Þórunn eini nefndarformaður stjórnarandstöðunnar

Sjálfstæðis­flokkurinn fer með formennsku í þremur af átta fasta­nefndum þingsins, Framsókn tveimur og VG tveimur. Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir verður formaður fjár­laganefndar, eins og Vinstri græn gáfu reyndar óvart út á mánudag.

Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingar verður formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar verður for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Þórunn Svein­bjarnar­dóttir þingmaður Samfylkingar var í dag kjörin formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, sem er eina nefndin sem stjórnar­andstaðan mun fara með formennsku í á kjör­tímabilinu. Birgir Ármannsson var formlega kjörinn forseti Alþingis og stýrði kosningu í fasta­nefndir þingsins og hófst svo handa við að úthluta þing­mönnum sætum.

Auk Birgis voru í forsætis­nefnd kjörnir sex vara­forsetar þings. Oddný G. Harðar­dóttir (S) er fyrsti vara­forseti, Líneik Anna Sævars­dóttir (B) annar vara­forseti, Inga Sæland (F) þriðji vara­forseti, Diljá Mist Einars­dóttir (D) fjórði vara­forseti, Björn Leví Gunnarsson (P) er fimmti og Jódís Skúla­dóttir (V) er sjötti vara­forseti þingsins. Einnig eiga áheyrnar­fulltrúa­sæti í forsætis­nefnd þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir (C) og Bergþór Ólason (M).

Bjarkey formaður fjárlaganefndar

Vinstri græn halda á formennsku tveggja fastanefnda­nefnda, fjár­laganefndar og utan­ríkismála­nefndar. Koma fulltrúar þeirra í formennsku­hlutverkum ekki á óvart.

Flokkurinn sendi nefnilega óvart frá sér í tilkynningu á fjölmiðla á mánudag, sem síðar var dregin til baka, þar sem fram kom að Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir yrði formaður fjár­laganefndar og Bjarni Jónsson myndi veita utan­ríkismála­nefnd formennsku. Það stóð heima.

Sjálfstæðis­flokkurinn fer með formennsku í þremur fasta­nefndum, auk forsætis­nefndar. Guðrún Hafsteins­dóttir verður formaður efnahags- og viðskipta­nefndar, Vilhjálmur Árnason verður formaður í umhverfis- og samgöngu­nefnd og Bryndís Haralds­dóttir verður formaður í allsherjar- og menntamála­nefnd.

Framsóknar­flokkurinn fer svo með formennsku í tveimur nefndum. Stefán Vagn Stef­ánsson verður formaður atvinnu­veganefndar og Líneik Anna Sævars­dóttir verður formaður velferðar­nefndar.

Björn Leví fékk sama sæti og Sigmundur Davíð

Það gekk ekki alveg vandræða­laust að úthluta sætum til þingmanna. Þing­forseti dregur númer þingsæta fyrir hvern og einn þingmann upp úr kassa, en þegar röðin kom að því að fnna sæti fyrir Björn Leví Gunnarsson þingmann Pírata kom talan 10 upp.

Það sæti var hins vegar komið í hendur Sigmundar Davíð Gunnlaugs­sonar formanns Miðflokksins og vöktu þingmenn í salnum athygli á því að einhver ruglingur væri að eiga sér stað.

Þar sem ljóst var að það hefði orðið ruglingur á kúlum upp úr kassanum frestaði Birgir fundi þingsins kl. 13:35, um fimm mínútur, til að ráða úr málinu.

Þing­fundur hófst hins vegar ekki fyrr en rúmum tuttugu mínútum síðar – og þá var ákveðið að byrja upp á nýtt við úthlutun þingsætanna.

Ráðherrar áberandi í eldhúsdagsumræðum – Bergþór talar tvisvar

Í kvöld flytur Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra fyrstu stefnu­ræðu sína á nýju þingi og í kjölfarið verða umræður um hana, sem skiptast í þrjár umferðir. Hver þing­flokkur hefur 6 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætis­ráðherra hefur 12 mínútur til framsögu.

Ræðumenn fyrir VG verða Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags­mála- og vinnu­markaðs­ráðherra og Svandís Svavars­dóttir sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra.

Fyrir Samfylkinguna tala Logi Einarsson, Kristrún Frosta­dóttir og Oddný Harðar­dóttir. Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórs­dóttir og Guðmundur Ingi Kristinsson tala svo fyrir Flokk fólksins.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra, Guðrún Hafsteins­dóttir og Njáll Trausti Friðbertsson halda ræður fyrir Sjálfstæðis­flokkinn og Björn Leví Gunnarsson, Arndís Anna Kristínar­dóttir Gunnars­dóttir og Andrés Ingi Jónsson tala fyrir Pírata.

Fyrir Framsóknar­flokk tala þau Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra, Lilja Alfreðs­dóttir ferðamála-, viðskipta- og menningar­mála­ráðherra og Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra.

Þorgerður K. Gunnars­dóttir, Guðbrandur Einarsson og Sigmar Guðmundsson halda uppi merkjum fyrir Viðreisn og fyrir tveggja manna þingflokk Miðflokksins mun Bergþór Ólason tala tvisvar og Anna Kolbrún Árna­dóttir einu sinni, en hún situr á þingi sem varamaður Sigmundar Davíðs nú í upphafi þings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár