Lýðræðið í öndunarvél

Rík­is­stjórnir um allan heim taka til sín aukin völd í skjóli COVID-19 far­ald­urs­ins.

Lýðræðið í öndunarvél
Stjórnar með til­skip­unum Victor Orban, for­seti Ung­verja­lands, hefur ótíma­bundið tekið til sín öll völd í COVID-19 far­aldr­inum. Mynd: Attila KISBENEDEK / AFP

Með einni atkvæða­greiðslu á þingi var lýð­ræði afnumið í Ung­verja­landi á dög­unum. Blaða­menn um allan heim sitja í fang­elsi fyrir að segja fréttir af heims­far­aldr­inum. Víða í Evrópu fylgj­ast lög­regla, her­menn og drónar með því að almenn­ingur virði sam­komu­bann og far­sí­mat­urnar eru not­aðir til að fylgj­ast með manna­ferðum í sama til­gangi. Kór­óna­veiran hefur reynst kjörið tæki­færi fyrir ráða­menn að auka völd sín og erfitt eða ómögu­legt verður að aft­ur­kalla þau völd þegar far­ald­ur­inn er yfir­stað­inn.

Rík­is­stjórn Viktors Orban í Ung­verja­landi vakti athygli fyrir hversu grímu­laust hún gekk fram á þingi lands­ins til að sölsa undir sig öll völd í nafni sótt­varna. Orban er nú í raun ein­ráður í land­inu og stjórnar með til­skip­unum, hann hefur því völd til að fang­elsa stjórn­ar­and­stæð­inga, blaða­menn og hvern þann sem stendur í vegi fyrir honum. For­set­inn hefur nú sjálf­skip­aðar heim­ildir til að senda fólk í fang­elsi í fimm ár fyrir að „dreifa röngum upp­lýs­ingum“ og allt að átta ár fyrir að rjúfa útgöngu­bann.

Stjórnað með tilskipunum í Serbíu

For­set­inn tekur völdinAleksandar Vucic, for­seti Serbíu, lýsti yfir neyð­ar­á­standi 15. mars og sendi her­inn að sjúkra­húsum.

Í Serbíu er einnig búið að senda þing­menn í frí og for­set­inn, Aleksandar Vucic, hefur gefið út fjölda til­skip­ana sem stjórn­ar­and­stæð­ingar segja að brjóti gegn stjórn­ar­skrá. Hann hefur meðal ann­ars bannað öllu fólki yfir 65 ára aldri að yfir­gefa heim­ili sín. 

For­set­inn á aðeins að gegna form­legu hlut­verki í stjórn­skipan Serbíu, svipað og for­seti Íslands, en hefur nú tekið öll völd í sínar hendur án aðkomu þings eða rík­is­stjórnar. Rík­is­fjöl­miðlar birta myndir af ákaf­lega skugga­legum vöru­skemmum í Belgrad þar sem sýktir eru hýstir saman eins og í fanga­búðum. Vucic for­seti segir að mynd­irnar séu birtar í for­varn­ar­skyni, þær eigi að vekja óhug og fá fólk til að hlýða til­skip­unum stjórn­valda í einu og öllu.

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, for­stjóri Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu, er meðal margra sem hafa lýst yfir áhyggjum af þess­ari þróun. Hún sagði í nýlegu við­tali við frétta­stofu Associated Press að þegar neyð­ar­lög tækju gildi væri mik­il­vægt að þau tækju mið af aðstæðum og væru í sam­ræmi við þarfir til aðgerða. Amnesty International tekur í sama streng í yfir­lýs­ingu þar sem segir að fylgj­ast verði grannt með því hversu lengi neyð­ar­lög eigi að vera í gildi og hversu víð­tæk þau séu.

Fresta réttvísinni í nafni sóttvarna

Vanda­málið nær að sjálf­sögðu langt út fyrir landa­mæri Evrópu. Ísra­elska rík­is­stjórnin hefur, í krafti neyð­ar­að­gerða vegna kór­óna­veirunnar, tekið sér auknar heim­ildir til að njósna um almenn­ing og stöðva umfjöllun dóm­stóla um ákveðin mál. Það vill svo til að þessi lög henta mjög vel fyrir Benjamin Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra, sem hefur nú stöðvað dóms­mál á hendur sér um óákveð­inn tíma og kemst þannig undan því að svara fyrir spill­ing­ar­á­kæru, allt í nafni sótt­varna.

Á sama tíma er virk umræða á sam­fé­lags­miðlum og víðar um hvort aukin alræð­is­stefna sé jafn­vel æski­leg á þessum tímum. Margir benda á skjót við­brögð kín­verskra yfir­valda, sem þurftu ekki að lúta neinum lýð­ræð­is­lög­málum og virð­ast hafa náð að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar með áhrifa­rík­ari hætti en t.d. í Banda­ríkj­unum. Kín­verskir ráða­menn þurftu ekki að ráð­færa sig við neitt þing og höfðu þegar öll þau völd sem menn hafa nú tekið sér í Ung­verja­landi og víðar. Fyrir vikið gefa sér margir að árang­ur­inn sé stjórn­kerf­inu að þakka. 

„Takk, bróðir Jinping“Myndin er tekin á götum Belgrad, höf­uð­borgar Serbíu, fyrir nokkrum dögum. Aug­lýs­ingin er keypt af dag­blaði sem styður ríkj­andi vald­hafa í Serbíu. Forseti Serbíu kyssti kín­verska fán­ann. Ástæðan er að Kín­verjar hafa gefið grímur til Evr­ópu­ríkja og þannig stillt sér fram sem hetjum í bar­átt­unni gegn kór­ónafar­aldr­inum, sem átti upp­runa sinn í Wuhan í Kína.

Aðeins undir Xi Jinping

Kínversk stjórn­völd hafa svo sann­ar­lega haldið þeim hug­myndum á lofti í yfir­lýs­ingum sínum og nýverið sagði utan­rík­is­ráð­herra lands­ins að: „Aðeins í ríki undir stjórn leið­tog­ans Xi Jinping er mögu­legt að inn­leiða svo öfl­ugar ráð­staf­anir á svo skömmum tíma og stöðva þannig far­aldur í fæð­ingu.“

„Aðeins í ríki undir stjórn leið­tog­ans Xi Jinping er mögu­legt að inn­leiða svo öfl­ugar ráð­staf­anir“

Það er þó að því gefnu að hægt sé að reiða sig á opin­berar tölur frá ríkjum á borð við Kína, sem er allt annað en sjálf­gefið. Ætla má að tölu­vert fleiri hafi lát­ist af völdum COVID-19 í Kína en upp er gefið, en það sama gæti raunar átt við um flest ríki. Í Frakk­landi og öðrum Evr­ópu­ríkjum hefur meðal ann­ars borið á því að dán­ar­vott­orð fólks á hjúkr­un­ar­heim­ilum séu vit­laust skráð og vanti því inn í heild­ar­töl­urnar. 

Alræð­is­stjórnir eru ekki einar um að reyna að fegra ástandið og ýkja ágæti eigin við­bragða, vart þarf að nefna Banda­ríkja­for­seta í því sam­hengi en hann hefur haldið væg­ast sagt skraut­lega blaða­manna­fundi um ástandið nýverið. Kvartaði hann meðal ann­ars undan því að þurfa að taka við sýktum Banda­ríkja­mönnum aftur heim, þar sem það væri ekki rík­is­stjórn sinni að kenna að þeir hefðu sýkst í útlöndum og helst ættu þessir rík­is­borg­arar að halda sig fjarri heima­byggð til að töl­fræðin liti betur út.

Rússar skjóta á lýðræðisríki

Í Rúss­landi leikur Pútín sama leik og áður en hann virð­ist ekki hafa hug­mynda­flug umfram það að benda á veik­leika Banda­ríkja­stjórnar til að drepa á dreif spurn­ingum um eigin alræð­istil­burði. Rík­is­fjöl­mið­ill­inn Russia Today fer mik­inn á hverjum degi í umfjöllun sinni um skert frelsi á Vest­ur­löndum vegna kór­óna­veirunnar og tónn­inn er alltaf sá sami. „Sko, gott á ykkur, nú sjáið þið mik­il­vægi þess að gefa skít í lýð­ræði þegar mikið ber við.“

Það var ekki laust við móð­ur­sýki í frétta­flutn­ingi Russia Today um að yfir­völd í breskum smábæ væru að nota dróna með hljóð­upp­tökum til að vara fólk við því að koma saman á almanna­færi. „Orwell mættur!“ stóð í fyr­ir­sögnum og frétta­skýrendur þeirra veltu vöngum yfir því hvort rit­höf­und­ur­inn víð­frægi sneri sér ekki við í gröf­inni að sjá heima­landið taka upp alræð­istil­burði verri en Sov­ét­ríkin hefðu nokkru sinni gerst sek um. Ef drónar eru farnir að ávarpa fólk á almanna­færi er það á ein­hvern hátt talið alvar­legra en að hrúga blaða­mönnum í fang­elsi fyrir að vitna í opin­bera töl­fræði eins og gerst hefur í Rúss­landi og víðar.

Samtökin Blaða­menn án landamæra standa í ströngu þessa dag­ana við að skrá­setja árásir á stétt­ina sem eiga sér stað um allan heim. Allt frá Kanada til Mjanmar ber­ast fregnir af því að blaða­menn séu ofsóttir fyrir að segja sann­leik­ann um ástandið sem nú ríkir vegna heims­far­ald­urs­ins. Tján­ing­ar­frelsið á undir högg að sækja en um leið mis­nota margir það sama frelsi til að dreifa hræðslu­á­róðri og mis­vísandi upp­lýs­ingum um veiruna.

Hættan er sú að óskýr mynd af stöð­unni á heims­vísu hefti starf heil­brigð­is­yf­ir­valda og þá gildir einu hvort um er að ræða fals­fréttir ein­hverra ein­stakra hakk­ara á sam­fé­lags­miðlum eða kerf­is­bundnar ofsóknir stjórn­valda á hendur fjöl­miðlum. Allt skapar þetta óvissu og hræðslan við að ekki sé hægt að treysta opin­berum upp­lýs­ingum frá stórum hluta heims­ins er áþreif­an­legur hluti vanda­máls­ins sem við stöndum öll frammi fyrir þessa stund­ina.

Heima­gerð vörnÍbúi í Manila, höf­uð­borg Fil­ipps­eyja, gengur um með vatns­brúsa sem hann hefur aðlagað að sjálfum sér til að nota í varn­ar­skyni gegn kór­óna­veirunni.

Krísan nýtt til valdatöku

Sagt er að það sé algilt í stjórn­málum að aldrei eigi að láta góða krísu fara til spillis. Með því er átt við að í hvert sinn sem almenn­ingur stendur frammi fyrir gríð­ar­stóru vanda­máli er kjörið tæki­færi til að gera eitt­hvað sví­virði­legt á bak­við tjöldin þegar eng­inn er að fylgj­ast með. Eða bein­línis rétt­læta allar gjörðir sínar með til­vísun í neyð sem þurfi að yfir­stíga með óræðum hætti um óákveð­inn tíma.

Þetta er nú að ger­ast um allan heim sam­tímis og ómögu­legt er að gera sér grein fyrir hver langvar­andi áhrifin verða á póli­tík og lýð­ræði. Sem dæmi má nefna yfir­ráða­svæði Indverja í Kasmír en þangað er nú verið að flytja Hindúa í massa­vís til að breyta fram­tíð­ar­skipt­ingu lands­ins með hlut­falls­legri fækkun múslima – ind­verska rík­is­stjórnin til­kynnti þetta á dög­unum en ekki nokkur maður tók eftir því. Senni­lega væri þetta fyr­ir­ferð­ar­mikil frétt með for­dæm­ingum á báða bóga og harð­orðum yfir­lýs­ingum frá Banda­ríkja­stjórn og Evr­ópu­sam­band­inu – ef ekki væri fyrir kór­óna­veiruna. Heim­ur­inn er ein­fald­lega upp­tek­inn.

Tyrkland, Fil­ipps­eyjar, Túrk­menistan; alls staðar að ber­ast svip­aðar fréttir af harð­stjórum sem eru að nota tæki­færið til að sölsa undir sig enn meiri völd, breyta inn­an­rík­is­póli­tík til fram­búðar og fang­elsa and­stæð­inga sína. Enginn veit enn hvar þetta endar en nú þegar er ljóst að póli­tískt lands­lag heims­ins er að taka meiri og hrað­ari breyt­ingum þessa dag­ana en nokkurn hefði getað órað fyrir.

Engin rík­is­stjórn vill gefa til baka völd eða fjár­magn sem hún hefur orðið sér úti um og það eina sem getur á end­anum knúið slíkt fram er vilji kjós­enda. Því meira sem grafið er undan stoðum lýð­ræðis, og því lengur sem núver­andi neyð­ar­á­stand varir, því erf­ið­ara verður að end­ur­heimta það frelsi sem nú er að renna okkur úr greipum á hverjum degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár