Píratar útiloka Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn vegna „spillingar“ og loforðasvika

Píratar tilkynna að þeir hafa sent erindi á formenn stjórnar­andstöðu­flokkanna um að hefja stjórnar­myndunar­viðræður fyrir kosningar. Tilgangurinn að kjósendur geti tekið upplýstari ákvörðun í kosningum en áður.

Píratar
Píratar Mælast með í kringum 20% fylgi í skoð­ana­könn­unum. Mynd: Kristinn Magnússon

Píratar tilkynntu á blaðamanna­fundi rétt í þessu að þeir útilokuðu samstarf með Sjálfstæðis­flokknum og Framsóknar­flokknum, til að fyrir­byggja „spillingu“ og  „pólitíska ómöguleika“. 

Þeir hafa haft samband við aðra flokka um að hefja viðræður um málefni strax, svo unnt verði að kynna niður­stöður viðræðnanna og þær mála­myndanir sem yrðu fylgi­fiskur viðræðnanna fyrir kosningar, fremur en eftir kosningar, eins og venja er.

Birgitta Jóns­dóttir, þingmaður Pírata, sagði að ekki hefði tíðkast á Íslandi að kjósendur fengju að vita hvað þeir fengju eftir kosningarnar og að það væri hluti stjórnmála­hefðarinnar að svíkja kosninga­loforð.

„Píratar eru tilbúnir til að hefja strax formlegar viðræður um samstarf við aðra flokka út frá fimm megin áherslum Pírata til þess að geta lagt drög að stjórnar­sáttmála áður en þjóðin gengur til kosninga,“ sagði Birgitta Jóns­dóttir, í yfir­lýsingu sem lesin var upp.

„... kjósendur eigi heimtingu á því að vita hvaða þýðingu atkvæði þeirra hefur“

„Ákvörðun þessi var tekin á grund­velli þess að Píratar trúa á mikilvægi upplýstrar ákvarðana­töku og að kjósendur eigi heimtingu á því að vita hvaða þýðingu atkvæði þeirra hefur þegar þeir skila því í kjör­kassann á kjördag. Alltof oft hefur það gerst að þeir flokkar sem fara saman í stjórnar­samstarf brjóti kosninga­loforð sín um leið og stjórnar­sáttmáli er undir­ritaður og svíkja þannig kjósendur sína og bera við „pólitískum ómöguleika“. Það vilja Píratar ekki gera og því var ákveðið að fara þessa leið,“ sagði í yfir­lýsingunni.

Haft samband við fjóra flokka

Píratar hafa sent bréf til  formanna Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Viðreisnar. „Þetta eru þau framboð sem við teljum líklegast að komist inn sem við teljum okkur fært að standa með,“ sagði Smári McCarthy, oddviti flokksins í Suður­kjördæmi, spurður hvers vegna haft hefði verið samband við þessa tilteknu flokka.

„Forvitnilegt að sjá hvort við náum samstöðu um grund­vallarmál,“ sagði Birgitta Jóns­dóttir.

Bréfin voru send í morgun og því hafa enn ekki borist svör frá forsvars­mönnum flokkanna.

„Pólitískur ómöguleiki“ að standa við kosningaloforð

Sjálfstæðis­flokkurinn og Framsóknar­flokkurinn voru harðlega gagn­rýndir á fyrri hluta kjör­tímabilsins fyrir að neita að halda þjóðar­atkvæða­greiðslu um framhald viðræðna við Evrópu­sambandið og slíta þeim þess í stað einhliða með bréfi frá Gunnari Braga Sveins­syni utan­ríkis­ráðherra. 

Formenn beggja flokka höfðu lofað því fyrir kosningar að leysa málið með þjóðar­atkvæða­greiðslu, en Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formenn flokkanna, lýstu því að ekki gengi upp að láta almenning ráða í málinu þar sem þing­flokkar beggja stjórnar­flokkanna væru andvígir inngöngu í Evrópu­sambandið. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, lýsti því í samtali við Kast­ljósið sem „pólitískum ómöguleika“: „Ég get ekki fyllilega staðið við það að láta fara fram þjóðar­atkvæða­greiðslu um það hvort við höldum áfram viðræðum við Evrópu­sambandið þar sem það er pólitískur ómöguleiki til staðar.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár