Tíu formenn veiðifélaga skrifa þingmönnum og vara við opnu sjókvíaeldi

Tíu formenn veiði­félaga á Norður- og Vestur­landi segja í bréfi til þingmanna Norðvestur­kjördæmis að fiskeldi í opnum sjókvíum sé atlaga að búsetu í sveitum landsins. Vitnað er til þess að 280 lögbýli í Húna­vatnssýslu hafi tekjur af laxveiði auk margra jarða sem hafi tekjur af silungs­veiði.

Í bréfinu er sérstak­lega vikið að því, að eldi í opnum sjókvíum geti kippt stoðunum undan umfangs­mikilli atvinnu­grein hjá bændum, og auk þess brotið upp samvinnu­skipulag bænda sem tryggir að tekjur af veiðinni dreifist um byggðirnar.

„Bændur og aðrir veiðiréttar­eigendur hafa lagt sig fram um að vernda, viðhalda og umgangast þessa auðlind með þeirri virðingu, sem henni ber, þannig að orðspor laxveiðiáa verði sem allra best. Jafnframt hafa verið settir miklir fjármunir í að bæta aðstöðu veiði­manna s.s. með góðum aðbúnaði í veiði­húsum og aðgengi að veiðisvæðum með vega­lagningu. Tekjur af lax- og silungs­veiði­hlunnindum hafa í margar kynslóðir verið mjög mikilvæg stoð við búskap fjölmargra bænda í sveitum landsins. Ef þessi verðmæti skerðast verður fótunum kippt undan afkomu fjöl­skyldna um allt land. Lagaleg umgjörð um samvinnu­félög bænda í tengslum við veiðiár tryggir að tekjurnar dreifast með lýðræðis­legum hætti innan sveita.

Þessi verðmæti eru ekki aðeins í hættu vegna þeirrar óhjá­kvæmilegu erfða­blöndunar sem verður þegar eldis­fiskur af norskum uppruna gengur upp í árnar, heldur verður skaðinn strax þegar eldis­fiskur veiðist í ánum. Orðspor viðkomandi veiðiár bíður þá hnekki og verðmæti hlunninda hennar minnkar,“ segir í bréfinu.

Þá segir enn fremur að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að eldi í opnum sjókvíum verði opnað í Ísafjarðar­djúpi. „Koma þarf í veg fyrir að tilrauna­eldi í opnum sjókvíum fari ofan í Ísafjarðar­djúp. Óboðlegt við þær aðstæður sem eru uppi að setja niður opnar sjókvíar í fleiri firði við landið en eru þar nú þegar. Hægt er að fá allar nauðsynlegar upplýsingar frá þeim sjókvíaeldis­fyritækjum sem eru þegar starfandi. Fréttir frá því í sumar af því að eldis­fiskur hefur veiðst á ám sem eru víðsfjarri sjókvíaeldi sýna okkur sem ekki verður um villst að eldisfikur ferðast langa vegalengd. Gjarnan 400 til 600 km áður en henn gengur upp í ár, þetta staðfesta rann­sóknir í Noregi.“

Bréfið fer hér að neðan í heild sinni:

Alþingis­menn og ráðherrar Norðvestur­kjördæmis.

Í framhaldi af ágætum fundi með alþingis­mönnum Norðvesturs­kjördæmis ( HB, LRM, SPJ og GB ) þann 15. október s.l. eru hér á eftir tilfærð helstu áherslu­atriði sem nefndar voru á fundinum.

Tilefni fundarins sem boðað var til að ósk forsvars­manna veiði­félaga í Húna­vatnssýslu, er fyrir­hugað sjókvíaeldi á laxi í opnum sjókvíum í Ísafjarðar­djúpi.

1) Eldi í opnum sjókvíum er atlaga að búsetu í sveitum Í Húna­vatnssýslu eru um 280 lögbýli sem hafa tekjur af laxveiði­hlunnindum, auk margra jarða sem hafa tekjur af silungs­veiði.

Bændur og aðrir veiðiréttar­eigendur hafa lagt sig fram um að vernda, viðhalda og umgangast þessa auðlind með þeirri virðingu, sem henni ber, þannig að orðspor laxveiðiáa verði sem allra best. Jafnframt hafa verið settir miklir fjármunir í að bæta aðstöðu veiði­manna s.s. með góðum aðbúnaði í veiði­húsum og aðgengi að veiðisvæðum með vega­lagningu.

Tekjur af lax- og silungs­veiði­hlunnindum hafa í margar kynslóðir verið mjög mikilvæg stoð við búskap fjölmargra bænda í sveitum landsins. Ef þessi verðmæti skerðast verður fótunum kippt undan afkomu fjöl­skyldna um allt land. Lagaleg umgjörð um samvinnu­félög bænda í tengslum við veiðiár tryggir að tekjurnar dreifast með lýðræðis­legum hætti innan sveita.

Þessi verðmæti eru ekki aðeins í hættu vegna þeirrar óhjá­kvæmilegu erfða­blöndunar sem verður þegar eldis­fiskur af norskum uppruna gengur upp í árnar, heldur verður skaðinn strax þegar eldis­fiskur veiðist í ánum. Orðspor viðkomandi veiðiár bíður þá hnekki og verðmæti hlunninda hennar minnkar.

Laxveiði í Hunavatnssýslum og reyndar víða um land er mikil­vægur þáttur þeim hluta dýrasta hluta ferðamanna­iðnaðarins. Þó það fari ekki hátt þá heimsækja árnar margir auðugir ferðamenn. Þessir aðilar leggja mikið upp úr að árnar séu sjálf­bærar og allt umhverfi sé i sátt við náttúruna. Í viðtölum við erlenda veiðimenn hafa oft komið fram áhyggjur þeirra af áhrifum laxeldis í sjó á stofna ánna. Við erum því í þessu sambandi bæði að tala um raun­veruleg áhrif þ.e. eldislax gengur í á, en einnig áhrif á orðspor allra annarra áa gangi eldislax í eina á.

Koma þarf í veg fyrir að tilrauna­eldi í opnum sjókvíum fari ofan í Ísafjarðar­djúp. Óboðlegt við þær aðstæður sem eru uppi að setja niður opnar sjókvíar í fleiri firði við landið en eru þar nú þegar. Hægt er að fá allar nauðsynlegar upplýsingar frá þeim sjókvíaeldis­fyritækjum sem eru þegar starfandi. Fréttir frá því í sumar af því að eldis­fiskur hefur veiðst á ám sem eru víðsfjarri sjókvíaeldi sýna okkur sem ekki verður um villst að eldisfikur ferðast langa vegalengd. Gjarnan 400 til 600 km áður en henn gengur upp í ár, þetta staðfesta rann­sóknir í Noregi.

Með því að setja niður sjókvíaeldi í Djúpið er kominn eldislax í næsta nágrenni við húnvetnsku árnar. Í því sambandi er rétt að minna á að fjarlægð frá fyrir­huguðum kvíum í Djúpinu í árnar í Húna­vatnssýslu er á milli 200 til 300 km.

2) Eldi í opnum sjókvíum ógnar villtum laxa­stofnum

Norskir vísinda­menn hafa staðfest að 66% villtra stofna í Noregi hafa skaðast vegna erfða­blöndunar. Gera má ráð fyrir að einn eldislax sleppi úr hverju einu tonni sem alið er í sjókvíum. Það þýðir að 71.000 eldis­laxar sleppi í sjó við Ísland á hverju ári ef áform um 71.000 tonna eldi ná fram að ganga. Til saman­burðar er talið að hrygningar­stofn íslenska laxins sé um 40.000 fiskar. Norski eldis­laxinn hefur verið ræktaður um langa hríð sem hraðvaxta húsdýr og ber með sér erfða­eiginleika sem geta verið mjög skaðlegir þegar þeir blandast villtum stofnum og dregið stórlega úr mögu­leikum þeirra til að komast af í nátt­úrunni.

--- Erfða­blöndunin er ekki eina hættan þegar fiskur sleppur úr opnum sjókvíum. Viðvera eldisfisk ein og sér skaðar afkomu­möguleika villtra stofna. Eldis­fiskurinn gengur seinna í árnar, leitar á sömu hrygningar­staði og getur rótað þar upp og spillt fyrir hrygningu villtra stofna.

- Við þetta bætist eitranir vegna laxalús, lúsin sjálf, nýrna­veiki og aðrir fisk­sjúkdómar sem grassera í kvíunum.

Virðingar­fyllst.

25. október 2018.

Kristinn Guðmundsson, formaður Veiði­félags Hrútafjarðarár og Síkár

Þorsteinn B. Helgason, formaður Veiði­félags Miðfirðinga

Björn Magnússon, formaður Veiði­félags Víði­dalsár

Birgir Ingþórsson, formaður Veiði­félags Gljúfurár

Magnús Ólafsson, formaður Veiði­félags Vatns­dalsár

Páll Á Jónsson, formaður Veiði­félags Laxár á Ásum

Oddur Hjaltason, formaður Veiði­félags Fremri - Laxár

Sigurður Ingi Guðmundsson, formaður Veiði­félags Blöndu og Svartár

Anna Margrét Jóns­dóttir, formaður Veiði­félags Laxár á Refasveit

Magnús Bergmann Guðmannsson, formaður Veiði­félags Hallár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár