Leikfélag sem upphefur fjölmenninguna stígur á svið

Skömmu eftir heimkomu úr námi erlendis sá Pálína Jóns­dóttir að stór hópur hæfileika­ríkra sviðs­listamanna var útskúfaður úr íslensku leiklistar­lífi. Hún stofnaði með þeim Reykjavík Ensemble, nýjan alþjóð­legan listahóp, sem stefnir að því að hefja sýningar á komandi ári.

Pálína Jóns­dóttir, einnig þekkt sem Pálína frá Grund, á að baki langan feril sem leikari og leik­stjóri. Hún hefur meðal annars komið fram í Djöfla­eyjunni og leikstýrt fjölda verka, meðal annars Völva sem vann Grímuna 2010 fyrir hljóðmynd ársins, og Ég heiti Guðrún sem var sýnt í Þjóð­leikhúsinu í fyrra. Þegar hún sneri aftur heim til Íslands árið 2018 – eftir margra ára dvöl í Nýju Jórvík og að loknu leik­stjórnar­námi úr hinum virta Columbia-háskóla – segist henni hafa liðið eins og utan­aðkomandi aðila í leiklistar­senunni, en hún sá að hún var ekki ein.

„Ég áttaði mig á því að Ísland hefur breyst mjög mikið á þessum tíma sem ég var erlendis,“ segir hún í samtali við Stundina. „Það er allt í einu orðið mjög áþreifanlega fjöl­þjóðlegt samfélag, en ég fór að velta því fyrir mér af hverju ég sæi ekki fleira fólk af erlendu bergi brotið í leiklistar­senunni.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár