Sigmundur Davíð um kjaradeilurnar: „Fólk skynjar að loksins er eitthvað til skiptanna“

For­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins fór um víðan völl í yfir­lits­ræðu sinni á setn­ing­ar­at­höfn flokks­þings fram­sókn­ar­manna sem hófst í dag. Vill upp­byggi­legri umræðu, boðar afnám verð­trygg­ingar og sakar borg­ar­yf­ir­völd um að beita brögðum í flug­vall­ar­mál­inu.

Sigmundur Davíð um kjaradeilurnar: „Fólk skynjar að loksins er eitthvað til skiptanna“

„Það má ekki gleyma því að staðan á vinnu­mark­aði nú er til komin vegna þess að fólk skynjar að loks­ins er eitt­hvað til skipt­anna, menn sjá að árangur hefur náðst og ótt­ast að sinn hópur fái ekki sann­gjarna hlut­deild í þeim ávinn­ingi.“ Þetta sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins meðal ann­ars í yfir­lits­ræðu sinni á setn­ing­ar­at­höfn flokks­þings fram­sókn­ar­manna sem hófst í dag. Hann sagði lausn­ina í kjara­deil­unum því fel­ast í því að laun­þegar og atvinnu­rek­endur nái saman um sann­gjarna skipt­ingu. Þá teldur hann skyn­sam­leg­ast að huga sér­stak­lega að þeim hópum sem eru með lægri- og með­al­tekjur fremur en að láta pró­sentu­hækk­anir ganga upp allan launa­stig­ann. „Það má ekki henda að við Íslend­ingar glötum því ein­staka tæki­færi sem nú blasir við til að verja stöð­ug­leik­ann og ná áfram­hald­andi raun­veru­legum kjara­bótum með veru­lega auknum kaup­mætti,“ sagði Sig­mundur Davíð og bætti því við að fari verð­bólgan hins vegar aftur á skrið brenna allir launa­hækk­anir upp á verð­bólgu­bál­inu og það bitni verst á laun­þegum. 

Unnið að afnámi verðtryggingarinnar

For­sæt­is­ráð­herra fór um víðan völl í ræðu sinni. Hann lagði í upp­hafi áherslu á góðan árangur rík­is­stjórn­ar­innar í efna­hags­málum, kaup­máttur lands­manna sé nú meiri en nokkru sinni fyrr og gangi spár eftir séu Íslend­ingar nú staddir í lengsta sam­fellda hag­vaxt­ar­skeiði Íslands­sög­unnar. Þá sagði hann leið­rétt­ing­una ein­staka á heims­vísu. Hún hafi verið efna­hags­lega skyn­sam­lega aðgerð og að hún hafi verið rétt­læt­is­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár