Siv fékk 13 milljónir frá ráðuneyti Eyglóar án samnings um þjónustukaup

„Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýnir það verk­lag sem er ekki í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup eða góða starfs­hætti,“ segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um kaup ráðu­neyta á sér­fræði­þjón­ustu.

Siv fékk 13 milljónir frá ráðuneyti Eyglóar án samnings um þjónustukaup

Siv Frið­leifs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins til margra ára, fékk sam­tals 13 millj­óna greiðslur frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu án þess að gerður væri samn­ingur um þjón­ustu­kaup á árunum 2014 og 2015.

Þetta kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um kaup ráðu­neyta á sér­fræði­þjón­ustu sem send var Alþingi í gær. Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýnir verk­lagið og segir það ekki í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup eða góða starfs­hætti. Ótal aðrar athuga­semdir eru gerðar við þjón­ustu­kaup ráðu­neyta á und­an­förnum árum í skýrsl­unni og mun Stundin fjalla áfram um málið.

Fram kemur að á tíma­bil­inu 2013 til 2015, meðan Eygló Harð­ar­dóttir var félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hafi vel­ferð­ar­ráðu­neytið verið það ráðu­neyti sem varði mestum fjár­munum til kaupa á því sem kallað er „önnur sér­fræði­þjón­usta“.

Hluti þeirra við­skipta hafi verið við­var­andi verk­efna á vegum ráðu­neyt­is­ins. Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði greiðslur til Sivjar Frið­leifs­dóttur, fyrrum ráð­herra, eftir að Eygló Harð­ar­dóttir skip­aði hana sem for­mann Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar, sam­ráðs- og sam­starfs­vett­vangs og álits­gjafa á sviði vel­ferð­ar­mála.

„Hún fékk greiddar 6 m.kr. 2014 og 7 m.kr. 2015 án þess að gerður væri samn­ingur um þau þjón­ustu­kaup. Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýnir það verk­lag sem er ekki í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup eða góða starfs­hætti,“ segir í skýrsl­unni.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár