Hanna Birna sagði ósatt um ráðgjöf

Hanna Birna sagði ósatt um að hún hefði fengið ráð­gjöf í ráðu­neyt­inu. Skýrsla stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um leka­málið vænt­an­leg í dag. Þingmenn úr stjórn­ar­meiri­hlut­anum á Alþingi sögðu sig frá mál­inu og gáfu út yfir­lýs­ingu.

Hanna Birna sagði ósatt um ráðgjöf

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fjall­aði um leka­málið á fundi nefnd­ar­innar í morgun. Skýrsla nefnd­ar­innar um með­ferð trún­að­ar­gagna í stjórn­sýsl­unni og emb­ætt­is­skyldur inn­an­rík­is­ráð­herra var afgreidd út úr nefnd­inni, en þing­menn úr stjórn­ar­meiri­hlut­anum á Alþingi sögðu sig hins vegar frá mál­inu og gáfu út yfir­lýs­ingu þess efnis að mál­inu hafi lokið með áliti umboðs­manns Alþingis sem birt var 8. jan­úar 2015 og afsögn Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, birti yfir­lýs­ing­una á Facebook-síðu sinni í kjöl­farið. 

Ögmundur Jónasson, for­maður nefnd­ar­innar, seg­ist í sam­tali við Stundina harma að í nefnd­inni hafi mynd­ast stjórn og stjórn­ar­and­staða í þessu máli. „Þessi nefnd á að vera hafin yfir póli­tísk landa­mæri,“ segir hann. „Við höfum litið svo á, og starfað á þeirri for­sendu, að málið væri víð­tækara en það sem umboðs­maður Alþingis fjall­aði um. Það fjallar nefni­lega um sam­skipti ráð­herr­ans við Alþingi - það sem sagt var fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins og í þing­sal. Skýrsla okkar snýr að þeim þáttum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár