Göngur eru næring fyrir líkama og sál

Einar Skúlason stofn­aði göngu­hóp­inn Vesen og ver­gang árið 2011. Í dag fylgja 13.000 Facebook-síðu hóps­ins og nokkur hund­ruð manns ganga að jafn­aði eða öðru hvoru með hópnum, hvort sem um er að ræða lok­aða hópa eða opnar göngur.

Göngur eru næring fyrir líkama og sál
Gengur og gengur Nokkur hund­ruð manns ganga reglu­lega með göngu­hópnum Veseni og ver­gangi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einar Skúlason ólst upp í Fella­hverfi í Breið­holti en flutti á ung­lings­árum í mið­bæ­inn. Þrátt fyrir að vera borg­ar­barn varði hann miklum tíma úti í nátt­úr­unni og seg­ist hann hafa verið nátt­úru­barn síðan hann man eftir sér.

„Ég byrj­aði að ganga með ömmu í Hval­firði þegar ég var fjög­urra til fimm ára polli. Hún og afi bjuggu í bragga í Hval­firði og var afi stöðv­ar­stjóri í Olíu­stöð­inni þar og sótt­ist ég mikið eftir því að fara til þeirra og vera þar. Það var alltaf gott að koma til þeirra. Ég fékk að fara með ömmu í göngu­ferðir af því að ég hafði svo gaman af þessu og kvart­aði aldrei. Ég var svo áhuga­samur; ég var ekk­ert að spyrja hvenær við færum heim eða að segja að ég væri svo svangur, eins og sum börn gera. Mér fannst gaman að sjá ólíka hluti og skoða. Amma sagði oft sögur eða benti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár