Innergex orðið stærsti eigandi HS Orku - Greiddi upp skuldabréf við OR

Kanadíska orku­fyrirtækið Innergex er formlega orðið eigandi að 53,9 prósent hlut í HS Orku, sem á nokkur orkuver á Íslandi og 30 prósent hlut í Bláa Lóninu.

Ásgeir Margeirsson er forstjóri Hs Orku.
Ásgeir Mar­geirs­son er for­stjóri Hs Orku. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kaup kanadíska fyrir­tækisins Innergex Renewable Energy á Alterra Power, stærsta eiganda HS Orku, gengu formlega í gegn í gær. Kaup­verðið er 1,1 milljarður Kanadalir, eða um 89 milljarðar króna.

Kjarninn greindi frá því að samþykkt hefði verið að selja Alterra Power til Innergex í lok október síðastliðins. Nú er hins vegar búið að ganga formlega frá kaupunum og 53,9 prósent hlutur Alterra Power í HS Orku, sem fyrir­tækið átti í gegnum dóttur­félag sitt Magma Energy Sweden, er nú í eigu Innergex, sem er skráð á markað í Kanada. Aðrir eig­endur HS Orku eru félagið Jarð­varmi, sem er í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Samhliða því að gengið var formlega frá kaupunum hafa nýir eigendur greitt upp svokallað „Magma-skulda­bréf“ sem gefið var út í tengslum við kaup Magma Energy Sweden á hlut Orkuveitu Reykja­víkur (OR) í HS Orku árið 2009. Loka­greiðslan nam um 39 milljónum Bandaríkja­dala, sem svara til tæplega fjögurra milljarða króna og var á gjalddaga í apríl 2018.

Á 30 prósent hlut í Bláa lóninu

HS Orka er eina íslenska orku­fyrirtækið sem er í eigu einka­aðila. HS Orka á og rekur orku­ver í Svarts­engi og á Reykja­nesi auk þess sem virkj­ana­kostir sem fyr­ir­tækið á eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­un­ar.

HS Orka skil­aði 2,8 millj­arða króna hagn­aði árið 2016 og eignir félags­ins voru metnar á um 45 millj­arða króna. Á meðal þeirra eigna er 30 pró­sent hlutur í Bláa lón­inu sem met­inn var á 1,8 millj­arð króna í síð­asta birta árs­reikn­ingi HS Orku. Í fyrra bár­ust nokkur til­boð í þann hlut sem voru yfir ell­efu millj­örðum króna. Alterra vildi taka þeim til­boðum en Jarð­varmi hafn­aði því og for­svars­maður fyr­ir­tæk­is­ins sagði að til­boðin end­ur­spegl­uðu ekki verð­mæti Bláa Lóns­ins. Heild­­ar­virði Bláa lóns­ins sam­­kvæmt til­­­boð­unum sem fyrir lágu var 37 millj­­arðar króna.

For­svars­menn Alterra voru ekki ánægðir með að til­boð­unum hafi ekki verið tek­ið. En minni­hluta­eig­end­urnir í HS Orku, Jarð­varmi sem er í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, gátu hafnað þeim vegna hlut­hafa­­sam­komu­lags um minn­i­hluta­vernd sem gert var þegar Jarð­varmi keypti upp­­haf­­lega hlut í HS Orku sum­­­arið 2011.

Umdeild kaup á sínum tíma

Alterra, sem þá hét Magma Energy, keypti sig inn í HS Orku árið 2009. Við­skiptin voru mjög umdeild og þáver­andi stjórn­völdum hugn­að­ist þau ekki. Þrátt fyrir ítrek­aðar inn­grip­stil­raunir hélt Mag­ma/Alterra áfram að eign­ast hluti í HS Orku og átti vorið 2011 nán­ast allt hluta­féð í fyr­ir­tæk­in­u.

Jarð­varmi keypti svo hlut í HS Orku í maí 2011 og nýtti kaup­rétt á við­bót­ar­hlut ári síð­ar. Sam­an­lagt á það félag núna 33,4 pró­sent hlut. Síðsumars keypti svo fjár­festingar­sjóðurinn Örk 12,7 pró­sent hlut, en Alterra átti rest þar til í gær. Inn­lendir aðilar eiga því 46,1 pró­sent hlut í HS Orku á móti Innergex, sem á 53,9 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár