Braut gegn tveimur stúlkum og fékk ekki uppreist æru

Maðurinn sem Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra vildi ekki að fengi uppreist æru er á sjötugsaldri og var dæmdur í 18 mánaða fangelsi árið 2005.

Skrifaði ekki undir
Skrifaði ekki undir Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra afgreiddi ekki beiðni kyn­ferð­is­brota­manns um upp­reist æru. Hann dró umsókn sína til baka eftir að umræða vakn­aði um málið. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri X

Maðurinn sem Sigríður Andersen, fráfar­andi dómsmála­ráðherra, neitaði að veita uppreist æru í sumar er á sjötugsaldri og var sakfelldur fyrir kynferðis­brot gegn tveimur ungum stúlkum árið 2005 og dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Önnur stúlkan var 8 til 10 ára gömul þegar brotið var gegn henni en hin var 13 til 14 ára. 

Kynferðis­brota­maðurinn sótti um uppreist æru þann 16. mars 2017 og uppfyllti öll lögformleg skilyrði þess að umsóknin yrði samþykkt af ráðherra og tillagan afhent forseta Íslands til undir­ritunar. Sigríður Andersen fékk minnis­blað um umsóknina þann 4. maí síðastliðinn, en skjalið lá óafgreitt á borði hennar mánuðum saman, allt þar til maðurinn dró umsóknina til baka. Ári áður höfðu tveir kynferðis­brotamenn sem hlutu þyngri dóma fengið uppreist æru.  

Dró umsóknina til baka í kjölfar umræðu

Starfandi dómsmála­ráðherra hefur ítrekað vísað til þess í umræðum um veitingu uppreistar æru og mál barna­níðinganna Roberts Downey og Hjalta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár