Þetta segja þjóðarleiðtogarnir

Margir þjóð­ar­leið­togar nota svip­aða orð­ræðu um kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn og þekk­ist í stríði, aðrir leggja áherslu á sam­stöðu og sam­hug. Sumir þeirra hafa brugðið út af van­anum í sam­skiptum við almenn­ing, meðal þeirra er Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, sem ávarp­aði þýsku þjóð­ina í sjón­varpi á mið­viku­dag­inn, í fyrsta skiptið á 15 ára kansl­ara­tíð hennar.

Þetta segja þjóðarleiðtogarnir

Frakkland

Emmanuel Macron

forseti Frakklands og formaður miðjuflokksins En Marche

„Við eigum í stríði. Óvin­ur­inn er þarna; ósýni­legur og slyngur og hann sækir í sig veðrið. Ég biðla til ykkar um að færa fórnir til að stöðva far­sótt­ina, en þær mega ekki koma niður á við­kvæm­asta hópnum. Enginn Frakki verður lát­inn vera án bjarg­ráða.“


Danmörk

Mette Frederiksen

forsætisráðherra og leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins

„Ef við bregð­umst ekki við núna, þá munum við gjalda fyrir það. Við erum að fara ótroðnar slóðir. Við stöndum í sporum sem ekk­ert okkar hefur verið í áður. Danir sýna stór­kost­lega sam­fé­lags­á­byrgð, þrátt fyrir að það sé ekki auð­velt.“


Spánn

Pedro Sánchez

forsætisráðherra og formaður Sósíalíska verkamannaflokksins

„Við erum í stríði til varnar öllu því sem við höfum hingað til tekið sem sjálf­sögðu. Það versta á eftir að koma, þar sem heil­brigð­is­kerfið verður þanið til hins ítrasta, þegar enn fleiri verða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár