Þrír af fjórum fyrrverandi þingmönnum Bjartrar framtíðar eru hættir í flokknum

„Ég lít svo á að stjórmál eigi að snúast um almannahags­muni, jöfn tækifæri og réttlæti. Ég get því ekki stutt það sem flokkurinn hefur gert að undan­förnu,“ skrifar Páll Valur Björnsson og gagnrýnir eftirgjöf flokksins í sjávar­útvegs- og Evrópu­málum.

Þrír af fjórum fyrr­verandi þing­mönnum Bjartrar framtíðar hafa sagt skilið við flokkinn. Páll Valur Björnsson tilkynnti um ákvörðun sína í dag, en Róbert Marshall og Brynhildur Péturs­dóttir skráðu sig úr flokknum þann 3. janúar, daginn sem flokkurinn hóf formlega stjórnar­myndunar­viðræður við Viðreisn og Sjálfstæðis­flokkinn.

Páll Valur útskýrir afstöðu sína í pistli. „Ég sé ekki að ég eigi lengur samleið með flokknum á þeirri leið sem hann er (ég á raunar eins og margir aðrir mjög erfitt með að átta mig á hvert flokkurinn stefnir og fyrir hvað hann stendur),“ skrifar hann og tekur fram að þegar Björt framtíð vilji ekki styðja frumvarp um að fella niður ritfanga­kostnað skóla­barna taki steininn úr.

Ekkert samráð um að líma flokkinn við Viðreisn

Páll Valur telur stjórnar­samstarfið við Sjálfstæðis­flokkinn glapræði, enda sé sá flokkur „gegn­sýrður af sérhagsmuna­gæslu og spillingu“. Þá segist Páll ekki trúa því að undir stjórn Sjálfstæðis­flokksins geti orðið verulegar breytingar til hins betra í þeim málum sem Björt framtíð hefur barist fyrir.

„Ég var (eins og allir vita) ekki sáttur við þá ákvörðun að líma Bjarta framtíð við Viðreisn í stjórnar­myndunar­viðræðunum; flokk sem er leiddur af fólki sem hefur verið árum saman í hagsmuna­gæslu fyrir stór-atvinnu­rekendur,“ skrifar Páll. „Það var gert án nokkurs samráðs við bakland eða a.m.k. án alls samráðs við þá oddvita flokksins sem ekki náðu kjöri í kosningunum. Það sem hefur gerst eftir þessa stjórnar­myndun hefur ekki dregið úr þessum efasemdum mínum og áhyggjum, nema síður sé.“ 

Kosningaloforð Bjartrar framtíðar ekki efnd

Áður hafði komið fram í fjöl­miðlum að Páll væri óánægður með ríkis­stjórnar­samstarfið við Viðreisn og Sjálfstæðis­flokkinn. Á meðal þess sem Páll Valur hefur gagnrýnt er að flokkurinn hafi gefið of mikið eftir í Evrópu­málum, auðlinda- og umhverfis­málum og að því er varðar málefni barna. 

Á meðal helstu kosninga­mála Bjartrar framtíðar í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga var að vinnu­brögð í íslenskum stjórn­málum yrðu bætt, fram færi þjóðar­atkvæða­greiðsla um framhald aðildar­viðræðna við Evrópu­sambandið, fjár­festingar hins opinbera í innviðum yrðu auknar til muna, farin yrði markaðs­leið í sjávar­útvegi, útgjöld yrðu aukin til mennta- og heilbrigðis­mála og slegin yrði skjald­borg um umhverfið, meðal annars hálendi Íslands.

Ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar kynnti stefnu­yfirlýsingu sína þann 10. janúar síðastliðinn. Þar er hvorki að finna fyrirheit um að boðað verði til þjóðar­atkvæða­greiðslu um framhald aðildar­viðræðna við Evrópu­sambandið né að látið verði reyna á uppboðs­leið í sjávar­útvegi á kjör­tímabilinu. 

Fram hefur komið í viðtölum við formenn stjórnar­flokkanna að með stjórnar­sáttmálanum hafi þing­flokkarnir skuld­bundið sig til að koma í veg fyrir að fram fari þjóðar­atkvæða­greiðsla um framhald aðildar­viðræðna við Evrópu­sambandið á kjör­tímabilinu, nema þá undir lok þess. 

Nýlega kynnti ríkis­stjórnin fjármála­áætlun þar sem mennta­kerfinu, einkum háskóla­stiginu, eru settar þröngar skorður auk þess sem útgjöld til heilbrigðis­mála eru aukin miklu minna en kallað var eftir fyrir kosningar.

Alþýðu­samband Íslands og forstjóri Land­spítalans hafa lýst yfir áhyggjum af því að spítalinn verði verulega undir­fjár­magnaður. Þá nemur áformuð fjölgun hjúkrunar­rýma fram til ársins 2022 aðeins rúmlega helmingunum af áætlaðri viðbótar­þörf fyrir ný hjúkrunar­rými til ársins 2020.

„Ekki er að sjá þess merki að gert sé ráð fyrir viðbótar­fjár­magi til reksturs hjúkrunar- og endur­hæfingar­þjónustu á tíma­bilinu þrátt fyrir fyrirséða fjölgun aldraðra og viðvarandi rekstar­vanda margra stofnanna,“ segir í frétta­tilkynningu frá ASÍ sem birtist í síðustu viku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár