Hluthafi í Festi vill að félagið heiti Sundrung

Sundrung hf verður nýtt nafn almennings­hluta­félagsins Festi hf samkvæmt tillögu sem liggur fyrir hluthafa­fundi félagsins sem fram fer í næstu viku. Festi á og rekur meðal annars Krónu­verslanirnar og N1. Styr hefur staðið um félagið, sem er að lang­stærstum hluta í eigu íslenskra lífeyris­sjóða, eftir að forstjóranum var sagt upp störfum.

Krónur í kassann
Krónur í kass­ann Rekstur fyr­ir­tækja í eigu Festar, svo sem mat­vöru­versl­ana­keðj­unnar Krón­unnar, hefur skilað félag­inu tals­verðum hagn­aði und­an­farin ár. Fimm millj­arða hagn­aður var af sam­stæð­unni í fyrra. Mynd: Davíð Þór

Hluthafi í almennings­hluta­félaginu Festi leggur til að nafni félagsins verði Sundrung. Tillagan verður tekin fyrir á hluthafa­fundi félagsins sem fram fer á fimmtudag í næstu viku. Talsverð átök hafa verið á milli hluthafa en Festi er að lang­stærstum hluta í eigu íslenskra lífeyris­sjóða, eða um 73 prósent. Ekki kemur fram í dagskrá hluthafa­fundarins hvaða hluthafi leggur nafna­breytinguna til. 

Fram kom í skýrslu tilnefningar­nefndar Festar, sem gerði tillögur um stjórnar­fólk í félaginu, að ekki hafi tekist að finna mála­miðlun um stjórn sem tæki tillit til sjónar­miða flestra hluthafa. „Þegar grannt var skoðað mátti sjá að áherslur í hópi hluthafa, bæði lífeyris­sjóða og einka­fjárfesta, stönguðust svo mjög á að slík lending væri óraunhæf. Þá er lausnin einfald­lega opin kosning á hluthafa­fundi með sínum kostum og göllum,“ segir í skýrslunni. Var því gerð tillaga um níu mögulega stjórnar­menn þó aðeins séu fimm í stjórn.

Nefndin varar líka við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
    Sundrung no kvk ORÐHLUTAR: sundr-ung
    ósamkomulag, ósætti
    DÆMI: það kom upp sundrung í stjórnmálaflokknum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár