Alistair Darling í hættu á að missa þingsæti sitt

Ný skoðanannakönnun, sem greint var frá í dag, sýnir að stuðningur við Verkamanna­flokkinn í Skotlandi er í sögulegri lægð og að Alistair Darling, fyrrum fjármála­ráðherra Bretlands sem leiddi hreyfingu sambands­sinna í nýlegum sjálfstæðis­kosningum í Skotlandi, sé í mikilli hættu á að missa sæti sitt á breska þinginu. Frá þessu er greint í Edinburgh Evening News.

Skoskir flokkar fá alls 59 sæti á breska þinginu, Westminster, og í dag er sitja þingmenn skoska Verkamanna­flokksins í 41 þeirra. Könnunin sem birt var í morgun sýnir hins vegar að fylgi við Verkamanna­flokkinn í Skotlandi mælist nú einungis 27 prósent. Samkvæmt þeirri niður­stöðu myndi flokkurinn fá 16 þingmenn, og þar með tapa 25. Einn þeirra sem er í mikilli hættu á að tapa þingsæti sínu er Alistair Darling, sem er í dag þingmaður suðvestur-Edinborgar. Kosið verður á Bretlandi á næsta ári.

Kosningabaráttan skaðaði flokkinn


Darling var í for­svari fyrir „Better Together“ fylk­ing­una, sem barð­ist hart gegn sjalfstæði Skotlands í aðdrag­anda kosn­inga um slíkt sem fram fóru 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Það fór svo að Skotar sögðu Nei í kosn­ing­unum.

Margir frétta­skýrendur eru þeirrar skoðunar að loforð leiðtoga stærstu stjórn­málaflokka Bretlands um aukin völd til Skotlands ef almenningur myndi hafna sjálf­stæði hafi skipt sköpum í þeirri niður­stöðu. Síðan þá hafa verið uppi miklar gagnrýnis­raddir um hvort leið­togarnir þrír, David Cameron, Nick Clegg og Ed Milliband, hafi í raun haft eitthvað umboð til að lofa slíkri aukningu á völdum. Viðræður um valda­tilfærsluna eiga að hefjast á morgun og verður stýrt af Smith Lávarði af Kelvin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár