Uppljóstrari fordæmir ritskoðun efnavopnaskýrslu

Wikileaks og Stundin birta í dag tölvu­póst frá upp­ljóstr­ara innan Efna­vopna­stofn­un­ar­innar í Haag, OPCW. Þar rekur hann hvernig yfir­menn hans hag­ræddu stað­reyndum í skýrslu um meinta efna­vopna­árás í Sýrlandi í fyrra. Nið­ur­stöð­urnar komi ekki heim og saman við þau gögn sem hann og aðrir sér­fræð­ingar söfn­uðu á vett­vangi.

Uppljóstrari fordæmir ritskoðun efnavopnaskýrslu
Frétta­myndir eftir atvikið Fjallað var um við­brögð við meintri efna­vopna­árás á almenna borg­ara í Douma í Sýrlandi í fjöl­miðlum um allan heim, en nú er komið á dag­inn að miklar efa­semdir voru í rann­sókn­arteymi alþjóð­legu Efna­vopna­stofn­un­ar­innar um að raun­veru­lega hefði verið beitt efna­vopnum.

Tölvu­póstur sem Stundin birtir nú í sam­vinnu við Wikileaks sýnir að með­limur í rann­sókn­arteymi Efna­vopna­stofn­un­ar­innar í Haag lýsti því að stjórn­endur stofn­un­ar­innar hefðu gjör­breytt nið­ur­stöðum rann­sóknar á vett­vangi meintrar efna­vopna­árásar í Douma í Sýrlandi í fyrra. Skýrsla stofn­un­ar­innar birt­ist með vill­andi nið­ur­stöðum, að mati upp­ljóstr­ara úr rann­sókn­arteym­inu, en nið­ur­stöður hennar voru nýttar til að rétt­læta loft­árásir Banda­ríkj­anna, Bret­lands og Frakk­lands á svæði undir stjórn Assads Sýr­lands­for­seta.

Í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar er úttekt á deilum um skýrslu sem Efna­vopna­stofn­unin í Haag (OPCW) sendi frá sér eftir rann­sókn á árás í sýr­lensku borg­inni Douma í apríl í fyrra. Allt að 49 voru sagðir hafa farist og meira en 600 veikst eftir að anda að sér eitr­uðu gasi.

Upp­reisn­ar­menn, sem voru þar að verja eitt sitt síð­asta vígi, sögðu að þyrlur hefðu varpað gas­hylkjum úr lofti og aðeins stjórn­ar­her Assads notar þyrlur á þessu svæði. Viku síðar gerðu vest­ur­veldin loft­árásir á Sýr­lands­stjórn til að svara fyrir voða­verkin.

Efna­vopna­stofn­unin sendi rann­sókn­arteymi á vett­vang en fékk ekki aðgang að svæð­inu fyrr en um tveimur vikum eftir árás­ina, þegar upp­reisn­ar­sveitir voru hraktar á brott af stjórn­ar­hernum. Höfundur tölvu­pósts­ins var einn af átta sér­fræð­ingum í hópnum sem fór til Douma.

Póstinum var lekið til Wikileaks en hann er dag­settur í lok júní 2018 þegar búið var að útbúa rit­skoð­aða útgáfu af bráða­birgða­nið­ur­stöðum rann­sak­enda. Við­tak­endur eru Robert Fairweather og Aamir Shouket, hátt settir stjórn­endur OPCW, og er bréfið áfram­sent á sjömenn­ing­ana sem fóru til Douma ásamt bréf­rit­ara.

Sláandi röng mynd dregin upp 

Tilefni bréfs­ins er að lýsa þungum áhyggjum af þeim breyt­ingum sem hafi verið gerðar á skýrsl­unni þar sem þær dragi upp vill­andi mynd af sönn­un­ar­gögnum. Þær breyt­ingar hafi að sögn verið gerðar að beiðni fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna, sem var á þeim tíma tyrk­neski stjórn­ar­er­ind­rek­inn Ahmet Üzümcü.

„Það slær mig hversu ranga mynd skýrslan gefur,“ segir í póst­inum. Stað­reyndir þurfi að vera settar fram í réttu sam­hengi og með því að fjar­lægja mik­il­væga kafla hafi verið grafið undan trú­verð­ug­leika rann­sókn­ar­innar. Þá hafi sumar stað­reyndir „breyst í eitt­hvað allt annað en stóð í upp­kast­inu“.

Í bréf­inu rekur upp­ljóstr­ar­inn ýmsar breyt­ingar sem hann telur sér­stak­lega ámæl­is­verðar.

Meðal ann­ars er um að ræða vafa­sama efna­fræði eftir að varnaglar voru teknir út. Þannig segir í útgef­inni skýrslu að fund­ist hafi líf­ræn klór­efni í ákveðnum sýnum og sér­stak­lega tekið fram að það geti þýtt að klór­gasi hafi verið beitt. Bréf­rit­ari telur það afar langsótta full­yrð­ingu og bendir á að fjöldi mis­mun­andi efna geti fallið í þennan flokk án þess að um efna­vopn sé að ræða.

„Að nefna klór­gas vilj­andi og sér­stak­lega, en ekki aðra mögu­leika, er óheið­ar­legt“

„Að nefna klór­gas vilj­andi og sér­stak­lega, en ekki aðra mögu­leika, er óheið­ar­legt,“ segir hann.

Magnið virð­ist líka vera ýkt í rit­skoð­aðri útgáfu skýrsl­unnar. Þar er talað eins og um sé að ræða mikið magn en: „Í flestum til­vikum vorum við bara að tala um millj­arð­s­hluta. 1-2 atóm á móti millj­arði, það er bara snef­il­magn,“ segir í póst­inum.

Hlutdrægni og skortur á trúverðugleika

Annað sem hefur verið deilt um er hvort gasið hafi í raun verið í hylkjum sem hafi verið varpað úr lofti. Í rit­skoð­uðu skýrsl­unni segir að það sé lík­legt en í upp­runa­lega text­anum voru margir varnaglar og sér­stak­lega tekið fram að ekki séu til næg sönn­un­ar­gögn til að full­yrða að svo hafi verið. Heilir kaflar um málið voru teknir út.

„Það sem er mik­il­vægt við þær upp­lýs­ingar er að þær hjálpa við að leggja mat á hvort eit­ur­efni hafi ein­fald­lega verið á staðnum eða hvort þeim hafi verið beitt vilj­andi,“ segir bréf­rit­ari.

Annar kafli, sem var tek­inn út úr upp­runa­lega text­anum, fjall­aði um þau ein­kenni sem fórn­ar­lömbin sýndu á mynd­bands­upp­tökum. Það voru allt önnur ein­kenni en sjón­ar­vottar sögð­ust hafa upp­lifað á vett­vangi. Í tölvu­póst­inum segir að það hafi alvar­lega nei­kvæðar afleið­ingar fyrir heild­ar­mynd skýrsl­unnar að fjar­lægja þessi gögn og sam­engi.

„Það er nákvæm­lega þetta ósam­ræmi á milli ein­kenna á vett­vangi og á upp­tökum sem vekur vafa um hvort klór­gasi eða öðrum kæf­andi efnum hafi verið beitt,“ segir þar.

Í lok bréfs­ins biður höf­undur um að fá að bæta sínum athuga­semd við útgefna skýrslu en ekki var orðið við því. Hann segir enn fremur að þær breyt­ingar sem hafi verið gerðar á upp­runa­lega text­anum bendi til hlut­drægni sem dragi úr trú­verð­ug­leika skýrsl­unnar og stofn­un­ar­innar í heild sinni.

Bréf­rit­ari og kollegar hans í rann­sókn­arteym­inu hafa óskað eftir því að ávarpa árs­þing OPCW sem hefst á mánu­dag­inn, 25. nóv­em­ber. Ekki er vitað til þess að svar hafi borist við þeirri beiðni.

Tölvu­póstur upp­ljóstr­ar­ans er hér birtur í heild sinni.

Tölvu­póstur upp­ljóstr­ar­ansMeðlimur úr rann­sókn­arteymi Efna­vopna­stofn­un­ar­innar er til­bú­inn að stíga fram og lýsa vinnu­brögðum stjórn­enda stofn­un­ar­innar.

Upp­lýs­ing­arnar í frétt­inni eru birtar í sam­starfi við Wikileaks, La Repubblica á Ítalíu, Der Spiegel í Þýska­landi og Mail on Sunday í Bret­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár