Fengu vel á þriðja milljarð króna í laun á rúmum sjö árum

Steinunn Guð­bjarts­dóttir og Páll Eiríks­son störf­uðu fyrir slita­stjórn Glitnis allt þar til henni var slitið 2016. Háar greiðslur til þeirra sættu mik­illi gagn­rýni og voru sagðar úr takti við íslenskan veru­leika.

Fengu vel á þriðja milljarð króna í laun á rúmum sjö árum
Fengu hund­ruð millj­óna fyrir að leggja niður sjóð Sam­an­lagt fengu Steinunn og félagi hennar, Páll Eiríks­son, um 800 millj­ónir króna með því að heim­ila að skað­leys­is­sjóður sem settur var á fót til að standa straum af hugs­an­legum lög­sóknum á þeirra hendur yrði lagður niður. Mynd: PressPhotos

Steinunn Guð­bjarts­dóttir lög­fræð­ingur var for­maður slita­stjórnar Glitnis frá árinu 2012 til árs­ins 2016. Fyrir þann tíma hafði hún setið í slita­stjórn­inni og áður  skila­nefnd Glitnis, frá októ­ber 2008. Steinunn hafði um 1,1 milljón króna í tekjur á mán­uði árið 2018, því sem næst sömu tekjur og árið 2017.

Páll Eiríks­son sat ásamt Stein­unni í slita­stjórn Glitnis allan þann tíma sem slita­stjórnin var starf­andi, og sömu­leiðis sat Páll í skila­nefnd bank­ans fyrir þann tíma. Páll hafði tæpar 1,1 milljón króna í mán­að­ar­tekjur á síð­asta ári sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám. Páll er sonur Eiríks Tóm­as­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara og bróð­ur­sonur Árna Tóm­as­sonar, sem var for­maður skila­nefndar Glitnis þar til síðla árs 2011, um það leyti sem verið var að færa verk­efni hennar til slita­stjórn­ar­innar. Greint var frá því að félag Árna hefði fengið greiddar 123 millj­ónir króna á árunum 2009 til 2010 vegna vinnu fyrir skila­nefnd­ina.

Lífeyrirssjóðir kærðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eftirmál bankahrunsins

Dramatísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum
SkýringEftirmál bankahrunsins

Dramat­ísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, er orð­inn að rekstr­ar­stjóra eins öfl­ug­asta fjár­fest­ing­ar­fé­lags lands­ins, Stoða hf. Þar hittir hann fyrir for­stjór­ann Jón Sig­urðs­son sem Lárus segir að hafi verið lyk­il­maður í því að ráða hann til Glitnis þar sem FL Group, sem í dag heitir Stoðir, var stærsti hlut­hafi Glitnis. Báðir urðu þeir lands­þekktir í góð­ær­inu á Íslandi en saga þeirra eftir hrun er afar ólík þar sem Lárus háði bar­áttu í dóms­kerf­inu vegna efna­hags­brota á meðan Jón sigldi lygn­ari sjó.
Eigandi Glitnis sem reis upp og settist í stjórnarformannsstól Skeljungs
ÚttektEftirmál bankahrunsins

Eigandi Glitnis sem reis upp og sett­ist í stjórn­ar­for­manns­stól Skelj­ungs

Saga Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar fjár­festis teng­ist Skelj­ungi vegna eign­ar­halds fyr­ir­tækja hans á olíu­fé­lag­inu. Jón Ásgeir og Pálmi Har­alds­son, við­skipta­fé­lagi hans, keyptu og seldu Skeljung á milli sín á árunum fyrir hrunið. Afleið­ingaar þeirra við­skipta eru lík­leg til að enda í saka­máli á næstu vikum. Samtímis sest Jón Ásgeir í stól stjórn­ar­for­manns Skelj­ungs.
Lögmannsskrifstofa ráðgjafa stjórnvalda veitti  Lindarhvoli tugmilljóna þjónustu
FréttirEftirmál bankahrunsins

Lög­manns­skrif­stofa ráð­gjafa stjórn­valda veitti Lind­ar­hvoli tug­millj­óna þjón­ustu

Steinar Þór Guð­geirs­son lög­fræð­ingur var skip­aður í skila­nefnd Kaup­þings þegar Fjár­mála­eft­ir­litið tók bank­ann yfir 9. októ­ber 2008. Hann tók við fomennsku í nefnd­inni um hálfum mán­uði síðar og stýrði störfum hennar til árs­loka 2011, eða þar til skila­nefndin var lögð niður og slita­stjórn tók við verk­efnum hennar. Árið 2018 hafði Steinar Þór ríf­lega 1,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun og árið áður...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár