Fastur í sóttkví á tíu ára afmælisdaginn og fékk óvænta kveðju frá Daða Frey

„Ég mun alltaf muna eftir þessum afmæl­is­degi,“ segir Elmar Eyþórs­son, tíu ára nem­andi við Mela­skóla sem gat ekki haldið upp á afmælið sitt um helg­ina því hann er í sótt­kví með móður sinni, en fékk óvænt sím­tal frá átrún­að­ar­goð­inu, Daða Frey.

Elmar Eyþórs­son nem­andi í Mela­skóla er mikið afmæl­is­barn og fagn­aði tíu ára afmæli um helg­ina. Afmæl­is­veislan var þó ekk­ert í lík­ingu við það sem hann hafði séð fyrir, þegar hann varði þremur vikum í að æfa söng- og dans­at­riði fyrir gest­ina. Þar sem Elmar situr fastur í sótt­kví með móður sinni gat hann nefni­lega ekki boðið neinum gestum, hvorki vinum né vanda­mönnum. Hann gat ekki einu sinni knúsað pabba sinn. Það kom því ánægju­lega á óvart þegar Elmar fékk óvænta afmælis­kveðju frá átrún­að­ar­goð­inu, Daða Frey. 

Með mömmu sinni í sóttkví

Elmar og móðir hans, Telma Eir Aðal­steins­dóttir, deila sama afmæl­is­degi og hafa alltaf boðið til veislu í til­efni til dags­ins. Eftir náms­ferð til Spánar var útséð með að Telma gæti tekið þátt í veislu­höld­unum, þar sem hún þurfti að fara bein­ustu leið í sótt­kví við heim­kom­una.

Elmar fékk boð um að vera með henni í sótt­kví eða vera frjáls ferða sinna með föður sínum og halda upp á afmælið sitt með honum. Honum fannst það ekki koma til greina að vera aðskil­inn móður sinni allan þennan tíma og hvað þá á þeirra sam­eig­in­lega afmæli. Það varð því ekk­ert úr veisl­unni, hún verður í það minnsta að bíða betri tíma. 

„Ég hringdi í hann þegar ég var úti og spurði hann hvernig hann vildi hafa þetta, því ég væri að fara í sótt­kví. Við ættum afmæli á þeim tíma og hann gæti haldið upp á það með pabba sínum. Svarið var ein­falt: Við verðum að vera saman á afmæl­is­deg­inum okkar. Ég verð með þér. Hann er auð­vitað bara tíu ára, en við reyndum samt að tryggja að hann væri með­vit­aður um að það væru fleiri val­kostir í stöð­unni,“ segir Telma.

Í gegnum tíð­ina hefur Elmar alltaf verið að gæta þess að hún njóti þess líka að eiga afmæli sama dag og hann, og nú þegar þau voru saman í sótt­kví þá sagð­ist hann ætla að gefa henni heilan hell­ing af knúsum og ham­ingju, fyrst hann kæm­ist ekki út til þess að kaupa handa henni gjöf. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár