Ásmundur Einar Daðason, Hafdís Helga Ólafsdóttir og Lilja Alfreðsdóttir.
Ásmundur Einar Daðason, Hafdís Helga Ólafs­dóttir og Lilja Alfreðs­dóttir. Mynd: Samsett

Íslenska ríkið fellur frá málarekstrinum gegn Hafdísi Helgu og greiðir henni miskabætur

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu 2020 að Lilja Alfreðs­dóttir hefði brotið jafn­rétt­islög þegar hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra.

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið, undir stjórn Ásmundar Einars Daða­sonar, hefur ákveðið að falla frá áfram­hald­andi mála­rekstri gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur og semja við hana um greiðslu miska­bóta. Heim­ildir Kjarnans herma að upp­hæðin sem verður greidd sé 2,3 millj­ónir króna.

Hafdís Helga var á meðal þeirra sem sóttu um starf ráðu­neyt­is­stjóra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar það var aug­lýst árið 2019. Þann 1. nóv­em­ber saman ár var Páll Magn­ús­son skip­aður í starfið. Hafdís Helga kærði þá nið­ur­stöðu til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála þar sem hún taldi ljóst að reynslu­minni og minna mennt­aður karl­maður hefði verið ráðin í starfið sem hún sótt­ist eft­ir. Gögnin hafi sýnt að ráðn­ing­ar­ferlið hefði ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga og reglna og Haf­dís Helga taldi sig ekki hafa fengið sann­gjarna og óhlut­dræga með­höndlun af hálfu ráðu­neyt­is­ins.

Kæru­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að Lilja Alfreðs­dóttir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefði brotið jafn­rétt­islög með ráðn­ingu Páls. Lilja ákvað að íslenska ríkið myndi stefna Hafdísi Helgu per­sónu­lega til að fá úrskurð kæru­nefnd­ar­innar ógildan.

Í mars í fyrra hafn­aði hér­aðs­dómur Reykja­víkur öllum máls­á­stæðum Lilju og sagði í nið­ur­stöðu sinni að ekki hafi verið fyrir hendi neinir „ann­markar á máls­með­ferð kæru­nefnd­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði henn­ar.“

Lilja ákvað að áfrýja dómnum rúmum fjórum klukku­stundum eftir að hann hafði fall­ið. Þar með lá fyrir að málið yrði í áfrýj­un­ar­ferli að minnsta kosti fram yfir þing­kosn­ingar, sem fram fóru 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Eftir kosn­ing­arnar end­ur­nýj­uðu fyrri stjórn­ar­flokkar sam­starf sitt en mála­rekstur Lilju gegn Hafdísi Helgu varð eftir í nýju barna- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti sem Ásmundur Einar Daðason, flokks­bróðir Lilju, sett­ist í. Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um afstöðu hans til mála­rekst­urs­ins í byrjun des­em­ber í fyrra en fékk engin svör.

Málið á dagskrá í lok mánaðar

Í byrjun febr­úar kom málið nokkuð óvænt inn á dag­skrá Lands­réttar. Mál­flutn­ingur skyldi fara fram 28. febr­úar 2022.

Í aðdrag­anda þessa höfðu átt sér stað umtals­verð sam­skipti milli máls­að­ila þar sem lög­maður Hafdísar Helgu, Áslaug Árna­dóttir, kall­aði eftir upp­lýs­ingum um hvað ráðu­neyti Ásmundar Einars ætl­aði að gera. Þegar málið var komið á dag­skrá Lands­réttar varð meira knýj­andi að fá svar frá ráðu­neyt­inu og settum rík­is­lög­manni. Tíminn leið.

Svörum var lofað í byrjun febr­úar, en þau bár­ust ekki. Svo áttu þau að ber­ast viku síðar, en gerðu það ekki. Loks lá fyrir að Ásmundur Einar myndi láta aft­ur­kalla mála­rekst­ur­inn en það var ekki gert form­lega fyrr en á fimmtu­dag með sam­komu­lagi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Og ekki gert opin­bert fyrr en í dag þegar málið var tekið út af dag­skrá Lands­réttar, síð­asta virka dag áður en að mál­flutn­ingur átti að fara fram í Lands­rétti.

Hafdís Helga gat ekki sótt skaða­bætur vegna þess að ekki lá fyrir að hún hefði fengið starf ráðu­neyt­is­stjóra ef Páll, sem hefur gegnt mýmörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og bauð sig eitt sinn fram til for­mennsku í honum, hefði ekki verið ráð­inn. Af þeim þrettán sem sóttu um emb­ættið mat hæf­is­nefnd fjóra umsækj­endur mjög hæfa til að gegna því og Lilja tók þá fjóra í við­tal. Á meðal þeirra var Páll en ekki Hafdís Helga. Ógjörn­ingur er því að sýna fram á að Hafdís Helga hefði verið tekin fram fyrir þá tvo sem út af standa í mjög hæfa hópnum til að sækja skaða­bætur vegna tekju­taps, sem hefði verið mis­mun­ur­inn á launum ráðu­neyt­is­stjóra og núver­andi starfi hennar út starfs­fer­il­inn, út frá fyr­ir­liggj­andi gögnum.

Þess vegna var samið um miska­bætur.

Kostn­að­­ur­ rík­is­ins við rekstur máls­ins fyrir hér­­aðs­­dómi nam alls 8,7 millj­­ónum króna. Áætlað var að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar yrði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­­ónir króna án virð­is­auka­skatts.

Til við­bótar bæt­ist sá kostn­aður sem fellur til vegna greiðslu miska­bóta.

Fordæmalaus málarekstur

Lilja er ekki fyrsti íslenski ráð­herr­ann sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurðar um að hafi broti jafn­rétt­islög. Hún varð hins vegar fyrsti ráð­herr­ann sem ákvað að una ekki nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála og höfða þess í stað mál per­sónu­lega gegn Haf­dísi Helgu í nafni íslenska rík­is­ins.

Þegar greint var frá þeirri ákvörðun Lilju að stefna Haf­dísi Helgu kom fram að sú ákvörðun hefði verið tekin eftir að ráð­herr­ann hefði aflað sér lög­­­fræð­i­á­lita sem bent hefðu á laga­­­lega ann­­­­marka í úrskurði kæru­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar. Úrskurð­­­­ur­inn byði upp á laga­­­­lega óvissu í tengslum við það ferli sem unnið væri eftir við skipan emb­ætt­is­­­­manna. Þeirri laga­ó­vissu vildi Lilja eyða. Kjarn­inn óskaði eftir því í byrjun að fá umrædd lög­­­fræð­i­á­lit sem stefnan byggir á og ekki hefur verið upp­lýst hverjir unnu afhent, en var synj­að.

Kjarn­inn kærði þá nið­­­ur­­­stöðu til úrskurð­­­ar­­­nefndar um upp­­­lýs­inga­­­mál sem komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í ágúst 2020 að Lilja þyrfti ekki að afhenda álit­in.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur birti dóm sinn í mál­inu föstu­dag­inn, 5. mars 2021. Hann var afdrátt­ar­laus og hafn­aði öllum laga­legum aðfinnslum Lilju við nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. ­Sam­andregið var það nið­ur­staða dóms­ins að „ekki hafi verið fyrir hendi neinir ann­markar á máls­með­ferð kæru­nefnd­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði henn­ar.“

Kæru­nefndin hefði byggt úrskurð sinn á ákvæðum laga og mál­efna­legum sjón­ar­mið­um, beitt lög­mætum aðferðum í úrlausn sinni og rök­stutt nið­ur­stöðu sína ítar­lega. „Þá verður nefndin ekki talin hafa farið út fyrir vald­svið sitt eða verk­svið, hvorki við mat á ein­stökum hæfn­is­þáttum eða við heild­ar­skoð­un á ráðn­ing­ar­ferl­inu. Verður nefndin því ekki talin hafa gengið of langt við end­ur­skoðun á mati veit­ing­ar­valds­hafans. Þannig standa eng­in rök til þess að ó­gilda úr­skurð ­nefnd­ar­inn­ar. ­Dóm­ur­inn hafn­ar því kröfu stefn­anda, íslenska rík­is­ins, um að úrskurður kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála[...]verði felldur úr gild­i.“

Allur máls­kostn­aður Haf­dís­ar Helgu, alls 4,5 millj­ónir króna, átti að greið­ast úr rík­is­sjóð­i.

Nokkrum klukku­stundum eftir að dóm­ur­inn lá fyrir feng­ust þær upp­lýs­ingar frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu að dómnum yrði áfrýjað til Lands­rétt­ar. Sam­hliða sagði ráðu­neytið að Lilja ætl­aði ekki að tjá sig um nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms Reykja­víkur á meðan að á áfrýj­un­ar­ferl­inu stæði.

Hún gerði það samt sem áður nokkrum dögum síðar og sagði við RÚV að ákvörð­unin um að stefna Haf­dísi Helgu hefði ekki verið létt­væg en að hún hafi verið „tekin í kjöl­far þess að ég fékk álit sér­fræð­inga á þessu sviði að rök­stuðn­ing­ur­inn á sínum tíma að hann hefði ekki verið full­nægj­andi. Það er að segja að kær­anda hefði verið mis­munað á grund­velli kyn­ferð­is.“ Það hafi verið hennar skylda að fara í ógild­ing­ar­mál á grund­velli þess sér­fræði­á­lits. Um lög­fræði­legt álita­mál væri að ræða.

Nú hefur, líkt og áður sagði, verið fallið frá þeim mála­rekstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár