Sigmar fer í leyfi frá Kastljósinu - tjáir sig um fallið

Ritstjóri Kast­ljóssins deilir reynslu sinni af áfengis­vanda á Facebook og tilkynnir að hann fari í meðferð.

Sigmar Guðmundsson
Sigmar Guð­munds­son Rit­stjóri Kast­ljóss­ins er far­inn í leyfi til að sækja sér með­ferð vegna áfeng­is­vanda. Mynd: RÚV / Skjáskot

Sigmar Guðmundsson, ritstjóri frétta­skýringa­þáttarins Kast­ljóssins í Sjón­varpinu, er farinn í leyfi frá störfum í hálfan mánuð. 

Sigmar deilir ástæðunni fyrir brott­hvarfinu á Facebook-síðu sinni í dag. Þar segist hann hafa fallið á áfengis­bindindi sínu.

„Fyrir um ári féll ég eftir langa edrú­mennsku. Svo það sé nú bara sagt hreint út þá var þetta ömurlegt fall. Og eins og venjulega eru það aðstand­endur og vinir alkans sem líða mest fyrir fylleríið. Fjöl­skylda mín var í sárum, vinir mínir gáttaðir og vinnu­félagarnir svekktir því það er með mig eins og aðra alka, nánast vonlaust að vera heiðar­legur í neyslu. Sjálfur var ég í henglum og flúði til Svíþjóðar í meðferð, brotinn og beygður. Þar var gott að vera. Ég kom heim og var sann­færður um að allt yrði í lagi á ný. Og það vantaði ekkert uppá stuðninginn sem ég fékk, frá öllum í kringum mig. Og trúið mér, ekki fannst mér ég eiga slíkan stuðning skilið eftir þetta rugl. En því miður var það ekki nóg. Það var erfitt að jafna sig andlega eftir þetta fall og við tók erfiður tími,“ segir hann.

Annað fallið

Sigmar lýsir því hvernig hann reis upp en féll að nýju. „Svo birti til og ég fór að ná betri tökum á edrú­mennskunni. Ég gerði nákvæmlega það sem alkar eiga að gera til að viðhalda bata. Og fór á gott flug. En ég slakaði því miður á og sjúk­dómurinn sló mig niður. Ég hætti að bera ábyrgð á batanum mínum og edrú­mennskunni. Og fyrir tveimur vikum féll ég aftur. Vegna eigin kæru­leysis og vanmats á þessum ömurlega sjúkdómi. Ég hef aldrei á ævinni verið jafn svekktur útí sjálfan mig. Vonleysið og niður­brotið var algert. Og fjöl­skyldan mín leið að sjálfsögðu fyrir fallið, meira en ég sjálfur. Svona lagað spyrst út. Og eðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort ég sé lost keis. Ég féll. Og þegar maður fellur þá stendur maður upp og heldur áfram. Ég er svo heppin að eiga dásamlega vini sem hjálpa mér á fætur. Foreldra og börn sem veita stuðning. Ómetanlegt.“

Fer á Vog á morgun

Næsta skref hjá Sigmari er að fara í áfengis­meðferð á Vogi. „Ég tel mig ekkert mikið frábrugðinn öðru fólki, en vafalítið hafa einhverjir aðra skoðun á því. Rétt eins og flestir vil ég vera góður við fólkið mitt, standa mig vel í vinnu og láta gott af mér leiða. Leiða gamlar konur yfir gangbraut og lesa bækur fyrir veik börn á spítölum. Oft tekst þetta. En ekki alltaf. Minn djöfull er alkóhólismi sem hefur markerað mitt líf frá unglings­árum. Mér gekk afar illa að ráða við sjúk­dóminn fyrir 10-15 árum en í lok árs 2004 náði ég loks yfir­höndinni. Átta ára edrú­mennska fylgdi í kjölfarið þar sem ég fékk trú á lífið á ný. Og fólkið mitt og vinir fengu trú á mér eftir endalaus vonbrigði árin á undan. Lífið varð gott. En þessi geðsjúk­dómur er lúmskasta kvikindi sem fyrir­finnst og hann lúrir alltaf í leyni ...

En það lán mitt að eiga Júlíönu Einars­dóttur að í þessum hremmingum bjargaði sennilega lífi mínu. Ef það er einhver sem hefur stutt mig, stappað í mig stálinu, verið til staðar og talað í mig kjark, þá er það hún. Jafnvel þótt hún hafi þurft að þola mikið vegna míns alkóhólisma. Hún minnir mig á að ég er ekki vondur maður þótt ég komi ekki vel fram við fólkið mitt í neyslu. Við mér blasir nú að vinna til baka traust hennar, barnanna minna, foreldra, vina og vinnu­félaga. Það skal takast. Merkilegt nokk þá hefst sú ganga í náttfötum og slopp við Grafar­voginn. Þangað ætla ég á morgun. Ég ætla aldrei að gefast upp fyrir þessum ógeðis­sjúkdómi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár