Persónuupplýsingar milljóna Dana í höndum Kínverja

Sumarið 2015 varð uppi fótur og fit þegar bandaríska rannsóknar­lögreglan (FBI) komst að því að kínverskir tölvu­þrjótar höfðu komist yfir persónu­upplýsingar fjögurra milljóna opinberra starfs­manna í Banda­ríkjunum. Upplýsingarnar vörðuðu heilsufar,fjárhags­lega stöðu, hjúskaparmál og ýmislegt fleira sem flokkast undir viðkvæmar persónulegar upplýsingar. Rannsóknar­lögreglan leit þetta mjög alvarlegum augum og benti á að erlendir aðilar gætu notað slíkar upplýsingar í margskonar tilgangi. Til að þvinga fram upplýsingar var sérstak­lega nefnt í yfir­lýsingum rannsóknar­lögreglunnar vegna málsins.

Þótt þetta hafi þótt stórmál vestra, ekki síst vegna þess að málið varðaði fjórar milljónir Bandaríkja­manna er hliðstætt mál, og hlutfalls­lega margfalt stærra, komið upp í Danmörku. Fyrir nokkrum dögum greindu danskir fjöl­miðlar frá því að skrif­stofu kínverskra ferðamála­yfirvalda í Kaupmanna­höfn hefðu snemma á árinu 2015 verið sendar, á geisla­diskum, persónu­upplýsingar rúmlega fimm milljóna Dana. Það eru rúmlega níutíu prósent lands­manna. Skrif­stofan sem fékk umrædda geisla­diska annast einkum vegabréfa­áritanir fólks sem ætlar að ferðast til Kína.

Eins og í lélegri lygasögu

Fréttin um geisla­diskana með persónupplýsingunum vakti mikla athygli í Danmörku. „Hvernig í ósköpunum gat þetta gerst?“ var spurt. Svarið er ekki flókið: geisla­diskarnir (tveir) voru sendir í pósti, póst­maðurinn hringdi dyra­bjöllu á kínversku ferðamála­skrif­stofunni, starfs­maður þar tók á móti umslaginu og kvittaði fyrir móttökunni. Ekki hefur fengist hvort heimilis­fangið á umslaginu var hjá kínversku skrif­stofunni eða dönsku hagstofunni sem er þar skammt frá og átti að fá diskana, en yfirmaður hjá póstinum sagði augljóst að mannleg mistök ættu sök á því sem gerðist. Sendandinn var Statens Serum Institut sem er rannsókna­stofnun danska ríkisins sem annast alls kyns læknis­fræðilegar rann­sóknir og fram­leiðslu bóluefna. Starfs­menn Serum Institut hafa fullyrt að bæði nafn viðtak­anda og heimilis­fang hafi verið rétt en póst­maðurinn einfald­lega lesið rangt á umslagið og kínverski starfs­maðurinn kvittað án þess að lesa utan­áskriftina.

Opnaði umslagið og skilaði því svo á réttan stað

Um það sem svo gerðist er einungis einn til frásagnar. Nefnilega hinn kínverski starfs­maður ferðamál­skrif­stofunnar. Að hans sögn opnaði hann umslagið og sá þá á pappírum sem fylgdu diskunum tveimur að umslagið átti að fara til Hagstofunnar. Hann rölti þvínæst yfir í Hagstofuna, sem er eins og áður sagði skammt frá, og afhenti umslagið þar. Lét jafnframt svo ummælt að hann hefði ekki tekið diskana úr umslaginu, einungis lesið á pappírana sem fylgdu og strax séð að þetta væri ekki ætlað kínversku ferðamála­skrif­stofunni. Þessa yfir­lýsingu starfs­mannsins hefur kínverska ferðamála­skrifstofan síðar staðfest skriflega.

Segir hann satt?

Það er stóra spurningin. Ef starfs­maðurinn segir satt og rétt frá, semsé að hann hafi ekki einu sinni tekið geisla­diskana með upplýsingum um rúmlega fimm milljónir Dana uppúr umslaginu er enginn skaði skeður, að mati danska Tölvu­eftirlitsins (Datatilsynet). Ekki sé ástæða til annars en trúa því að kínverski starfs­maðurinn segi satt. Danskir fjöl­miðlar setja stórt spurningar­merki við þessa yfir­lýsingu. Tölvu­eftirlitið geti ekki með nokkru móti, þrátt fyrir yfir­lýsingar kínverska starfs­mannsins, fullyrt að diskarnir hafi ekki annaðhvort verið skoðaðir eða afritaðir áður en þeim var komið til Hagstofunnar.

Dagblaðið Politiken sem hefur fjallað ítarlega um geisladiska­málið segir engan vafa á að kínversk stjórn­völd hafi mikinn áhuga á hvers konar upplýsingum um danska ríkis­borgara, rétt eins og ríkis­borgara annarra landa. Gögnin á geisla­diskunum yrðu því, að mati Politiken, hvalreki á fjörur stjórn­valda í Beijing. Kínversk stjórn­völd hafi á undan­förnum árum aflað mikilla upplýsinga um íbúa annarra landa og þótt enginn viti hvort eða hvernig slíkar upplýsingar gagnist sé það afar óþægileg tilhugsun að kínversk stjórn­völd hafi slík gögn undir höndum.

Innihald diskanna var ekki dulkóðað

Upplýst hefur verið að innihald geisla­diskanna tveggja var ekki dulkóðað. Danskir tölvu­sérfræðingar fullyrða að þótt Kínverjum yrði ekki skota­skuld úr að ráða fram úr dulkóðuðum upplýsingum af þessu tagi sé það í meira lagi undarlegt að stofnun eins og Serum Institut skuli senda frá sér viðkvæmar upplýsingar sem hver sem er geti lesið, einfald­lega með því að stinga geisla­diskinum í heimilis­tölvuna. Slíkt sé ekki í lagi. Sérfræðingar í tölvu­málum hafa reyndar lengi sagt að Danir séu afar kæru­lausir varðandi tölvu­öryggismál, einsog margoft hafi komið í ljós á undan­förnum árum.

Henrik Kramshøj, danskur sérfræðingur í öryggis­málum, tekur jafnvel svo djúpt í árinni að Kínverjar hafi nú þegar allar þær upplýsingar um danska ríkis­borgara sem þeir telji sig nokkru sinni hafa þörf fyrir og þess vegna hafi innihald geisla­diskanna tveggja ekki verið neinn búhnykkur.

Þingmenn vilja breytt vinnulag

Þingmenn þriggja flokka á danska þinginu, Folketinget, krefjast þess að Sophie Løhde, ráðherra heilbrigðis­mála, láti málið til sína taka. Þeir segja það fyrir neðan allar hellur að viðkvæmar persónu­upplýsingar séu sendar með póstinum, þær eigi starfs­maður sendanda að afhenda viðtak­anda milli­liðalaust, sé þess nokkur kostur. Sama gildi auðvitað um fjölmörg önnur gögn. Ráðherrann sagðist í viðtali vera jafn undrandi og allir aðrir á „geisladiska­fréttinni“ og augljós­lega þyrfti að finna leiðir til að tryggja að svona klúður geti ekki endur­tekið sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár