Umhverfismat mun fara fyrir EFTA dómstólinn

Íslensk stjórn­völd hafa ekki leitt í lög EES tilskipun vegna ferla í umhverfis­mati. ESA hefur því ákveðið að vísa málinu til EFTA dómstólsins.

EFTA dómstóllinn
EFTA dóm­stóll­inn Mynd: EPA

Íslensk stjórn­völd hafa ekki leitt í lög EES tilskipun 2014/52/EES vegna ferla í umhverfis­mati. Eftirlits­stofnun EFTA (ESA) hefur því ákveðið að vísa málinu til EFTA dómstólsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA.

„Í umhverfis­mati eru tekin til greina áhrif framkvæmda á umhverfið og eru niður­stöður þess notaðar til að taka ákvarðanir um hvort leggja skuli í fyrir­hugaðar framkvæmdir. Tíma­frestur til að innleiða reglu­gerðina rann út þann 16. maí 2017 en tilskipunin mælir fyrir um að máls­meðferðar­ferli sem hafist hefur fyrir þann tíma fari samkvæmt þeim reglum er giltu fram að þeim tíma. ESA og íslensk stjórn­völd hafa rætt málið ítrekað frá því að fresturinn rann út,“ segir í tilkynningunni.

Högni S. Kristjánsson stjórnar­meðlimur ESA segir umhverfismál vera mikil­vægan hluta af EES samstarfinu og brýnt sé að íslensk löggjöf verði uppfærð sem fyrst.

Tilskipunin sem um ræðir skilgreinir ferla í umhverfis­mati og tryggir viðeigandi mat á framkvæmdum og öðrum verkefnum, á vegum hins opinbera eða einka­aðila, sem líkleg eru til þess að hafa teljandi áhrif á umhverfið áður en leyfi eru veitt. Tilskipunin uppfærir og einfaldar núverandi regluverk umhverfis­mats og gerir stjórn­völdum kleift að bæta umhverfis­vernd á Íslandi, samkvæmt ESA.

„Þegar ESA vísar málum til EFTA dómstólsins er það loka­skrefið í formlegu samnings­brotamáli. Íslandi hefur áður verið gefinn kostur á að koma röksemdum sínum á framfæri sem og að ljúka málinu með því að innleiða tilskipunina innan gildandi tímamarka,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár