Skelj­ungs­málið ekki enn til lykta leitt Þrátt fyrir að 13 ár séu frá því að Glitnir, þar sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son var ráð­andi eig­andi bank­ans, sölu­tryggði Skeljung fyrir við­skipta­fé­laga hans, Pálma Har­alds­son, þá við­skipti Glitnis með olíu­fé­lagið enn ekki verið tll lykta leidd. Jón Ásgeir sést hér Hér­aðs­dóni Reykja­víkur í Aurum-mál­inu svo­kall­aða þar sem hann var sýkn­aður. Mynd: Styrmir Kári

Eigandi Glitnis sem reis upp og settist í stjórnarformannsstól Skeljungs

Saga Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar fjár­festis teng­ist Skelj­ungi vegna eign­ar­halds fyr­ir­tækja hans á olíu­fé­lag­inu. Jón Ásgeir og Pálmi Har­alds­son, við­skipta­fé­lagi hans, keyptu og seldu Skeljung á milli sín á árunum fyrir hrunið. Afleið­ingaar þeirra við­skipta eru lík­leg til að enda í saka­máli á næstu vikum. Samtímis sest Jón Ásgeir í stól stjórn­ar­for­manns Skelj­ungs.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, einn af þekkt­ari kaup­sýslu­mönnum Íslands á árunum fyrir hrunið 2008, er orð­inn stjórn­ar­for­maður olíu­fé­lags­ins Skelj­ungs tæpum þrettán árum eftir umdeild við­skipti Glitnis banka og við­skipta­fé­laga Jóns Ásgeirs, Pálma Har­alds­sonar, með fyr­ir­tækið.

Á árunum fyrir efna­hags­hrunið áttu félög tengd Jóni Ásgeiri í end­ur­teknum við­skiptum við Pálma Har­alds­son með olíu­fé­lagið. Síðast í gegnum Glitni þar sem bank­inn var milli­ður í sölu olíu­fé­lags­ins og sölu­tryggði það fyrir Pálma upp á 8,7 millj­arða króna. Þetta þýddi að bank­inn þurfti að kaupa Skeljung af Pálma fyrir þetta verð ef eng­inn kaup­andi fynd­ist. Á end­anum varð þetta raunin.

Jón Ásgeir var sagður hafa verið höf­uð­paur­inn innan Glitnis eftir upp­ljóstr­anir um hvernig hann stýrði Glitni á bak við tjöldin. Enda sýndu tölvu­póstar og önnur gögn það óskor­aða vald sem hann hafði yfir banka­stjór­anum, Lárusi Welding. Jón Ásgeir hafði sjálfur  hand­valið Lárus til að taka við af hinum reynslu­meiri Bjarna Ármanns­syni eftir að félög Jóns …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eftirmál bankahrunsins

Dramatísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum
SkýringEftirmál bankahrunsins

Dramat­ísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, er orð­inn að rekstr­ar­stjóra eins öfl­ug­asta fjár­fest­ing­ar­fé­lags lands­ins, Stoða hf. Þar hittir hann fyrir for­stjór­ann Jón Sig­urðs­son sem Lárus segir að hafi verið lyk­il­maður í því að ráða hann til Glitnis þar sem FL Group, sem í dag heitir Stoðir, var stærsti hlut­hafi Glitnis. Báðir urðu þeir lands­þekktir í góð­ær­inu á Íslandi en saga þeirra eftir hrun er afar ólík þar sem Lárus háði bar­áttu í dóms­kerf­inu vegna efna­hags­brota á meðan Jón sigldi lygn­ari sjó.
Lögmannsskrifstofa ráðgjafa stjórnvalda veitti  Lindarhvoli tugmilljóna þjónustu
FréttirEftirmál bankahrunsins

Lög­manns­skrif­stofa ráð­gjafa stjórn­valda veitti Lind­ar­hvoli tug­millj­óna þjón­ustu

Steinar Þór Guð­geirs­son lög­fræð­ingur var skip­aður í skila­nefnd Kaup­þings þegar Fjár­mála­eft­ir­litið tók bank­ann yfir 9. októ­ber 2008. Hann tók við fomennsku í nefnd­inni um hálfum mán­uði síðar og stýrði störfum hennar til árs­loka 2011, eða þar til skila­nefndin var lögð niður og slita­stjórn tók við verk­efnum hennar. Árið 2018 hafði Steinar Þór ríf­lega 1,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun og árið áður...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár