Sigmundur rauk út – öskrað á Eygló

Eftir tap í formanns­kjöri yfirgaf Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flokks­þing Fram­sóknarmanna í snatri án þess að taka í hendur samflokks­manns, eins og formaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson bað um. Gerð voru köll að Eygló Harðar­dóttur í ræðu hennar í kjölfarið.

Eygló heldur ræðu
Eygló heldur ræðu Gestur á flokks­þing­inu öskr­aði á Eygló að hún væri „ömur­leg“. Mynd:

Um það leyti sem Sigurður Ingi Jóhannsson, nýkjörinn formaður Framsóknar­flokksins, bað flokks­menn á flokks­þingi Fram­sóknar að haldast í hendur og láta „strauma framsóknar­mennskunnar“ streyma um salinn í Háskóla­bíói fyrir skemmstu, svo þeir færu þaðan sem samstíga fjöl­skylda, yfirgaf Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fráfar­andi formaður, salinn í nokkrum flýti. Á eftir honum hélt Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar­maður hans.

Aðstoð­ar­mað­ur­innJóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, leit­aði hans eftir tapið í for­manns­kjör­inu.

Sigmundur Davíð sagði við frétta­menn að hann hefði ekki búist við því að tapa kjörinu um formennsku í Framsóknar­flokknum. 

„Við sjáum bara til,“ svaraði hann, þegar hann var spurður hvað hann myndi gera í kjölfarið.Sigmundur tók því ekki þátt í hópefli því sem Sigurður Ingi lagði til í sigurræðu sinni. Þess í stað hélt hann áleiðis að Hótel Sögu og fór þangað inn. Á eftir honum stefndi Jóhannes Þór, aðstoðar­maður hans, sem hafði þó misst sjónar á honum fyrir utan Háskólabíó. „Veit einhver hvert húsbóndi minn fór?“ spurði Jóhannes fyrir utan.

Augna­blik taps­insSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og eig­in­kona hans, Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, risu ekki á fætur þegar hinn nýi for­maður, Sigurður Ingi Jóhanns­son, hvatti fram­sókn­ar­menn til að taka höndum saman. Faðir Sig­mundar, Gunn­laugur Sig­munds­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, horfir á son sinn tveimur sæta­röðum aftar.

 

Hróp gerð að Eygló

Strax í kjölfar þess að Sigurður Ingi Jóhannsson hafði sigrað Sigmund Davíð Gunnlaugsson í formanns­kjörinu var tilkynnt að fram­bjóðendur til vara­formennsku myndu halda ræður. Eygló Harðar­dóttir, einn þriggja fram­bjóðenda, sem studdi Sigurð Inga til formennsku, bað um að fá að halda ræðu á undan Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, sem studdi Sigmund Davíð. 

„Eins og oft vill verða þegar einstaklingar takast á um embætti, þá eigum við til að láta tilfinningarnar bera rökhyggjuna ofurliði. Það er því mjög eðlilegt að hér inni sé fólk sem finnur nú fyrir reiði og vonbrigðum,“ sagði Eygló í ræðu sinni. Skömmu síðar hrópaði flokksþings­gestur yfir salinn að Eygló: „Kjaftæði, þú ert ömurleg!“

Samkvæmt frásögn þing­flokks­formannsins Ásmundar Einars Daðasonar gekk Eygló á eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni á fundi framkvæmda­stjórnar flokksins í fyrradag eftir að Sigmundur hafði slitið fundinum einhliða og sýnt „einræði“ og „hroka“ í umræðu um dagskrá flokks­þingsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár