Fréttamál

Eftirmál bankahrunsins

Greinar

Dramatísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum
SkýringEftirmál bankahrunsins

Dramat­ísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, er orð­inn að rekstr­ar­stjóra eins öfl­ug­asta fjár­fest­ing­ar­fé­lags lands­ins, Stoða hf. Þar hittir hann fyrir for­stjór­ann Jón Sig­urðs­son sem Lárus segir að hafi verið lyk­il­maður í því að ráða hann til Glitnis þar sem FL Group, sem í dag heitir Stoðir, var stærsti hlut­hafi Glitnis. Báðir urðu þeir lands­þekktir í góð­ær­inu á Íslandi en saga þeirra eftir hrun er afar ólík þar sem Lárus háði bar­áttu í dóms­kerf­inu vegna efna­hags­brota á meðan Jón sigldi lygn­ari sjó.
Eigandi Glitnis sem reis upp og settist í stjórnarformannsstól Skeljungs
ÚttektEftirmál bankahrunsins

Eigandi Glitnis sem reis upp og sett­ist í stjórn­ar­for­manns­stól Skelj­ungs

Saga Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar fjár­festis teng­ist Skelj­ungi vegna eign­ar­halds fyr­ir­tækja hans á olíu­fé­lag­inu. Jón Ásgeir og Pálmi Har­alds­son, við­skipta­fé­lagi hans, keyptu og seldu Skeljung á milli sín á árunum fyrir hrunið. Afleið­ingaar þeirra við­skipta eru lík­leg til að enda í saka­máli á næstu vikum. Samtímis sest Jón Ásgeir í stól stjórn­ar­for­manns Skelj­ungs.
Lögmannsskrifstofa ráðgjafa stjórnvalda veitti  Lindarhvoli tugmilljóna þjónustu
FréttirEftirmál bankahrunsins

Lög­manns­skrif­stofa ráð­gjafa stjórn­valda veitti Lind­ar­hvoli tug­millj­óna þjón­ustu

Steinar Þór Guð­geirs­son lög­fræð­ingur var skip­aður í skila­nefnd Kaup­þings þegar Fjár­mála­eft­ir­litið tók bank­ann yfir 9. októ­ber 2008. Hann tók við fomennsku í nefnd­inni um hálfum mán­uði síðar og stýrði störfum hennar til árs­loka 2011, eða þar til skila­nefndin var lögð niður og slita­stjórn tók við verk­efnum hennar. Árið 2018 hafði Steinar Þór ríf­lega 1,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun og árið áður...
Laun og bónusar jafngiltu 26 milljónum í mánaðarlaun
FréttirEftirmál bankahrunsins

Laun og bónusar jafn­giltu 26 millj­ónum í mán­að­ar­laun

Óttar Pálsson var for­stjóri Straums-Burða­r­áss árið 2009 þegar til stóð að greiða allt að 10 millj­arða í bónusa hjá fjár­fest­inga­bank­anum. Vegna nei­kvæðrar umræðu þar um var sú ákvörðun dregin til baka og Óttar baðst afsök­unar. Sex árum síðar greiddi ALMC, sem fer með eignir Straums, um 3,4 millj­arða í bónus. Óttar situr í stjórn ALMC.

Mest lesið undanfarið ár