Varði aflandsfélagseign forsætisráðherrahjóna og sagði „allt til fyrirmyndar“ – leiðir nú átak gegn skattaskjólum

„Það er líka full­kom­lega lög­legt að eiga eignir í erlendum aflandseyjum, Bresku Jóm­frúreyj­unum ef því er að skipta,“ sagði Frosti Sig­ur­jóns­son á Alþingi þann 18. mars. Nú hefur honum verið falið að leiða verk­efni til höf­uðs skatta­skjóls­starf­semi.

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, mun leiða vinnu sem miðar að því að skera upp herör gegn skatta­skjólum. Fyrir tæpum mán­uði kom hann eig­endum aflands­fé­laga til varnar úr ræðu­stól Alþingis og sak­aði þá þing­menn sem vakið höfðu máls á svo­nefndu Wintris-félagi for­sæt­is­ráð­herra­hjóna um lág­kúru. 

„Ýjað er að því að hér sé ólög­legt að eiga eignir erlendis. Það er bara alveg lög­legt. Það er líka full­kom­lega lög­legt að eiga eignir í erlendum aflandseyjum, Bresku Jóm­frúreyj­unum ef því er að skipta,“ sagði Frosti þann 18. mars. Ef litið er á ræður þing­manna sem fluttar höfðu verið áður en Frosti steig í ræðu­stól má sjá að eng­inn þing­maður hafði sakað for­sæt­is­ráð­herra­hjónin um ólög­lega hátt­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár