Ævintýraleg fjölskyldusaga Andra

Þegar Andra Snæ Magna­syni rit­höf­undi datt í hug að nota sögur fjöl­skyldu sinnar í bók, sem átti að breyta skynjun les­enda á tím­anum sjálfum, kom aldrei annað til greina en að saga ömmu hans yrði í for­grunni. Fjöl­skyldan sjálf efað­ist um þá hug­mynd, eins og kom fram í kaffi­spjalli á heim­ili ömm­unnar, Huldu Guðrúnar, í Hlað­bænum á dög­unum.

Ævintýraleg fjölskyldusaga Andra
Með rætur í Árbænum Andri Snær er fjórða kyn­slóð Árbæinga. Honum hefur stundum sviðið sú ímynd Árbæjar að hann sé sögu­laus og lætur sig drauma um að skrifa sögu hverf­is­ins í ell­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í einum af fremstu köflum bók­ar­innar Um tím­ann og vatnið, nýju verki úr smiðju Andra Snæs Magna­sonar, segir af sam­tali föður og dóttur við eld­hús­borðið heima hjá ömmu skálds­ins í Hlaðbæ í Árbæj­ar­hverfi. Í sen­unni setur Andri upp reikni­leik fyrir dóttur sína og sýnir henni fram á að hún sjálf þekki fólk sem teygi sig yfir heil 262 ár: 

Ímyndaðu þér. 262 ár. Það er tím­inn sem þú tengir saman. Þú þekkir fólkið sem spannar allan þennan tíma. Tíminn þinn er tími ein­hvers sem þú þekkir, elskar og mótar þig. Og tím­inn þinn er líka tími ein­hvers sem þú munt þekkja og elska, tím­inn sem þú skapar. Þú getur snert 262 ár með berum höndum. Amma kennir þér, þú kennir þinni ömmu­stelpu. Þú getur haft bein áhrif á fram­tíð­ina, alveg til árs­ins 2186. 

Nú sitjum við við þetta sama borð­stofu­borð í Hlað­bænum, skáldið, Andri Snær Magnason, dóttir hans, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár