Almennir borgarar safna fyrir hælisleitendum sem búa við skammarlegar aðstæður

Aðstæður á heimilum hælis­leitenda á Íslandi eru víða eins eða verri en á Skeggja­götu, þar sem menn þurftu, þar til í gær, að borða mat sinn af gólfinu þar sem engir stólar voru fyrir þá til að sitja á. Þetta segir Sema Erla Serdar, sem fór fremst í flokki þeirra sem söfnuðu húsgögnum og öðrum húsbúnaði fyrir fólkið. Söfnunin heldur áfram.

Björg borin í bú
Björg borin í bú Engar hirslur hafa verið á Skeggja­götu, til þess að geyma föt og verð­mæti hæl­is­leit­enda. Því var kippt í lið­inn á þriðju­dags­kvöld. Mynd: Press photos

Brotnir gluggar, bilaðir ofnar, mygla í eldhúsi, ónýtur eldhús­vaskur sem lyktar illa, engar gardínur og slæmur frágangur á rafmagni. Örfáir stólar og borð, lítill sem enginn borð­búnaður og óþrifnaður. Þannig lýsir Sema Erla Serdar aðstæðunum eins og þær voru á Skeggja­götu í byrjun vikunnar, áður en hópur fólks gekk þar inn á þriðjudags­kvöld með hirslur, stóla, lampa, kaffi­vélar og fleiri nauð­synjar til að bæta líf hælis­leitenda sem þar búa.

Aðdrag­andann að heimsókn Semu Erlu og félaga má rekja til þess að á mánudags­kvöld las Sema Erla frétt Stundarinnar um að hælis­leitendur sem byggju á Skeggja­götu borðuðu mat sinn af gólfinu, þar sem þeir hefðu enga stóla til að sitja á. Hún sendi út neyðar­kall á Facebook og óskaði eftir húsgögnum og öðrum hlutum, til að gera búsetu þeirra bærilegri og mannúðlegri. Hátt í hundrað manns höfðu samband og buðu fram aðstoð.

 

Daginn eftir heimsótti hún Skeggja­götu ásamt vinkonu sinni, Margréti Norðdahl. Um kvöldið fóru þær svo, ásamt öðrum, söfnuðu saman húsgögnum og keyrðu þau á Skeggja­götuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár