Jarðvegsgerlar í kalda vatninu í Reykjavík

Mælt er með því að neyslu­vatn í vissum hverfum sé soðið fyrir neyslu.

Mælst hefur fjölgun jarðvegs­gerla í kalda vatninu Í Reykjavík. Tvö sýni sem Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur tók 12. janúar stóðust ekki viðmið í reglugerð. Frá þessu er greint í frétta­tilkynningu frá Veitum.

„Í varúðar­skyni mælir Heilbrigðis­eftirlitið með því að neyslu­vatn í vissum hverfum borgarinnar sé soðið ef um neytendur er að ræða sem eru viðkvæmir t.d. með lélegt ónæmis­kerfi, ungabörn, aldraðir eða fólk með undir­liggjandi sjúkdóma. Þetta á við um öll hverfi borgarinnar nema Grafarvog, Norðlinga­holt, Úlfars­árdal, Kjalarnes auk Mosfells­bæjar, sem fá vatn frá öðrum svæðum í Heiðmörk þar sem ekki hefur mælst gerla­fjöldi yfir viðmiðunar­mörkum,“ segir í tilkynningunni.

Í henni segir enn fremur að líkleg ástæða fyrir fráviki í gerla­magni sé mikil hlákutíð undan­farið í kjölfar langs frosta­kafla. „Við slíkar aðstæður getur yfirborðs­vatn komist í grunnvatn og flutt með sér gerla. Ef gerlamagn í borholu mælist yfir mörkum er vatnstöku úr henni hætt. En nú er sú staða komin upp að búið er að taka það margar holur úr rekstri Veitna að ekki er hægt að anna vatnsþörf viðskipta­vina ef þær verða fleiri,“ segir í tilkynningunni.

Því er talin þörf á því að nýta eina holu þar sem fjöldi jarðvegs­gerla hefur mælst yfir mörkum. Í þeirri holu hafa ekki fundist E. coli gerlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár