Skákmönnum misboðið vegna launa forseta Skáksambandsins

Ólga er innan íslenska skák­sam­fé­lags­ins vegna launa Gunnars Björns­sonar sem eru ríf­lega 9 millj­ónir á ári. Til sam­an­burðar nema styrkir sam­bands­ins til íslenskra skák­manna sam­tals 1,4 milljón króna. Meiri­hluti tekna Skák­sam­bands­ins eru í formi styrkja frá ríki og borg.

Skákmönnum misboðið vegna launa forseta Skáksambandsins
Forseti Skák­sam­bands­ins Kostn­aður við laun og launa­tengd gjöld Gunnars Björns­sonar var tæp­lega 10 millj­ónir króna í fyrra.

Skák­mönnum er mis­boðið vegna kostn­aðar við laun Gunnars Björns­sonar, for­seta Skák­sam­bands Íslands, sem námu sam­tals 9.472.754 krónum á síð­asta ári. Það þýðir að launin, fyrir utan launa­tengdan kostnað sam­bands­ins, séu á sjö­unda hund­rað þús­und krónur á mán­uði. 

Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­gjöld félags­ins fyrir það ár námu tæp­lega 47 millj­ónir og þar af voru styrkir til íslenskra skák­manna aðeins 1,4 millj­ónir. Stundin ræddi við skák­menn sem báð­ust undan að ræða málið undir nafni en sögð­ust þó allir að launin valdi mik­illi gremju meðal skák­manna. Þeir segja að eðli­legra væri að sam­bandið styrkti unga skák­menn í meira mæli. 

Gunnar segir í sam­tali við Stundina að fram­lag rík­is­ins hafi verið hækkað nýverið gagn­gert til að hægt væri að hafa starfs­mann í fullu starfi. Hann telur laun sín eðli­leg.

Hagnaður af Reykjavíkurskákmóti

Sé litið til sund­ur­lið­unar á útgjöldum Skák­sam­bands Íslands sést að aðeins einn liður er hærri en laun og launa­tengd gjöld Gunnars og það er Reykja­vík­ur­skák­mótið. Í fyrra var kostn­aður við Reykja­vík­ur­skák­mótið rétt ríf­lega 13 millj­ónir króna, sam­an­borið við launa­kostnað vegna Gunnars sem nam ríf­lega 9 millj­ónum króna. Líkt og fyrr segir koma nær allar tekjur Skák­sam­bands Íslands frá ýmist rík­is­sjóði eða Reykja­vík­ur­borg. Í fyrra fékk félagið ríf­lega 23 millj­ónir í rekstr­ar­styrk af fjár­lögum. Ágætis hagn­aður var svo af Reykja­vík­ur­skák­mót­inu en sam­tals námu tekjur af því ríf­lega 14 millj­ónum. Hæsti styrk­ur­inn vegna móts­ins kom frá Reykja­vík­ur­borg, sex og hálf milljón, en N1 styrkti mótið auk þess um tvær millj­ónir. Árið 2014 var halli félags­ins í heild 745.372 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár