár