Rúmar 16 milljónir í aðkeypta ráðgjöf og álit vegna þriðja orkupakkans

Kostnaður vegna innlendrar ráðgjafar og álita nemur rúmlega 7,6 milljónum króna og erlends tæpum 8,5 milljónum króna.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd: Bára Huld Beck

Heildar­kostnaður utan­ríkis­ráðuneytisins vegna aðkeyptrar ráðgjafar og álita sem tengjast þriðja orku­pakkanum nemur 16,1 milljón króna. Þar af nemur kostnaður vegna innlendrar ráðgjafar og álita rúmlega 7,6 milljónum og erlends tæpum 8,5 milljónum króna. Þetta kemur fram í svari Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar utan­ríkis­ráðherra við fyrir­spurn frá Þorsteini Sæmunds­syni, þingmanni Miðflokksins, um kostnað ráðuneytisins vegna þriðja orku­pakkans.

Þar af voru 2,4 milljónir greiddar samkvæmt reikningum á árinu 2018, en annað greitt samkvæmt reikningum á þessu ári.

Greiðslurnar sundur­liðast vegna innlendrar ráðgjafar og álita sem hér segir:

Leitað til eins erlends álitsgjafa

Heildar­kostnaður ráðuneytisins vegna aðkeyptrar erlendrar ráðgjafar og álita sem tengjast þriðja orku­pakkanum nemur alls 8.470.737 krónum. Í svarinu kemur fram að leitað hafi verið til eins erlends aðila, Dr. Carls Baudenbacher, og nam reikningur hans alls 61.249 evrum, eða tæpum 8,4 milljónum króna.

Samkvæmt ráðherranum hefur enginn kostnaður fallið til á árinu vegna kynningar á þriðja orku­pakkanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár