Hafdís Helga: Sært stolt Lilju „dýru verði keypt fyrir skattgreiðendur“

Hafdís Helga Ólafs­dóttir skrif­stofu­stjóri segir að máls­höfðun Lilju Alfreðs­dóttur á hendur sér sé dæmi um vald­beit­ingu á kostnað skatt­greið­enda sem aldrei megi end­ur­taka sig.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Hafdís Helga Ólafs­dóttir, sem samið hefur við íslenska ríkið um greiðslu miska­bóta vegna brots Lilju Alfreðs­dóttur fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á jafn­rétt­islögum, segir að „sært stolt“ ráð­herr­ans hafi reynst „dýru verði keypt fyrir skatt­greið­endur“.

Þetta kemur fram í færslu Hafdísar Helgu á Facebook, þar sem hún tjáir sig um lyktir máls­ins, en eins og Kjarninn sagði frá fyrr í dag hefur mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­ið, sem nú er undir stjórn Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar, ákveðið að falla frá áfram­hald­andi mála­rekstri gegn Haf­dísi Helgu og semja við hana um greiðslu miska­bóta.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að upp­hæðin sem verði greidd sé 2,3 millj­ónir króna.

Lopinn teygður fram yfir kosningar

Í færslu sinni kallar Hafdís Helga mál­sókn ráð­herr­ans for­dæma­lausa. „Ráðherra freist­aði þess sem sagt að fá þeim úrskurði kæru­nefnd­ar­innar hnekkt að hún hefði sjálf brotið jafn­rétt­islög. Til þess þurfti hún að draga mig per­sónu­lega fyrir dóm sem þvæld­ist nú ekki fyrir henni. Ekki tókst henni ætl­un­ar­verk sitt. Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 5. mars 2021 í máli E- 5061/2020 þar sem ekki var fall­ist á eina ein­ustu máls­á­stæðu ráð­herr­ans og voru þær all­nokkrar,“ segir Hafdís í færslu sinni.

Hafdís Helga bætir við að ráð­herr­ann hafi þrátt fyrir það kosið að „áfrýja til Lands­réttar fjórum klukku­tímum síðar þrátt fyrir sterkan dóm“, sem sé fáheyrt og þannig á að „teygja lopann fram yfir kosn­ingar.“

„Allir vita hvernig þær fóru en málið komst svo loks á dag­skrá Lands­réttar 28. febr­úar 2022. Það hefur nú hins vegar verið aft­ur­kallað af hálfu rík­is­ins og eftir stendur afdrátt­ar­laus hér­aðs­dómur um brot ráð­herr­ans Lilju Alfreðs­dóttur á jafn­rétt­islögum - sært stolt hennar hefur reynst dýru verði keypt fyrir skatt­greið­endur,“ segir í færslu Hafdísar Helgu.

„Þetta má ekki endurtaka sig, hvorki á þessu sviði né öðrum“

Hún bætir við „þessu harð­ræði“ sé sem sagt lokið – og að hennar skila­boð séu ein­föld.

„Þetta má ekki end­ur­taka sig, hvorki á þessu sviði né öðrum. Að slík vald­beit­ing sé við­höfð og þjösnast á ein­stak­lingi fyrir engar sakir svo mán­uðum og árum skiptir í skjóli rík­is­ins og á kostnað skatt­greið­enda,“ segir Hafdís Helga, sem seg­ist svo bíða spennt „eftir því hvað umboðs­maður Alþingis leggur til í málum þeirra ein­stak­linga sem verða fyrir því óláni - svo vísað sé til orða hans sjálfs í ágúst sl. á Laga­deg­inum - að kæra til stjórn­valda, vinna og þurfa svo að sæta því að þurfa að taka til varna.“

„Á þessu langa óvissu­tíma­bili, sam­hliða m.a. jarð­skjálftum, eld­gosi og Covid hefur rifið í bæði í mínu vinnu­lífi og fjöl­skyldu­lífi, já fyrir þær sakir einar að leita réttar míns eftir lög­boðnum leiðum, í kjöl­far þess að sækja um starf sem ég fékk sem betur fer ekki. Varð svo hluti af besta skets í ára­mótaskaupi fyrr og síðar með hest­inum Blesa frá Haf­ur­stöðum. Dæmi svo bara hver fyrir sig hvort það sé þess virði að leita réttar síns í jafn­réttisparadís­inni Íslandi…“ segir Hafdís Helga einnig, í færslu sinni um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár