Það klikkar ekkert í Sýningunni sem klikkar!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fór að sjá Sýninguna sem klikkar í Borgar­leikhúsinu.

Sýningin sem klikkar
Sýningin sem klikkar Mynd: Grímur Bjarnason

Borgarleikhúsið: Sýningin sem klikkar

Höfundar: Henry Lewis, Jonathan Sayer og Henry Shields.

Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson

Leik­stjórn: Halldóra Geirharðs­dóttir

Leikmynd og búningar: Helga I. Stef­ánsdóttir

Lýsing: Páll Ragnarsson

Hljóð: Garðar Borgþórsson

Leikgerfi: Helga I. Stef­ánsdóttir og Margrét Benedikts­dóttir.

Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Davíð Þór Katrínarson, Hilmar Guðjónsson, Þórunn Arna Kristjáns­dóttir, Birna Rún Eiríks­dóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir.

Það er martröð hvers leikara ef og þegar eitthvað fer úrskeiðis í þaulæfðri leik­sýningu. Þegar það gerist þarf að redda málunum í snatri og helst án þess að nokkur verði mistak­anna var. Stundum tekst það og þá er vel, en svo gerist það að vandræða­gangurinn er öllum auðsær og leikarinn með allt niðrum sig (alveg sama hverjum kenna má mistökin!) og verður að aðhláturs­efni fyrir vikið. Og hver vill verða aðhláturs­efni? Það skiptir því máli í öllum óvæntum uppákomum og óhöppum að halda andlitinu og láta líta svo út að allt sé í himnalagi og að svona eigi það bara að vera.

Hvað þetta varðar er húmorinn í Sýningunni sem klikkar svipaður öllum húmor sem byggir á því að sá sem í klandrinu lendir er sviptur virðingu sinni. Virðing leikarans er í því fólgin að kunna sína rullu og sameiginleg virðing leik­hópsins byggir á því að leik­sýningin gangi snurðu­laust fyrir sig, áhorf­endum til gleði og ánægju. Og sé einhver sviptur virðingu sinni og þar með neyddur til að fara á óundirbúinni hraðferð út úr þægindarammanum sínum – hvort sem hann er venjulegar lífs­rútínur eða þaulæfð leik­sýning – þá verður sá hinn sami hlægilegur. Það er hið ófrávíkjanlega og miskunnar­lausa lögmál alls húmors.

Sýningin sem klikkar byggir beinlínis á þessu, nema hér er er bætt við einni vídd og hún er sú að áhorf­endur vita auðvitað að allt sem klikkar er í rauninni þaulæft. Sýningin sem klikkar er ærsla­fengin sýning í þeirri óviðjafnanlegu list leik­hússins að koma áhorf­andanum á óvart en ávallt innan ramma þess undirbúna og vel skipulagða, rétt eins og loft­fimleika­fólkið í sirkusnum heldur áhorf­endum í spennu yfir áhættu­atriðinu. Það er engin listgrein leik­húsinu lík hvað þetta varðar og Sýningin sem klikkar er glæsileg uppákoma fyrir alla sem unna ærslum og grínaríi sem á sér rætur í trúðleik sirkussins, Keystone-löggum þöglu myndanna, list Chaplins og Buster Keaton. Í Sýningunni sem klikkar kemur flestallt okkur á óvart og það er hluti af því sem kemur áhorfanda til að iða í skinninu af spenningi yfir því hvað muni nú klikka næst. Og þegar tekst að byggja upp stig­magnandi spennu þannig að leikurinn æsist með hverju nýju atriði þar sem eitthvað bregður útaf, þá er allt eins og það á að vera – og sú er raunin hér.

Sýningin hefst á því að sýningar­stjóri sýningarinnar, leikinn af Katrínu Halldóru Sigurðar­dóttur, er að undirbúa sviðið en það gengur ekki vel, það vantar aðstoðar­mann úr hópi áhorfenda og sú uppákoma verður eins konar fyrirboði þess sem koma skal. Það er líka greinilegt að sýningar­stjórinn hefur metnað umfram það að vappa um baksviðs, hana langar til að gerast leikkona og trúið því eða ekki, en sá draumur hennar mun rætast áður en yfir lýkur án þess þó að það hafi verið ætlunin. Leik­stjórinn, leikinn af Bergi Þór Ingólfs­syni, kynnir sýninguna sem heitir því magnaða nafni Morð á meðal vor og hefur lengi verið draumur þessa leikhóps Borgar­leikhússins að setja á svið. Leik­stjórinn leikur auk þess í sýningunni og fer með hlutverk hins ábúðar­fulla Carters Rannsóknar­lögreglu­manns.

Auðvitað er kynningin eins álappaleg og efni standa til og þegar sýningin hefst byrjar líka röð vandræðalegra atvika, mistaka, óhappa og klúðurs af hinu marg­víslegasta tagi, sem stig­magnast sýninguna á enda. Það er alger óþarfi að rekja söguþráð hér, hver sem vill bregður sér einfald­lega í Borgar­leikhúsið og nýtur vitleysunnar.

Hér skal reyndar nöldrað yfir því eina atriði sem telja má aðfinnslu­vert. Það hljómar hreint ekki trúverðug­lega að það séu leikarar við sjálft Borgar­leikhúsið sem setja á svið þessa sýningu sem klikkar eins hrapal­lega og hér er raunin. Frá fyrsta augna­bliki Morðs á meðal vor fer allt í handa­skolum og verður að tómu rugli. Ég spyr hreinlega: Eiga áhorf­endur í raun og veru að trúa því að slíkt hendi leikara og tæknimenn leikhúss sem hefur skilað sýningum á borð við Billy Elliot, Rocky horror, Mary Poppins, Bláa hnöttinn, Matthildi og fleiri glæsi­sýningum? Hefði ekki verið trúverðugra að staðfæra sýninguna á annan hátt og heimfæra hana upp á eitthvert það “einvalalið” leikara sem líklegra er til að klúðra hlutunum en einmitt starfs­menn Borgar­leikhússins. Nöldri lokið!

(Reyndar má í þessu samhengi nefna að í ágætri leikskrá er starfs­mönnum sýningarinnar gert að rekja eftir­minnileg mistök og skyssur sem þeir hafa afrekað á ferli sínum og þar kennir marg­víslegra grasa. Þraut­reyndum atvinnu­mönnum verður á í messunni ekki síður en þeim sem hafa minni reynslu og þjálfun. Ekki skal látið undan freistingunni að rekja það hér …)

Hvað sem líður klaufa­skap leik­hópsins sem af vanburðum reynir að koma frá sér Morði á meðal vor, verður ekki annað sagt en að listamenn Borgar­leikhússins skili frá sér Sýningunni sem klikkar af yfirburða leikni og léttleika. Hver einasta hreyfing er gerð af öryggi og það er óhætt að segja að þótt Morð á meðal vor klikki rækilega þá klikkar ekkert í Sýningunni sem klikkar. Jafnvægið á milli kauðslegrar sýningarinnar á Morði á meðal vor og Sýningarinnar sem klikkar er á köflum hárfínt, en hér gengur allt upp: leikmynd og búningar Helgu I. Stef­ánsdóttur, lýsing Páls Ragnars­sonar og hljóð Garðars Borgþórs­sonar og leikgerfi Helgu og Margrétar Benedikts­dóttur. Leik­hópurinn þarf líka að finna og leika af öryggi á skilin milli þess að vera viðvaningarnir sem valda mistökunum og snillingarnir sem bjarga sér úr þeim og þar á er hvergi misbrestur! Það er auðfundið frá upphafi til enda að hér hafa allir sem að sýningunni standa haft ótrúlega gaman af og sú gleði smitar svo sannarlega af sér yfir sviðs­brúnina og til áhorfenda. Ekki má skilja við Sýninguna sem klikkar án þess að minnast á þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar, sem er vissulega hluti af því að allt klikkar og það er sérstök unun að því að hlusta á sumt ruglið sem ratar útúr munni Hjartar Jóhanns Jónssonar – allt auðvitað þaulæft og spreng­hlægilegt!

Það er í sjálfu sér óþarfi að hafa fleiri orð um Sýninguna sem klikkar. Einfaldast er bara að bregða sér í Borgar­leikhúsið og kætast yfir óförum leikara og tækni­manna og veita sér þá ánægju að finna til þeirra yfirburða sem þeir einir finnst þeir hafa sem hafa fullkomna stjórn á sínu eigin lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár