Segir að varað hafi verið við hönnun snjóflóðavarnargarðsins án árangurs

Birkir Ein­ars­son, eig­andi Blossa ÍS sem sökk í Flat­eyr­ar­höfn í nótt, segir að það hafi eig­in­lega verið gert grín að áhyggjum móður hans af því að hönnun snjó­flóða­varn­ar­garðs fyrir ofan þorpið gæti valdið tjóni á bátum í höfn­inni.

Segir að varað hafi verið við hönnun snjóflóðavarnargarðsins án árangurs
Marar í hálfu kafi Birkir Ein­ars­son sagði um hádeg­is­bil ekki sjá betur en að Blossi væri sokk­inn.
Segist aldrei munu sigla Blossa afturBirkir Ein­ars­son segir að jafn­vel þó að takast megi að hífa Blossa ÍS upp og gera við hann muni hann ekki treysta honum framar.

Birkir Ein­ars­son er einn eig­enda báts­ins Blossa sem varð fyrir flóð­bygj­unni eftir snjó­flóðið úr Skolla­hvilft í gær­kvöldi. Hann segir að hönnun snjó­flóða­varna­garðs­ins sem ver byggð­ina á Flateyri sé með þeim hætti að fyr­ir­séð hafi verið að flóðið myndi lenda á smá­báta­bryggj­unni með til­heyr­andi tjóni. Á það hafi verið bent, meðal ann­ars af móður hans, Guðrúnu Páls­dóttur. „Það var eig­in­lega bara gert grín að henni. Það var full­yrt að flóð myndu stoppa í lón­inu sem er fyrir neðan veg­inn, við end­ann á varn­ar­garð­inum. Það var nú aldeilis ekki raunin.“

Stundin náði tali af Birki um miðjan dag en þá var hann staddur um borð í varð­skip­inu Þór en með því hafði hann farið frá Ísafirði þar sem hann býr. „Við erum komnir yfir á Flateyri en ekki komnir í land. Það gengur á með hviðum og snjó­drífu og það er erfitt að sjá út á höfn­ina. Ég held samt að Blossi sé sokk­inn, trýnið á honum var þarna upp úr í nótt en ég held að hann sé bara sokk­inn núna. Flökin af bát­unum eru bara þarna inni í höfn­inni og höfnin full af snjó. Ég sé ekki að það verði hægt að hreinsa höfn­ina á næst­unni.“

Gríð­ar­legt tjónLjóst er að tjónið af völdum snjó­flóðs­ins er afar mikið

Allt í lausu lofti

Blossi ÍS

Blossi ÍS var smíð­aður árið 2014, tólf tonna bátur, og hefur gert út á línu að vetr­inum en á hand­færum á sumrin. Birkir lýsir honum sem góðu sjó­fari og þungt er yfir honum í sam­tali við blaða­mann vegna tjóns­ins. Birkir segir að þó að takast megi að hífa Blossa upp á ein­hverjum tíma­punkti þá vilji hann ekki taka við honum aftur. „Ég vil ekki sjá bát­inn minn aftur eftir svona tjón, ég tek ekki við honum aftur. Það geta hafa komið í hann sprungur, það getur verið eitt­hvað að raf­kerf­inu. Þegar maður er að róa allan árs­ins hring þá verður maður að vera hund­rað pró­sent viss um að bát­ur­inn sé í lagi, það verður að vera hægt að treysta honum. Ég sigli honum aldrei aftur.“

„Ég sigli honum aldrei aftur“

Birkir segir að ljóst sé að tap verði við rekstr­ar­stöðv­un­ina þó að bát­ur­inn fáist bættur. „Það er allt bara í lausu lofti eftir þetta. Við þurfum bara að taka einn dag í einu, þetta er allt í óvissu­á­standi.“

Grunaði að svona myndi fara

Birkir býr sjálfur á Ísafirði en keyrir á milli til að sækja sjó­inn frá Flateyri, þaðan sem hann er. „Það er við­vör­un­ar­kerfi í bátnum sem lætur okkur vita ef það er straum­laust, ef það kemur sjór í hann eða ef það er eldur í bátnum. Klukkan 11:01 sendi hann þrjú skila­boð, um að það væri eitt­hvað skrýtið. Þá höfðum við sam­band við björg­un­ar­sveit­ina og báðum þá um að skoða hvort eitt­hvað væri í gangi. Einhvern veg­inn hafði maður grun um að eitt­hvað svona hefði gerst þegar við fengum sms-ið í nótt, það er búið að snjóa mikið og ef það kemur snjó­flóð úr þessu gili þá fer það beint niður á smá­báta­höfn því varn­ar­garð­ur­inn vísar beint niður að bryggju. Við vorum búin að benda á það, að varn­ar­garð­ur­inn vís­aði beint á bryggj­una og á alla bát­ana. Það var bara ekk­ert hlustað á okkur með það. Mamma benti á þetta þá en það var eig­in­lega bara gert grín að henni. Það var full­yrt að flóð myndu stoppa í lón­inu sem er fyrir neðan veg­inn, við end­ann á varn­ar­garð­inum. Það var nú aldeilis ekki raunin. Ef menn ætla að hafa útgerð á Flateyri á annað borð þá verða menn að taka ákvörðun um breyt­ingar þarna á, það verður bara að segja af eða á. Ráðamenn verða eig­in­lega bara að segja af eða á um hvað á að gera við þorpið okkar. Þetta verður bara að vera skýrt.“

„Ráðamenn verða eig­in­lega bara að segja af eða á um hvað á að gera við þorpið okkar.“

Farvegur snjó­flóð­annaEins og sést hefur snjó­flóða­varn­ar­garð­ur­inn verið hann­aður til þess að beina snjó­flóðum í átt að smá­báta­höfn­inni.
HamfarirSex af sjö bátum sem lágu í Flat­eyr­ar­höfn urðu fyrir flóð­bylgj­unni sem snjó­flóðið sem féll úr Skolla­hvilft í gær fram­kall­aði.

Varnargarðurinn miðar ekki að því að verja hafnarsvæðið

Í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands, sem birt var um hádeg­is­bil í dag, kemur fram að snjó­flóðið úr Skolla­hvilft virð­ist hafa verið mjög stórt. „Varn­ar­garð­ur­inn beindi því frá byggð­inni og til sjávar, en garð­ur­inn er ekki mið­aður við að verja hafn­ar­svæðið,“ segir á vef Veð­ur­stof­unnar.

Tiltekið er að í hættu­mati sé gert ráð fyrir að gefið geti yfir snjó­flóða­varn­ar­garða við verstu aðstæður. Gert sé ráð fyrir rým­ingu húsa á svæði neðan varn­ar­garð­anna á Flateyri við slíkar aðstæður en húsið sem flóð úr Innra-Bæj­ar­gili lenti á hafia ekki verið á slíku rým­ing­ar­svæði. Ekki sé gert ráð fyrir að rýma þurfi þar nema við allra verstu aðstæður og snjó­flóða­vakt Veð­ur­stof­unar hafi ekki metið snjó­flóða­hættu í gær með þeim hætti. Þegar aðstæður leyfi verið að kanna hvernig flóðið úr Innra-Bæj­ar­gili hag­aði sér, hversu mikið rann yfir varn­ar­garð­inn og hversu stór hluti flóðs­ins það hafi verið.

„Flóðið úr Innra-Bæj­ar­gili kallar á mat á virkni varn­ar­garðs­ins og ýtar­legar mæl­ingar á flóð­unum sem féllu í gær,“ segir á vef Veð­ur­stof­unnar. Ekkert er minnst á þörf á því að kanna flóðið sem féll úr Skolla­hvilft og olli því gríð­ar­lega eigna­tjóni sem orðið er.

Náttúruhamfaratrygging tryggir ekki bátana

Hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands (NTÍ), áður Við­laga­trygg­ingu Íslands, feng­ust þær upp­lýs­ingar að trygg­ingar sjóðs­ins næðu til tjóna á öllum fast­eignum sem kunna að hafa orðið fyrir tjóni vegna snjó­flóð­anna, sem og á bruna­tryggðu inn­búi og lausafé. Tjón á var­an­legum hafn­ar­mann­virkjum verður einnig bætt af hálfu NTÍ en flot­bryggjur eru utan nátt­úru­ham­fara­trygg­inga. Tjón á bátum er ekki bætt hjá NTÍ en sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem liggja fyrir bætir húf­trygg­ing báta hjá almennu vátrygg­inga­fé­lög­unum tjón vegna snjó­flóðs­ins. Þá bætir NTÍ ekki heldur tjón af völdum rekstr­ar­taps. „Það eru engar rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygg­ingar inni í trygg­ingum hjá okkur. Það eru trygg­ingar sem eru seldar af almennu trygg­inga­fé­lög­unum. Tjón á bát­unum sjálfum eru líka á þeirra borði,“ segir Hulda Ragn­heiður Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar Íslands.

Hulda segir að fólk geti til­kynnt tjón raf­rænt á heima­síðu Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar Íslands. „Við erum svo bara í við­bragðs­stöðu, við förum vestur um leið og öruggt er að fara á svæðið. Við gerum það yfir­leitt þegar svona atburðir verða, þá förum við á stað­inn og tengjum okkur við sveit­ar­fé­lögin og heima­menn. Við hjálpum fólki sem þarf á því að halda við að til­kynna tjón í gegnum síma og leið­beinum fólki áfram í þessum efnum. Mjög oft hringjum við í aðila sem við vitum að hafa orðið fyrir tjóni og aðstoðum þá við að til­kynna sitt tjón, til að reyna að ná yfir­sýn yfir öll tjón sem orðið hafa. Við erum yfir­leitt að senda mats­menn langt að og því er best að draga það ekki lengi að ná yfir­sýn yfir þetta.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár