Íslenska kjötsúpan er besti matur sem Tucci hefur borðað á tökustað

Bandaríski leikarinn Stanley Tucci segir að íslensk kjötsúpa sé besti matur sem hann hefur borðað á setti við tökur. Hann fjallar um þetta í nýjum æviminningum sínum. Tucci borðaði kjöt­súpuna góðu þegar hann var staddur á Austur­landi við tökur á sjónvarps­þáttunum Fortitude fyrir nokkrum árum.

Kjötsúpan fyrir austan stendur upp úr
Kjöt­súpan fyrir austan stendur upp úr Banda­ríski leik­ar­inn, Stanley Tucci, segir í nýjum æviminn­ingum sínum að kjöt­súpa sem hann borð­aði við tökur á þátt­unum Fortitude á Aust­ur­landi sé besti matur sem hann hafi borðað á setti. Hann sést hér á kynn­ing­ar­mynd fyrir Fortitude ásamt með­leik­urum sínum.

„Þessi kjötsúpa var svo frábær að ég varð sjálfum mér til skammar þegar ég fékk mér þriðja skammtinn af henni. Enn þann dag í dag er þetta besti matur sem ég hef fengið við tökur á kvikmynd, allt frá Suður­pólnum að Norður­heim­skautinu og á öllum stöðum þar á milli,“  segir bandaríski leikarinn Stanley Tucci í nýjum æviminningum sínum Taste: My Life Through Food, þar sem hann meðal annars fjallar um matar­upplifanir sínar frá Íslandi.

Kápa bókar Stanley Tucchi

Bókin kom út nú í nóvember og fjallar, eins og nafnið ber með sér, fyrst og fremst um mat og minningar Tucchi um það sem hann hefur borðað á ólíkum tíma­punktum í lífi sínu. 

Stundin sendi Stanley Tucci beiðni um viðtal um bókina en leikarinn hafði ekki svarað þegar umfjöllunin var birt. 

Besta lambakjötið

Tucci var staddur hér á landi við tökur á sjónvarps­þáttunum Fortitude árið 2015 og dvaldi þá á Austur­landi í tæpar vikur. Hann bjó á Icelandair-hótelinu á Egils­stöðum og lýsir því í bókinni hversu smeykur hann hafi verið um að maturinn á Íslandi yrði honum ekki að skapi. Tucci pakkaði því meðal annars dósasúpum og kexi fyrir ferðina til Íslands svo hann yrði ekki hungur­morða. 

En áhyggjur Tucci reyndust vera óþarfar, eins og hann komst að í fyrstu máltíðinni sem hann fékk á Icelandair-hótelinu á Egils­stöðum. „Svo kom lambið mitt, og enn þann dag í dag er þetta besta lambakjöt sem ég hef borðað. Það var óaðfinnanlega eldað með dálitlum grill­röndum að utan, mjúkt og bleikt að innan; bragðið einkenndist af söltuðum sætleika og það bránaði í munninum á mér [...] Eftir þetta hlakkaði ég alltaf til kvöld­matarins á einfalda, litla hótelinu okkar.“

Maðurinn sem elskar kjöt­súpaStanley Tucchi elskar íslenska kjöt­súpu og ver rúmum tveimur blað­síðum í matar­æviminn­ingum sínum í að tala um hana. Mynd úr bók­inni.

Stóra málið var kjötsúpan

Stóra málið í umfjöllun Stanley Tucci um veruna á Íslandi snýst  um kjöt­súpuna sem hann fékk á ótilgreindum stað á Austur­landi einn daginn við tökur á þáttunum. Tucci ræðir um íslensku kjöt­súpuna og töfra hennar á rúmum tveimur blaðsíðum bókinni og lýsir því svo af mikilli innlifun hvernig það var að borða hana: 

„Einn fallegan, sólríkan morgun keyrðum við í um 45 mínútur á stað þar sem var fjall­lendara til að taka upp þann daginn. [...] Við gripum plast­skálarnar okkar og stóðum í röð til að bíða eftir því að fá það sem ég fékk að vita að væri þjóðleg íslenska kássa sem heitir kjötsúpa. Eftir að skálin mín hafði verið fyllt náði ég mér í brauðbita, gekk aftur út í sterkt sólar­ljósið sem blindaði mig, tyllti mér í snjóinn með félögum mínum og borðaði. Það eina sem ég gat sagt er að ég veit ekki hvort það var vegna umhverfisins, nándarinnar sem getur orðið til í öfga­fullum aðstæðum í óbyggðum, eða vegna þess að matreiðslu­mennirnir báru þessa sögulegu kássu fram með svo miklu þjóðar­stolti, en þetta var einfald­lega frábær máltíð.“

Eigendur matreiðslufyrirtækisins stoltir af einkunninni

Tucchi séntil­maðurSnorri Þórisson, for­stjóri fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Pegasus, segir að banda­ríski leik­ar­inn Stanley Tucchi hafi verið mik­ill séntil­maður.

Framleiðslu­fyrirtækið Pegasus skipulagði tökurnar á þáttunum hér á landi og segir forstjóri fyrir­tækisins, Snorri Þórisson, að það sé gaman að heyra hvað Tucci var ánægður með matinn. Hann segir að bandaríski leikarinn hafi verið mikill séntilmaður. „Matar­málin voru greini­lega í lagi hjá okkur. Þetta var dagfarsprúður og fínn náungi og það voru engir stjörnu­stælar í honum, ekki til,“ segir Snorri um Stanley Tucci. 

Fyrir­tækið sem sá um að elda ofan í leikara og aðstand­endur þáttarins heitir Lostæti-Austur­lyst og hefur það meðal annars séð um mötuneyti Alcoa-Fjarðaáls á Reyðar­firði í gegnum árin. Stanley Tucci talar í bókinni mjög vel um matinn sem hann fékk á tökustað þáttanna sem yfirleitt var reiddur fram í mötuneyti sem komið hafði verið upp í gömlu frysti­húsi á Reyðar­firði. 

„Mér finnst þetta bara vera alveg æði.“
Val­mundur Árnason, eig­andi Lostætis

Eigandi Lostætis, Valmundur Árnason, segir um einkunn Tucci á matnum á töku­staðnum: „Mér finnst þetta bara vera alveg æði. Þetta þýðir að við erum að gera eitthvað rétt. Mér finnst æðislegt að fá svona komment.“

Annar starfs­maður Lostætis, sonur Valmundar, Árni Valmundarson, sem sá um matinn fyrir leikara- og tökulið Fortitude, segir a hann muni ekki nákvæmlega eftir því þegar Stanley Tucci og félagar borðuðu kjöt­súpuna þar sem nokkur ár séu liðin en að frásögnin sé gleðileg.  „Því miður man ég ekki eftir þessu nákvæmlega því við gáfum þeim svo mikinn og fjöl­breyttan mat. Við erum með nokkra matreiðslu­menn í vinnu sem hafa bara töfrað fram þessa kjötsúpu fyrir þennan góða hóp,“ segir Árni. „Mér heyrist þetta almennt hafa heppnast mjög vel hjá okkur fyrst hann talar svona um þetta. Mér finnst bara æðislegt að heyra þetta og ég er mjög stoltur af þessu.“

Hval­kjötið á Grill­mark­aðnumStanley Tucchi ræðir mest um þrjá rétti sem hann borð­aði á Íslandi: Grillað lamba­kjöt, kjöt­súpu og hval­kjötið á Grill­mark­aði Hrefnu Sætran.

Matarupplifunin á Íslandi var opinberun

Stanley Tucci ræðir einnig um mataruplifun sína á veitinga­staðnum Grill­markaðnum í Reykjavík, sem er í eigu Hrefnu Sætran. Þar borðaði hann tvo rétti sem hann hafði ekki smakkað áður: lunda og hvalkjöt - hrefnu.

Tucci fannst ekkert svo mikið til lundans koma þar sem reykingin á fuglinum hafði að hans mati „ofþurrkað kjötið“ þannig að þetta hefði getað verið kjötið af nánast hvaða litla fugli sem er og við  „ættum ekki að drepa“.

Öðru máli gegndi um hrefnu­kjötið sem var hafði „mikið og djúpt bragð sem minnti á Kobe-steik nema að það var flóknara þar sem kjötið var einnig með fiskbragð sem minnti á túnfisk sem notaður er í sushi“. Tucci segir að hann myndi gjarnan vilja panta sér hrefnu­kjöt aftur. 

„Svo reynd­ist mat­ar­upp­lifun mín á Íslandi þvert á móti vera hið gagn­stæða: Hún var opin­berun.“
Stanley Tucci

Þegar bandaríski leikarinn tekur saman matar­upplifun sína á Íslandi í bókinni segir hann einfald­lega að hún hafi verið honum „opinberun“: „Ég var svo ánægður með að upphaf­legu áhyggjur mínar af matnum á Íslandi voru algjör­lega byggðar á sandi og ég skammaðist mín einnig vegna þess að þær byggðar á ósann­gjörnum fordómum mínum. Ég hélt að ég myndi þurfa að borða skyr og kæstan hákarl í hvert mál. Svo reyndist matar­upplifun mín á Íslandi þvert á móti vera hið gagnstæða: Hún var opinberun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Sammála honum með kjötsúpuna, hún er alltaf góð.
    Þeir mega vera ánægðir með hólið kokkarnir fyrir austan
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár