Von á niðurstöðu um hvort ákært verði í Lindsor-málinu næsta vor

Það liðu tæp tólf ár frá því að aflands­fé­lagið Lindsor Holding fékk lán frá Kaup­þingi til að kaupa verð­lítil skulda­bréf þar til að rann­sókn á mál­inu lauk þar í landi. Ákvörðun um hvort fjórir ein­stak­lingar verði ákærðir verður lík­lega tekin í vor.

Dótturbanki Kaupþings í Lúxemborg lék lykilhlutverk í Lindsor-málinu.
Dótt­ur­banki Kaup­þings í Lúx­em­borg lék lyk­il­hlut­verk í Lindsor-mál­inu. Mynd: Aðsend

Fyrir rúmu ári síðan greindi Kjarninn frá því að rann­sókn­ar­dóm­ari í Lúx­em­borg hefði lokið rann­sókn sinni á á Lindsor-­mál­inu svo­kall­aða og sent nið­ur­stöður hennar til sak­sókn­ara, tæpum tólf árum eftir að hinn íslenski banki Kaup­þing, sem er mið­punktur máls­ins, féll og atburð­irnir sem málið snýst um áttu sér stað. Það gerði hann með form­legri ákvörðun sem dag­sett var 24. júlí 2020.

Síðan þá hefur málið legið hjá sak­sókn­ar­anum sem hefur nú í næstum 14 mán­uði verið að leggja mat á nið­ur­stöð­una til að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort senda eigi ákæru til dóm­stóla í Lúx­em­borg.

Kjarninn greindi frá því í fyrra­sumar, og hafði eftir Dian Klein, tals­konu dóms­mála­ráðu­neytis Lúx­em­borgar, að aðstoð­ar­sak­sókn­ari sem ynni að mál­inu teldi afar lík­legt að ákæra verði lögð fram gagn­vart ein­hverjum þeirra grun­uðu í mál­inu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá dóms­mála­ráðu­neyti Lúx­em­borgar sem feng­ust í síð­ustu viku er málið þó enn á sama stað. Sak­sókn­ar­inn er að vinna í því. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir Henri Eippers, annar tals­maður dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, að hið mikla gagna­magn sem sé undir í mál­inu hafi leitt til þess að matsvinnan hafi tekið lengri tíma en búist var við. „Það verða lík­lega ekki neinar fregnir fyrir vorið 2022,“ segir Eippers í skrif­legu svari.

Lán veitt sama dag og neyðarlánið

Lindsor-­­málið snýst um 171 millj­­ónir evra lán sem Kaup­­þing veitti félagi sem heit­ir Lindsor Holding Corporation og er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju. Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og ­neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­­­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lán­aði Seðla­­­banki Íslands líka Kaup­­­þingi 500 millj­­­ónir evra í neyð­­­ar­lán.

[adspot]Lánið til Lindsor var aldrei borið undir lána­­nefnd Kaup­­þings. Það var notað til að kaupa skulda­bréf af Kaup­­þingi í Lúx­em­borg, ein­­stökum starfs­­mönnum þess banka og félagi í eigu vild­­ar­við­­skipta­vinar Kaup­­þings.

Þegar Kaup­­þing féll þremur dögum eftir kaupin á bréf­unum var ljóst að Lindsor gat ekki greitt lánið til baka, enda eina eign félags­­ins verð­litlu skulda­bréfin sem félagið hafði keypt á yfir­­verði þremur dögum áður. Engar trygg­ingar voru veittar fyrir lán­inu og tap kröf­u­hafa Kaup­­þings vegna þess því umtals­vert. Þeir sem seldu bréfin los­uðu sig hins vegar undan ábyrgðum og, ef grun­­semdir rann­sak­enda eru rétt­­ar, tryggðu sér um leið mik­inn ágóða.

Fjórir einstaklingar gætu verið ákærðir

Í frétta­til­kynn­ingu sem var send út frá sak­sókn­aremb­ætt­inu í Lúx­em­borg í ágúst í fyrra sagði að á meðan að rann­sóknin stóð yfir hafi fimm ein­stak­ling­ar haft stöðu grun­aðra.

[links]Fjórir af þeim verða ákærð­ir, sam­kvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­inn­ar, ef ákæra verður gefin út. Ekki er greint frá því um hvaða fjóra ein­stak­linga er að ræða.

Dóms­kerfið í Lúx­em­borg er ólíkt því sem Íslend­ingar eiga að venj­ast. Ákveði sak­sókn­ari að gefa út ákæru þá er hún send til svo­kall­aðs „council chamber“ hér­aðs­dóms­stigs Lúx­em­borgar sem mun taka ákvörðun um hvort að málið fái efn­is­með­ferð eða verði vísað frá. Sak­born­ingar í mál­inu munu á þeim tíma­punkti fá tæki­færi til að setja fram varnir í mál­in­u.

Þeir sem eru grun­aðir um lög­­brot í mál­inu, fyrr­ver­andi helstu stjórn­­endur Kaup­­þings og vild­­ar­við­­skipta­vinur þeirra, hafa ávallt harð­­neitað að nokkuð sak­­næmt hafi átt sér stað í mál­inu.

Kjarn­inn fjall­aði með afar ítar­legum hætti um Lindsor-­málið í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 9. júlí 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár