Á þrettánda þúsund melduð á mótmælin

Mikill fjöldi fólks hefur boðað komu sínu á mótmæli á Austur­velli á morgun.

Fjöldi hyggst mótmæla
Fjöldi hyggst mót­mæla Mjög margir hafa boðað komu sína á fyr­ir­huguð mót­mæli. Mynd: Rósa Bragadóttir

Á þrettánda þúsund manns hafa boðað komu sína, eða lýst yfir áhuga á því að mæta, á boðuð mótmæli á Austur­velli á morgun. Þegar þetta er skrifað hafa 7.000 boðað komu sína á meðan 5.600 sýna því áhuga. Þeim sem boða komu sína og/eða sýna því áhuga, hefur fjölgað gríðar­lega síðustu klukku­stundir, voru á milli 5-6 þúsund áður en sérstakur Kastljós-þáttur var sýndur, en eru sem fyrr segir farnir að nálgast þrettánda þúsundið. Auk þess hafa nærri 500 trommu­leikarar boðað komu sínu á öðrum vettvangi en þeir hyggjast „sameina mótmælendur í takti gegn sitjandi ríkis­stjórn.“ Ljóst er að fyrr­greindur Kastljós-þáttur hefur hrist upp í mörgum og að vænta megi mikilla mótmæla fyrir framan Alþingis­húsið klukkan fimm á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýringu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjónanna Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Önnu Sigur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar ályktanir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eftir­farandi: Þann 13. maí 2016 skrifaði umboðs­maður hjónanna bréf til ríkis­skattstjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­framtöl...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár