Vinna að viðbragðsáætlun í kringum leikskóla á „gráum dögum“

Reykja­víkurborg vinnur nú að viðbragðs­áætlun til að auka loftgæði í kringum leik- og grunn­skóla í borginni. Áætlunin byggir á tillögu frá fjórum umhverfis­verndar­samtökum sem leggja til að ökutæki verði ekki leyfð í kringum leikskóla á ákveðnum tímum.

Umhverfis- og skipulags­sviði Reykja­víkurborgar hefur verið falið að vinna aðgerða­áætlun við grunn- og leikskóla á höfuð­borgar­svæðinu á svokölluðum gráum dögum. Aðgerða­áætlunin kemur í kjölfar tillögu frá forsvars­mönnum Bíllausa dagsins en samtökin benda á að börn séu hluti af þeim hópi sem sé hvað viðkvæmastur fyrir áhrifum svifryks á heilsuna og því sé brýnt að vernda þau. Lagt er til að skilgreint verði 400 til 500 metra þynningar­svæði í kringum leikskóla þar sem vélknúin ökutæki eru ekki leyfð á ákveðnum tímum.

Hleypa börnum ekki út á gráum dögum

Samþykkt var á fundi borgar­ráðs í síðustu viku að fela umhverfis- og skipulags­sviði að vinna að aðgerða­áætlun í samráði við Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur og skóla- og frístunda­svið Reykja­víkurborgar um aukin loftgæði í kringum leik- og grunn­skóla í borginni.

Ákvörðunin byggir á tillögu frá fjórum samtökum sem standa að Bíllausa deginum; Samtök um bíllausan lífsstíl, Hjóla­færni á Ís­landi, Ungum um­hverfis­sinnum og Grænni byggð. Tillagan snýst um að gerð viðbragðs­áætlana hjá sveitar­félögum sem gilda á innan svæðis í kringum leikskóla þegar búist er við að styrkur svifryks fari yfir heilsu­verndar­mörk eða svokallaður „grár dagur“.

Í tillögu samtak­anna segir að börn séu hluti af þeim hópi sem sé hvað viðkvæmastur fyrir áhrifum svifryks á heilsuna og því brýnt að veita þeim hóp vernd. Samtökin segja að þegar gráir dagar eru þá hleypi leik­skóla­kennarar börnum ekki út í frímínútur og sé fólk hvatt til þess að skilja bílinn eftir heima. Samtökin leggja hins vegar til að með viðbragðs­áætlun sé hægt að snúa þessu við og skilgreina 400 til 500 metra þynningar­svæði kringum leikskóla þar sem vélknúin ökutæki eru ekki leyfð í ákveðinn tíma.

Vilja prófa áætlunina í september

Samgöngu­vika Evrópu er í lok september og vilja samtökin nota vikuna til þess að prófa viðbragðs­áætlun fyrir gráa daga. Samtökin leita því til sveitar­félaganna en samtökin vilja vinna með leik- og grunn­skóla­stjórum við að setja saman vikuna.

Samtökin bjóðast meðal annars til þess að setja saman gátlista yfir það sem þarf að gera þegar grár dagur er í vændum og vera til ráðgjafar fyrir framkvæmd gátlistans. Einnig segja samtökin að það þurfi að skilgreina nákvæmlega þynningar­svæðið hjá sérhverjum skóla, skilgreina hvar lokanir á götum þurfa að vera, hver skuli loka þeim og á hvaða tíma dags. Þá segir í tillög­unni að Bíllausi dagurinn muni einnig skipuleggja fræðslu í kringum lokanirnar svo foreldrar og starfs­fólk sé vel upplýst um sitt hlutverk og verkefnið sjálf.

Mikil öryggisaukning fylgir

Í tillög­unni segir að tíma­bundnar lokanir fyrir bíla­umferð í kringum leikskóla hafi gefist vel í mörgum breskum borgum og hverfum. Þá séu helstu aðliggjandi götum lokað í kringum skólana á hverjum morgni og síðdegis.

„Um er að ræða talsvert einfalda aðgerð þar sem skiltum er komið fyrir í kringum aðliggjandi götur og þeim lokað fyrir umferð bíla. Niður­stöður sýna ekki einungis stórbætt loftgæði heldur einnig mikla öryggis­aukningu og jafnvel bættan náms­árangur í einhverjum tilvikum. Heilt yfir virðist skutl foreldra dragast saman um að minnsta kosti 20 prósent,“ segir í tillög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár