Þegar konu var stefnt persónulega fyrir að telja sér mismunað á grundvelli kynferðis

Lilja D. Alfreðs­dóttir ákvað að skipa flokks­bróður sinn sem ráðu­neyt­is­stjóra. Það gerði hún á grunni mats sem hæf­is­nefnd, stýrt af trún­að­ar­manni ráð­herra, hafði unnið. Einn umsækj­andi kærði ráðn­ing­una til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála og vann.

Þann 1. nóv­em­ber 2019 var greint frá því að Páll Magn­ús­son hefði verið skip­aður í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu til fimm ára. Hann var þá bæj­ar­rit­ari Kópa­vogs­bæjar og hafði áður starfað sem sviðs­stjóri stjórn­sýslu­sviðs sveit­ar­fé­lags­ins um langt skeið.

Páll átti sér hins vegar líka langa póli­tíska for­tíð og hafði árum saman gengt trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, sama flokks og Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann sem skip­aði hann í emb­ætti, er vara­for­maður í. Páll var meðal ann­ars vara­bæj­ar­full­trúi í Kópavogi á tíunda ára­tugnum, vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í tvö kjör­tíma­bil (1999-2007) og aðstoð­ar­maður Val­­­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­­­sókn­­­­ar­­­­flokks­ins um sjö ára skeið. Í byrjun árs 2009 bauð Páll sig fram í for­manns­kjöri Fram­sókn­ar­flokks­ins en laut í lægra haldi fyrir Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni. Tengsl Páls við Fram­sókn­ar­flokk­inn eru því mikil og ná aftur um ára­tugi.

Alls sóttu þrettán manns um emb­ættið. Hæf­is­nefnd mat fjóra umsækj­endur mjög hæfa til þess að gegna því og Lilja boð­aði þá fjóra umsækj­endur í við­tal. Í kjöl­far þeirra við­tala var það mat Lilju að Páll væri hæf­astur umsækj­enda.

Ekki metin á meðal þeirra hæfustu

Einn umsækj­enda, Hafdís Helga Ólafs­dóttir, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, var að mati hæf­is­nefnd­ar­innar ekki talin ein af fjórum hæf­ustu umsækj­endum. Hún sendi tölvu­póst til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins 12. nóv­em­ber 2019 og óskaði eftir rök­stuðn­ingi fyrir ákvörðun um skip­un­ina og öllum gögnum máls­ins. Ráðu­neytið neit­aði upp­haf­lega að verða við ósk hennar um að afhenda öll gögn máls­ins og bar fyrir sig að einka­hags­munir ann­arra væru rík­ari en Hafdísar í mál­inu. Hún gafst þó ekki upp og á end­anum, eftir að Hafdís hafði gert athuga­semdir við afhend­ingu gagna og sent þrjár ítrek­anir um beiðni sína, fékk hún öll gögn máls­ins afhent 13. jan­úar 2020.

Á grund­velli þeirra gagna sem fyrir lágu taldi Hafdís ljóst að reynslu­minni og minna mennt­aður karl­maður hefði verið ráðin í starfið sem hún sótt­ist eftir. Gögnin hafi sýnt að ráðn­ing­ar­ferlið hefði ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga og reglna og Hafdís taldi sig ekki hafa fengið sann­gjarna og óhlut­dræga með­höndlun af hálfu ráðu­neyt­is­ins. Hún ákvað að kæra málið til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Páll Magnússon var skipaður í embætti ráðuneytisstjóra. Hann var virkur í stjórnmálum um langt skeið og bauð sig meðal annars fram til formanns í Framsóknarflokknum árið 2009, en tapaði.
Páll Magn­ús­son var skip­aður í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Hann var virkur í stjórn­málum um langt skeið og bauð sig meðal ann­ars fram til for­manns í Fram­sókn­ar­flokknum árið 2009, en tap­aði.

Í kærunni kom meðal ann­ars fram, auk ofan­greinds, að Hafdís teldi að við með­ferð máls­ins hafi vís­vit­andi verið gert lítið úr hæfni hennar, menntun og reynslu, en að sama skapi hafi verið gert meira úr reynslu Páls á ákveðnum sviðum en efni hafi staðið til. Hafdís taldi sig búa yfir frek­ari menntun og meiri og fjöl­breytt­ari starfs­reynslu og væri því hæf­ari en Páll.

Formaðurinn í fjölmörgum nefndum

Hæf­is­nefndin sem ákvað að Hafdís væri ekki á meðal fjög­urra hæf­ustu umsækj­enda um stöðu ráðu­neyt­is­stjóra sam­an­stóð af Einari Huga Bjarna­syni lög­manni, sem var for­maður hennar, Kristínu Ing­ólfs­dóttur, fyrr­ver­andi rektor Háskóla Íslands, og Guðríði Sig­urð­ar­dóttur, sér­fræð­ingi í ráðn­ingum.

Einar Hugi hefur gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Lilju og hefur verið full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í minnst sjö öðrum nefndum. Fram á mitt ár í fyrra hafði ráðu­neytið greitt honum alls 15,5 millj­ónir króna fyrir lög­­­fræð­i­ráð­­­gjöf og nefnd­­­ar­­­setu á vegum ráðu­­­neyt­is­ins á kjör­tíma­bil­inu. Einar Hugi var á sínum tíma full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Stjórn­ar­skrár­nefnd og sat með Lilju í sér­fræði­hóp for­sæt­is­ráð­herra um skulda­vanda heim­il­anna þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gegndi þeirri stöðu árið 2013, og Lilja var lánuð úr Seðla­banka Íslands til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins til að starfa með Sigmundi Davíð.

Á meðal þeirra nefnda sem Einar Hugi situr í er fjöl­miðla­nefnd, þar sem hann er for­maður. Hann var skip­aður í þá stöðu í nóv­em­ber 2019, á svip­uðum tíma og til­kynnt var um nýjan ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Við skipan hans í þá stöðu fór Lilja gegn lög­­­fræð­i­ráð­­­gjöf og nefnd­­­ar­­­setu á vegum ráðu­­­neyt­is­ins sem sett var fram í minn­is­blaði. Þeir mæltu með að Halldóra Þor­steins­dóttir yrði gerð að for­manni. Hún hafði áður átt sæti í nefnd­inni og verið þar vara­for­maður.

Ákvörðun Lilju var víða gagn­rýnd bæði fyrir það að skipa Einar Huga, sem hefur litla sem enga reynslu á sviði fjöl­miðla­réttar, í stöð­una, og vegna þess að með skipan hans var sam­setn­ing stjórn­ar­innar þannig að þrír karlar sátu í henni, en ein kona. Kynja­hlut­föll hefðu verið jöfn ef Halldóra hefði verið skipuð.

Braut gegn jafnréttislögum

Skemmst er frá því að segja að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu, í úrskurði sem er dag­settur í lok maí 2020, að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög við skipun Páls í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyti sínu.

Að mati kæru­nefnd­ar­innar gætti ýmissa ann­marka af hálfu hæfn­is­nefnd­ar­innar við mat á Hafdísi ann­ars vegar og Páli hins vegar. Þannig hefði hæfn­is­nefndin til að mynda van­metið Hafdísi í sam­an­burði við Pál varð­andi menntun, reynslu af opin­berri stjórn­sýslu, leið­toga­hæfi­leika og hæfni til að tjá sig í riti. Allt hefðu þetta verið for­taks­laus skil­yrði sem birt­ust í aug­lýs­ing­unni um emb­ættið.

Hvað mennt­un­ar­þátt­inn varð­aði tók kæru­nefndin fram að með hlið­sjón af eðli starfs ráðu­neyt­is­stjóra og lýs­ingu á því í aug­lýs­ingu um emb­ættið yrði guð­fræði­menntun Páls ekki talin nýt­ast með sama hætti og grunn­nám Hafdísar í lög­fræði í slíku starfi. Hvað varðar mats­flokk­inn reynsla af opin­berri stjórn­sýslu tók kæru­nefndin fram að ljóst væri að Hafdís ætti að baki lengri reynslu af opin­berri stjórn­sýslu en Páll og að hún hafi aflað sér reynslu og þekk­ingar sem hafi „veru­legt vægi í opin­berri stjórn­sýslu að því marki sem hún nýt­ist í störfum ráðu­neyt­is­stjóra“.

Hafdís hafi því staðið Páli framar í emb­ættið.

Fleiri ráðherrar hafa á undanförnum árum orðið uppvísir að því að brjóta gegn jafnréttislögum. Þeirra á meðal er Jóhanna Sigurðardóttir, sem var forsætisráðherra á árunum 2009-2013.
Fleiri ráð­herrar hafa á und­an­förnum árum orðið upp­vísir að því að brjóta gegn jafn­rétt­islögum. Þeirra á meðal er Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, sem var for­sæt­is­ráð­herra á árunum 2009-2013.

Heilt yfir var það mat kæru­nefnd­ar­innar að ekki hefði tek­ist að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hefðu legið til grund­vallar ákvörðun um skipun í emb­ættið og hefði mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra því brotið gegn jafn­rétt­islögum.

Nokkrir aðrir brotið gegn jafnréttislögum

Lilja er sann­ar­lega ekki fyrsti ráð­herr­ann sem ger­ist sekur um að brjóta jafn­rétt­islög. Ögmundur Jón­as­son gerði það þegar hann var inn­an­rík­is­ráð­herra og skip­aði sýslu­mann á Húsa­vík árið 2012. Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, þá for­sæt­is­ráð­herra, braut gegn jafn­rétt­islögum þegar hún skip­aði karl í emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu stjórn­sýslu og þró­unar árið 2011. Þegar það gerð­ist tók Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, málið upp í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. Í ræðu sinni sagði Bjarni meðal ann­ars: „Stað­reynd máls­ins er hins vegar sú að það blasir við allri þjóð­inni að for­sæt­is­ráð­herra hlýtur að vera að íhuga afsögn vegna þessa máls og fyrstu við­brögð hennar við nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar ganga alger­lega í ber­högg við einn meg­in­til­gang þess frum­varps sem varð að jafn­rétt­islögum fyrir fáum árum, t.d. um að úrskurðir kæru­nefnd­ar­innar væru bind­andi.“

Jóhanna taldi ekki til­efni til að segja af sér.

Nokkrum árum síðar, vorið 2017, var Bjarni for­sæt­is­ráð­herra. Þá komst kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra árið áður, brotið jafn­rétt­islög þegar hann valdi karl­mann sem starf­aði í ráðu­neyti hans í emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu opin­berra fjár­mála.

Lilja er hins vegar fyrsti ráð­herr­ann sem ákvað að una ekki nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála og höfða þess í stað mál per­sónu­lega gegn Hafdísi í nafni íslenska rík­is­ins.

Þegar greint var frá þeirri ákvörðun Lilju að stefna Hafdísi kom fram að sú ákvörðun hefði verið tekin eftir að ráð­herr­ann hefði aflað sér lög­­fræð­i­á­lita sem bent hefðu á laga­­lega ann­­­marka í úrskurði kæru­­­nefnd­­­ar­inn­­­ar. Úrskurð­­­ur­inn byði upp á laga­­­lega óvissu í tengslum við það ferli sem unnið sé eftir við skipan emb­ætt­is­­­manna. Þeirri laga­ó­vissu vildi Lilja eyða. ­

Dómur í málinu féll í héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag.
Dómur í mál­inu féll í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á föstu­dag.

Kjarn­inn óskaði eftir því í byrjun að fá umrædd lög­­fræð­i­á­lit sem stefnan byggir á og ekki hefur verið upp­lýst hverjir unnu afhent, en var synj­að.

Kjarn­inn kærði þá nið­­ur­­stöðu til úrskurð­­ar­­nefndar um upp­­lýs­inga­­mál sem komst að þeirri nið­ur­stöðu í ágúst að Lilja þyrfti ekki að afhenda álit­in.

Öllum málatilbúnaði hafnað

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur birti dóm sinn í mál­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag, 5. mars. Hann er afdrátt­ar­laus og hafnar öllum laga­legum aðfinnslum Lilju við nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Sam­an­dregið var það nið­ur­staða dóms­ins að „ekki hafi verið fyrir hendi neinir ann­markar á máls­með­ferð kæru­nefnd­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði hennar.“

Kæru­nefndin hefði byggt úrskurð sinn á ákvæðum laga og mál­efna­legum sjón­ar­miðum, beitt lög­mætum aðferðum í úrlausn sinni og rök­studdi nið­ur­stöðu sína ítar­lega. „Þá verður nefndin ekki talin hafa farið út fyrir vald­svið sitt eða verk­svið, hvorki við mat á ein­stökum hæfn­is­þáttum eða við heild­ar­skoðun á ráðn­ing­ar­ferl­inu. Verður nefndin því ekki talin hafa gengið of langt við end­ur­skoðun á mati veit­ing­ar­valds­hafans. Þannig standa engin rök til þess að ógilda úrskurð nefnd­ar­innar. Dómurinn hafnar því kröfu stefn­anda, íslenska rík­is­ins, um að úrskurður kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála[...]verði felldur úr gildi.“

Allur máls­kostn­aður Hafdísar, alls 4,5 millj­ónir króna, greið­ist úr rík­is­sjóði.

Ákvörðun um áfrýjun á nokkrum klukkustundum

Nokkrum klukku­stundum eftir að dóm­ur­inn lá fyrir feng­ust þær upp­lýs­ingar frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu að dómnum yrði áfrýjað til Lands­réttar. Samhliða sagði ráðu­neytið að Lilja ætl­aði ekki að tjá sig um nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms Reykja­víkur á meðan að á áfrýj­un­ar­ferl­inu stendur. Allar líkur standa til þess að það ferli muni teygja sig fram yfir kom­andi þing­kosn­ingar, sem fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra jafn­rétt­is­mála greindi frá því í gær, þriðju­dag, í við­tali við Vísi að ákvörð­unin um að áfrýja mál­inu væri alfarið á for­ræði Lilju. „Þetta hefur ekki verið rætt við rík­is­stjórn­ar­borðið eftir að þessi dómur féll og ekki við mig eftir að þessi dómur féll.“

Lilja sjálf ákvað, þrátt fyrir fyrri yfir­lýs­ingar, að tjá sig um málið eftir rík­is­stjórn­ar­fund í gær­morgun. Hún sagði við RÚV að ákvörð­unin um að stefna Hafdísi hefði ekki verið létt­væg en að hún hafi verið „tekin í kjöl­far þess að ég fékk álit sér­fræð­inga á þessu sviði að rök­stuðn­ing­ur­inn á sínum tíma að hann hefði ekki verið full­nægj­andi. Það er að segja að kær­anda hefði verið mis­munað á grund­velli kyn­ferðis.“ Það hafi verið hennar skylda að fara í ógild­ing­ar­mál á grund­velli þess sér­fræði­á­lits. Um lög­fræði­legt álita­mál væri að ræða.

Aðspurð hvað hún myndi gera ef málið tap­að­ist í Lands­rétti sagði Lilja: „Við auð­vitað metum stöð­una þá eins og við gerum alltaf.“

Þannig liggur ljóst fyrir að ráð­herr­ann byggir ákvörðun sína um áfrýjun máls­ins á sömu lög­fræði­á­litum og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið neitar að afhenda fjöl­miðlum eða upp­lýsa þá um hverjir unnu, og hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur sagt með dómi að sé lög­fræði­lega rangt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár