Þú græðir tugi tíma í vöku með pólskri svefngrímu

Pólska nýsköpunar­fyrirtækið Intelclinic sóttist nýverið eftir 100 þúsund bandaríkja­dölum í svokallað „crowdfunding“ hjá stærstu síðu heims í þeim geira, Kickstarter. Varan sem fyrir­tækið sóttist eftir fjármagni til að framleiða, heillaði fjárfesta svo mikið að fyrir­tækið fékk fjórfalt meira en það sóttist eftir. Í júlí munu fyrstu þrjú þúsund eintökin af NeurOn, fyrstu svefn­grímunni fyrir marg­skiptan svefn, verða send til fjár­festanna. Í kjölfarið fer varan á almennan markað.


> NeurOn svefn­gríman á að geta gert notandanum kleift að skipta úr mónó­fasískum svefni yfir í polyfasískan.

almennt_05_06_2014
almennt_05_06_2014

> Með þessu á notandinn að geta minnkað svefn sinn í tvo til sex klukku­tíma á sólar­hring án þess að það hafi áhrif á fersk­leika viðkomandi.

>Þetta nýja svefn­mynstur, sem samanstendur af nokkrum styttri blundum, á að gera það að verkum að notandinn geti vakað í 28 fleiri tíma á viku.

>Intelclinic heldur því fram að söguleg stórmenni á borð við Da Vinci, Churchill, Jefferson, Franklin, Edison og Napoleon hafi allir sofið á þennan hátt.

Lestu meira um NeuroOn hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár