Prestur seldi hús á 15 milljónum meira en hann keypti það á af Þjóðkirkjunni

Þjóð­kirkjan seldi prests­setur til sókn­ar­presta á hag­stæðu verði á síð­asta ára­tug. Sókn­ar­prest­ur­inn í Nes­kaup­stað seldi hús í bænum á 15 millj­ónum meira en hann keypti það á af kirkj­unni. Prest­ur­inn á Eski­firði keypti ein­býl­is­hús af kirkj­unni á verði sem var 1/3 undir fast­eign­mati.

Prestur seldi hús á 15 milljónum meira  en hann keypti það á af Þjóðkirkjunni
Seldi eignir til drýja tekj­urnar Á kirkju­þingi árið 2010, fyrir bisk­ups­tíð Agnesar Sig­urð­ar­dóttur, var veitt heim­ild tll að hefja sölu eigna kirkj­unnar, meðal ann­ars prest­setra víða um land, til að drýja tekjur stofn­un­ar­innar. Á næstu árum voru fjöl­margar eignir seldar, meðal ann­ars prests­bú­stað­irnir í Nes­kaups­stað og Eski­firði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sókn­ar­prest­ur­inn í Nes­kaup­stað, Sigurður Rúnar Ragn­ars­son, keypti ein­býl­is­hús í bænum af Þjóð­kirkj­unni á 21 milljón árið 2014 og seldi það svo á 36,5 millj­ónir í lok síð­asta mán­aðar. Munurinn á kaup­verði og sölu­verði húss­ins er því 15,5 millj­ónir króna á milli áranna 2014 og 2020.

Sigurður Rúnar var sókn­ar­prestur í presta­kall­inu frá því 1999 þar til í ágúst í fyrra og bjó hann í umræddu húsi þennan tíma, fyrstu 15 árin var húsið eign kirkj­unnar en síð­ustu fimm árin var húsið í eigu hans og eig­in­konu hans.

Eftir að Sigurður Rúnar keypti húsið af Þjóð­kirkj­unni, eða Kirkju­mála­sjóði, með sér­stökum samn­ingi þar um sem bisk­upinn Agnes Sig­urð­ar­dóttir und­ir­rit­aði í júní árið 2014, fékk hann einnig greiddan húsa­leigu­styrk frá Þjóð­kirkj­unni vegna búset­unnar í hús­inu. Sigurður Rúnar segir að hann hafi selt húsið þar sem störfum hans í Nes­kaup­stað sé lokið og að hann ætli að flytja til Reykja­víkur. 

Greiddi undirverð fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár