Skoðum snjallsímann okkar 221 sinni á hverjum degi

Eigendur snjall­síma athuga símanna sína að um 1.500 sinnum á viku, að meðaltali. Þeir byrja daginn vanalega klukkan 7:31 með því að kanna tölvu­póstinn sinn og Facebook. Þegar meðaltals­notandinn leggst til hvílu að deginum loknum hefur hann kannað stöðuna á öllu sem hann telur skipta mestu í gegnum símann sinn 221 yfir daginn. Þetta kemur fram í nýlegri ransókn sem Tecmark gerði á um tvö þúsund eigendum snjall­síma í Bretlandi og Daily Mail greinir frá. Hin gríðar­lega notkun þykir afhjúpa greini­lega hversu háður tækninni nútíma­maðurinn er orðinn.

News by Design setti niður­stöðu könnunarinnar upp í myndræna skýringar­mynd.

News by Design setti niðurstöðu könnunarinnar upp í myndræna skýringarmynd.
News by Design setti nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar upp í mynd­ræna skýr­ing­ar­mynd.

Rann­sóknin leiddi það líka í ljós að notendurnir athuga margir hverjir stöðuna á veðrinu, lesa fréttirnar og hafa samband við vini eða félaga í gegnum snjall­tækin sín áður en þeir fara fram úr rúminu á morgnanna. Alls eyðir meðal­notandinn þremur klukku­stundum og sextán mínútum í snjall­símanum sínum á hverjum degi.

Niður­stöður rann­sóknar Tecmark sýna einnig að snjall­símarnir hafa tekið yfir mörg af þeim hlut­verkum sem far- og borð­tölvur höfðu áður. Nú notar meðal snjall­síma­notandinn þær einungis til að framkvæma um 140 verkefni yfir daginn, tæplega 60 prósent færri en hann notar snjall­símann sinn til að framkvæma.

Íslendingar eru mjög framarlega í eign á snjall­símum, enda vanalega afar fljótir að tileinka sér tækni­nýjungar. Í könnun sem MMR framkvæmdi snemma haustið 2013 kom í ljós að 66,4 prósent lands­manna ættu snjall­síma. Tveimur árum áður var hlutfall þeirra 38 prósent. Til saman­burðar sögðust 68 prósent Breta eiga snjall­síma, 52 prósent Banda­ríkjanna og 64 prósent Rússa. Óhætt er að álykta að snjallsíma­eign hafi vaxið enn meira á því ári sem liðið er síðan að könnun MMR var gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár