Deutsche Bank reynir að semja um lægri sektir

Bandarísk yfirvöld hafa gert Deutsche Bank að greiða 14 milljarða Bandaríkja­dala í sektar­greiðslu vegna mála er tengjast húsnæðis­lána­tengdum skuldabréfa­vafningum.

Forsvars­menn Deutshce Banka, eins stærsta banka Evrópu, sögðust í gær ekki hafa neinn hug á því að greiða fjórtán milljarða Banda­ríkja, rétt um 1.600 milljarða króna, í sektar­greiðslu vegna mála sem hafa verið til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Banda­ríkjunum, og tengjast skuldabréfa­vafningum. Markaðs­virði bankans féll um rúmlega átta prósent eftir að tilkynning bandaríska dómsmála­ráðuneytisins var birt, þar sem bankanum var gert að greiða 14 milljarða Bandaríkja­dala í stjórnvalds­sekt.

Forsvars­menn bankans gera sér vonir um að stjórnvalds­sektin verði lækkuð, en viðræður milli bankans og ráðuneytisins munu halda áfram á næstu mánuðum, þar til endanleg niður­staða liggur fyrir. Fordæmi eru fyrir því að sektir lækki umtals­vert eftir slíkar viðræður. Þannig lækkaði stjórnvalds­sekt Citigroup árið 2012 úr 12 milljörðum Bandaríkja­dala í sjö, vegna svipaðra mála, það er svonefndra undirmáls­lána og skuldabréfa­vafninga frá árinu 2007 og 2008.

Í umfjöllun Bloomberg í dag kemur fram að fjár­festar hafi áhyggjur af því að bankinn geti ekki tekist á við himinháar sektir, og þurfi að endur­skipuleggja reksturinn vegna þeirra, þar á meðal að selja eignir. Nú þegar hefur bankinn sett til hliðar um 6 milljarða Bandaríkja­dala til að mæta mögulegum sektum, en það er innan við helmingur af sektar­greiðslunum sem nú liggja fyrir.

Nú þegar hefur bankinn greitt um níu milljarða Bandaríkja­dala í sektir, frá árinu 2008, eða sem nemur um 1.100 milljörðum króna.

Sektin kemur líka á vondum tíma fyrir bankann núna, að sögn breska ríkis­útvarpsins BBC, þar sem reksturinn hefur farið versnandi. Þannig féllu tekjur bankans um 20 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra, og hagnaður dróst saman um 67 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár