Tuttugu glæpa­sagna kvenna­hópur Þær Jónína Leós­dóttir, Sólveig Páls­dóttir, Lila Sig­urð­ar­dóttir og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir segja enga sér­staka sam­keppni ríkja þeirra á milli, enda engin ástæða til – þær til­heyri hver sínum und­ir­flokki glæpa­sög­unnar og það sé nóg pláss fyrir þær allar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það venst, að drepa fólk

Á dimmu og drunga­legu mið­viku­dags­kvöldi seint í októ­ber komu þær Jónína Leós­dóttir, Lilja Sig­urð­ar­dóttir, Sólveig Páls­dóttir og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir saman í Breið­holti, til að deila með sér og fullum sal áheyr­enda glæp­sam­legum atvinnu­leynd­ar­málum.

Hið mán­að­ar­lega bóka­kaffi í Gerðu­bergi var með óvenju­legu sniði þetta októ­berkvöld, því skáld­kon­urnar sáu sjálfar um að spyrja hver aðra spjör­unum úr og gefa þannig áheyr­endum ferska inn­sýn í hvernig hugur og hjarta glæpa­rit­höf­unda starfar. Sam­ræð­urnar voru hluti af glæpa­sagna­há­tíð­inni Iceland Noir sem fer fram í Norræna hús­inu 17.–20. nóv­em­ber en þar koma saman fimm­tíu höf­undar, íslenskir og erlendir, og sökkva sér í umræður um glæpa­sögur.

Sam­an­lagt hafa þær Yrsa, Lilja, Sólveig og Jónína sent frá sér um tutt­ugu glæpa­sögur. Varla þarf að taka fram hver hefur skrifað flestar þeirra. Yrsa er óum­deild glæpa­drottn­ing Íslands en hennar ell­efta glæpa­saga, Aflausn, er vænt­an­leg fyrir jólin. Lilja sendi nýverið frá sér sína fjórðu glæpa­sögu, Netið, sem er sjálf­stætt fram­hald Gildrunnar sem kom út haustið 2015. Sólveig hefur skrifað þrjár glæpa­sögur og vinnur nú að þeirri fjórðu. Nýgræð­ing­ur­inn í glæpa­hópnum, þó hún sé langt frá því að vera að hefja rit­höf­und­ar­fer­il­inn, er svo Jónína Leós­dóttir, sem vinnur að sinni annarri glæpa­sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár