Heiðar endurkjörinn stjórnarformaður Vodafone

Nýtt hlutafé verður gefið út til að borga hluta kaup­verðs þeirra eigna sem verið er að kaupa af 365 miðlum. Virði hlut­ar­ins sem eig­endur 365 fá hefur þegar hækkað um 200 millj­ónir.

Heiðar Guðjónsson.
Heiðar Guð­jóns­son. Mynd: aðsend

Heiðar Guð­jóns­son verður áfram stjórn­ar­for­maður Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Vodafone. Sjálf­kjörið var í stjórn félags­ins á aðal­fundi í gær. Auk Heiðars sitja í stjórn­inni Anna Guðný Ara­dóttir, Hildur Dungal, Hjör­leifur Pálsson og Yngvi Hall­dórs­son. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar.

[links]Þrír stærstu eig­endur Fjar­skipta eru líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, LSR og Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna. Þeir eiga sam­an­lagt tæpan þriðj­ung í Fjar­skiptum. Félag Heiðars, Ursus, er sem stendur fjórði stærsti eig­andi félags­ins með 6,4 pró­sent hlut. Það mun breyt­ast á næst­unni því aðal­fund­ur­inn sam­þykkti í gær að hækka hlutafé sitt um 32,4 millj­ónir hluta og nota hækk­un­ina að öllu leyti til að greiða fyrir þær eignir sem Fjar­skipti hafa sam­þykkt að kaupa af 365 miðlum.

Um er að ræða fjar­skipta- og ljós­vaka­miðla 365 auk frétta­vefs­ins Vísir.is. Eigendur 365 miðla munu því fá um tíu pró­sent hlut í Fjar­skiptum á geng­inu 52,5 krónur á hlut. Virði hlut­ar­ins sam­kvæmt kaup­samn­ingi er því 1,7 millj­arðar króna. Miðað við gengi Vodafone á mark­aði í dag, sem er 59,4 krónur á hlut, er virði hlut­ar­ins hins vegar rúm­lega 1,9 millj­arðar króna.

Stærsti eig­andi 365 miðla eru félög í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur. Þau munu eign­ast um 7,5 pró­sent hlut í Fjar­skiptum gangi kaupin í gegn og verða þar með óbeint þriðji stærsti eig­andi félags­ins. Ingi­björg og tengdir aðilar yrðu líka stærsti ein­stak­lings­fjár­fest­arnir í Fjar­skiptum, þ.e. með stærri eign­ar­hlut en stjórn­ar­for­mað­ur­inn Heiðar Guð­jóns­son.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið á hins vegar eftir að sam­þykkja kaup Fjar­skipta á umræddum eignum 365 miðla og mun taka sér 110 daga til að skoða sam­runan. Ef af verður þá mun eiga sér stað stærsti sam­runi fjar­skipta og fjöl­miðl­unar Í Íslands­sög­unni.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um kaup Fjar­skipta á flestum eignum 365 miðla í frétta­skýr­ingu í vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár