Í skoðun að framleiða pinna hér á landi

Heil­brigð­is­yf­ir­völd leita allra leiða til að fá fleiri sýna­tökupinna til grein­ingar á COVID-19 veirunni og í skoðun er að fram­leiða þá inn­an­lands. 701 barn hefur verið ski­mað og af þeim reynd­ust þrjú bera veiruna.

Í skoðun að framleiða pinna hér á landi
Á fundi Almanna­varna Frá vinstri: Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, Alma D. Möller land­læknir og Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa nú allar klær úti við að reyna að fá fleiri sýna­tökupinna til grein­ingar á COVID-19 og í skoðun er að fram­leiða þá inn­an­lands. Þetta  sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á dag­legum upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna sem hald­inn var klukkan 14 í dag. 701 barn hefur verið ski­mað og af þeim reynd­ust þrjú bera veiruna. 

Hann sagði að liggja myndi fyrir á næstu dögum hvort far­ald­ur­inn væri í miklum eða litlum vexti, en nú hafa 588 smit verið stað­fest, þar af eru 13 á sjúkra­húsi sam­kvæmt vef­síð­unni Covid.is. Skimanir sýndu að smit­hætta til barna yngri en 10 ára væri óveru­leg. Af þeim 268 börnum sem skimuð hefðu verið á vegum sýkla- og veiru­fræði­deildar Land­spít­ala hefðu þrjú börn greinst með veiruna.

433 börn hefðu verið skimuð hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og ekk­ert þeirra hefði reynst vera með veiruna. „Það er mat okkar á þeim aðgerðum sem við höfum verið að grípa til er að við séum á réttri leið. Við erum að grípa til réttra aðgerða og stoppa smit. Dagleg með­al­tals­aukn­ing sýk­inga er einna lægst hér á landi, sé miðað við nágranna­löndin,“ sagði Þórólfur.

„Ég held að við getum full­yrt út frá þessum tölum að það er ekki sjá­an­legt veru­legt smit meðal barna í þessu sam­fé­lagi,“ sagði Þórólfur. Umræða um mikið smit hjá börnum og smit­hættu í grunn­skólum hefði því ekki raun­gerst þótt svo ekki væri hægt að segja til um hvað síðar yrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár