Mótmælaalda í Bandaríkjunum getur af sér goðsagnakennda fréttaljósmynd

„Svört líf skipta máli“ er yfir­skrift mót­mæla sem blásið hefur verið til víða í Banda­ríkj­unum und­an­farna daga og vikur.

Mótmælaalda í Bandaríkjunum getur af sér goðsagnakennda fréttaljósmynd
Leshia Evans. Mynd sem þykir tákn­ræn fyrir yfir­stand­andi bar­áttu svartra fyrir rétt­læti. Mynd: Reuters

Yfir 200 hafa verið hand­teknir í mót­mælum sem sprottið hafa upp um gervöll Banda­ríkin, þar sem ofbeldi lög­regl­unnar gegn svörtu fólki er and­mælt. Hefur myllu­merkið [e. hashtag] #blacklivesmatter, eða „svört líf skipta máli“ orðið gríð­ar­lega áber­andi á sam­fé­lags­miðlum og er nú eins konar yfir­skrift mót­mæl­anna. Yfirvöld halda því fram að mað­ur­inn sem myrti fimm lög­reglu­þjóna í frið­sömum mót­mælum í Dallas í síð­ustu viku hafi haft uppi áform um sprengju­árásir.

Á sunnu­dag­inn voru tugir mót­mæl­enda hand­teknir í Baton Rouge í Louisiana fylki í Suð­ur­ríkj­unum, en svartur maður, Alton Sterling, var tek­inn af lífi af tveimur hvítum lög­reglu­þjónum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Mynd­bands­upp­taka náð­ist þar sem sjá má lög­reglu­menn­ina halda Sterling niðri og skjóta hann. Mikil spenna hefur verið und­an­farin miss­eri á vegna ítrek­aðra til­efn­is­lausra drápa lög­regl­unnar á svörtu fólki og her­væð­ingar banda­rísku lög­regl­unnar.

Ljósmynd sem tekin var við mót­mælin í Baton Rouge sýnir unga konu í kjól standa yfir­veg­aða fyrir framan tvo lög­reglu­þjóna sem nálg­ast hana í fullum her­skrúða. Þegar Shaun King, frétta­maður New York Daily News deildi mynd­inni þóttu ein ummæli bera af:

Jami West: „Horfið á lík­ams­stöð­una. Hún er í jafn­vægi, voldug, hnar­reist og jarð­tengd með báða fæt­urnar á jörð­inni. Horfið á lín­una sem verður til frá hvirfl­inum á höfði hennar niður í hæl­ana. Eina verndin er hennar eigin per­sónu­legi kraftur.

Akkúrat öfugt við lög­reglu­þjón­ana, sem eru fær­an­legir, tíma­bundnir, vernd­aðir af öllum sínum útbún­aði sem verður fjar­lægður þegar þeir ljúka sinni vakt. Þeim hefur verið þrýst aftur á hæl­ana, misst allt jafn­vægi og virð­ast vera að detta aftur fyrir sig, allt vegna krafts­ins sem kemur frá henni.

Þetta er goð­sagn­ar­kennd mynd. Héðan í frá mun hún rata í sögu- og lista­bæk­urnar.“

Ummælin.
Ummælin. Jami segir hug sinn.

Konan á mynd­inni heitir Leshia Evans og er hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Var hún hand­tek­inn og sat eina nótt í fanga­klefa. Eftir að henni var sleppt þakk­aði hún guði og sagð­ist ánægð að vera á lífi og ómeidd, og að eng­inn hefði lát­ist í mómæl­unum.

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, var­aði mót­mæl­endur við því að stimpla alla lög­reglu­þjóna sem and­stæð­inga svartra: „Ef við setjum lög­regl­una alla undir sama hatt án þess að við­ur­kenna að stærsti hluti lög­reglu­þjóna er að vinna mjög gott starf, þá munum við missa stuðn­ings­menn okkar í bar­átt­unni fyrir rétt­ar­bótum.“ Obama mun á þriðju­dag ferð­ast til Dallas þar sem hann ávarpar minn­ing­ar­at­höfn vegna atburða síð­ustu viku, og reynir að lægja ófrið­ar­öld­urnar sem brjóta nú á land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár